SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Síða 50
50 25. apríl 2010
H
ver er hin eina sanna Cindy Sherman? Von-
svikin leikkona, dreymin ungmeyja, gró-
tesk klámstjarna eða uppstrílaður þótta-
fullur listunnandi? Ásjónur listakonunnar
eru svo margbreytilegar í verkum hennar; konurnar
sem hún leikur eru ýmist svo dapurlegar, sjálfhverfar
eða furðulegar að glaðvær og venjuleg röddin í símanum
kemur eiginlega á óvart. Sherman er forvitin að fá frétt-
ir frá Íslandi, af eldgosum og veðurfari. Hún er nefnilega
væntanleg til landsins um miðjan maí en þá verður
kunnasta myndröð hennar, Untitled Film Stills, ljós-
myndir frá árunum 1977 til 1980, sýnd í Listasafni Ís-
lands á Listahátíð. Allar 69 myndirnar. Einhverjar
kunnustu (og verðmætustu) ljósmyndir samtímans.
„Mér finnast þetta vera orðnar nokkuð gamlar mynd-
ir,“ segir Cindy Sherman og hlær þegar ég bið hana að
stíga aftur á bak í tímann og hugsa um þessa fyrstu
myndröð sína. „Nú lít ég aftur og hugsa um það hvar ég
bjó á þessum tíma, um myndirnar sem voru teknar af
ættingjum og vinum sem eru ýmist ekki lengur á meðal
okkar eða ég er ekki lengur í sambandi við. Frekar en að
ég geti tengt mig við myndirnar sjálfar, þá hugsa ég um
það sem fór fram þegar ég var að skapa þessi verk.“
Untitled Film Stills eru svarthvítar ljósmyndir, 20 x
25 cm að stærð, teknar í anda kvikmynda frá því um og
upp úr miðri síðustu öld. Allar sýna þær Sherman í
hlutverkum ónafngreindra leikkvenna. Hún hafði ný-
lokið námi þegar fyrstu myndirnar urðu til.
„Í listaskólanum hafði ég verið að taka sjálfsmyndir
sem ég stækkaði upp og klippti út eins og dúkkulísur.
Ég stillti þeim síðan upp í hópum þar sem persónurnar
áttu samskipti og tengdust. Ég hafði gert þetta um hríð
en var orðin leið á því hvað þetta var erfitt að klippa all-
ar þessar myndir út. Þegar ég flutti síðan til New York
vildi ég finna leið til að segja sögu í stökum myndum
sem ég væri ein á. Ein, alltaf ein. Ég kýs alltaf að vinna
ein.“
Á námsárunum og eftir að hún flutti til New York, var
Cindy Sherman undir meiri áhrifum frá kvikmyndum
en því sem var efst á baugi í myndlistarheiminum.
„Ég horfði mikið á gamlar bíómyndir og alls kyns til-
raunakvikmyndir. Einn vinur minn var hönnuður á
tímariti sem birti einskonar ljósmyndafrásagnir í anda
gömlu svarthvítu kvikmyndanna og á vinnustofu hans
sá ég talsvert af slíku myndefni. Þaðan fékk ég hug-
myndir um að reyna að skálda senur sem minntu á
kynningarmyndir kvikmynda. Þannig byrjaði þetta.“
Þannig byrjaði þetta og Sherman tók að sanka að sér
eins mörgum bókum með myndefni úr kvikmyndum og
hún gat fundið. „En ég stældi ekki neitt. Það var frekar
að ákveðnir karakterar í myndunum hefðu áhrif á mig,
eins og Sophia Loren í Tveimur konum. Ég dróst meira
að andanum í evrópskum myndum og Hitchcock-
myndum. Ég vildi styðjast við raunsæislega túlkun á
konum, eins og í túlkun evrópskra leikkvenna á borð
við Ana Magniani eða Simone Signoret …“
Dáðist að þessum konum sem áttu að vera fallegar
Myndröðin þróaðist þannig að Sherman skapaði nokkr-
ar týpur að vinna með í myndunum.
„Fyrstu sex myndirnar voru allar teknar á sömu film-
una, áður en ég ákvað að gera þetta að stórri myndaröð.
Þessar fyrstu myndir áttu að sýna sömu ljóshærðu leik-
konuna á ólíkum tímum. Á einni reyndi ég að sýnast
yngri en ég var en á annarri reyndi ég að vera eins og
eldri kona sem væri að reyna að líta út fyrir að vera
yngri en hún var í raun. Ég framkallaði þessa fyrstu
filmu meðvitað í of heitum framkallara þannig að filman
sprakk upp og kornin eru mun grófari en í myndunum
sem á eftir komu. Ég vildi að þessar myndir litu út fyrir
að vera ódýrar og unnar í flýti, eins og myndir sem
mætti finna í bunka inni í einhverri verslun og kaupa
nokkrar saman á fimmtíukall.
Eftir að ég gerði þessar fyrstu myndir útvegaði ég mér
fleiri hárkollur og gerði tilraunir með fleiri karaktera.“
Allar götur síðan Untitled Film Series-myndirnar
voru fyrst sýndar hefur verið gríðarmikið um þær
fjallað. Talað hefur verið um myndröðina sem eitt af
Ein kunnasta mynd Cindy Sherman úr seríunni Untitled Film Stills, mynd númer 21, frá árinu 1978. 20 x 25 cm að stærð.
Cindy Sherman / Birt með leyfi listamannsins og Metro Pictures
Ásjónur Cindy Sherman
Kunnasta ljósmyndröð bandarísku myndlistarkonunnar
Cindy Sherman, Untitled Film Stills, verður sýnd í Listasafni
Íslands á Listahátíð í vor, öll 69 verkin. Þetta er án efa eitt
þekktasta og umtalaðasta myndlistarverk síðustu áratuga.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is