SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Qupperneq 8
8 23. maí 2010
E
kki var við því að búast að Bandaríkja-
menn tækju því þegjandi og hljóðalaust
að múslimskur innflytjandi frá Líbanon
yrði krýnd Ungfrú Bandaríkin, líkt og
gerðist á dögunum. Aursletturnar ganga nú yfir
hina 23 ára gömlu Rima Fakih sem brugðist hefur
til varna.
Það er raunar gömul saga og ný að púrítanar
vestra reyni að koma óorði á nýkrýndar fegurð-
ardrottningar og draga „vafasama“ fortíð þeirra
fram í dagsljósið. Frægt var þegar Vanessa Williams
þurfti að afsala sér titlinum 1984 vegna gamalla
nektarmynda, 2006 var Tara Conner send beint í
meðferð og í fyrra komst Carrie Prejean í hann
krappan vegna bólfimimyndbands. Sú hin sama
skapaði líka usla þegar hún lýsti því yfir að hjóna-
band ætti að vera milli karls og konu.
Umræðan um fortíð hinnar nýkjörnu fegurð-
ardrottningar hefur aftur á móti leiðst inn á áður
óþekktar brautir. Menn hafa nefnilega gert því
skóna að Rima Fakih sé hryðjuverkamaður með
bein tengsl inn í Hezbollah-hreyfinguna alræmdu í
Líbanon. Hafa bandarískir bloggendur nánast farið
af hjöruliðunum vegna málsins.
Fakih er fyrsti innflytjandinn sem fer með sigur
af hólmi í keppninni um Ungfrú Bandaríkin en hún
flutti þangað með foreldrum sínum þegar hún var
þriggja ára. Fakih fæddist í litlu þorpi í Líbanon og
heyrir til stórri ætt shíta-múslima og talið er að
einhverjir ættingjar hennar séu handgengnir Hez-
bollah. Systir Rima, Rana Fakih, fullyrðir á hinn
bóginn að þannig sé því ekki farið með fjölskyldu
sína. Hún haldi bæði íslömsk og kristin gildi í
heiðri og hafi aldrei tekið afstöðu í trúarbragða-
stríðinu sem löngum hefur skekið Líbanon. „Við
erum þekkt fyrir umburðarlyndi okkar,“ segir
Rana en systir hennar gekk um tíma í kaþólskan
skóla í New York, þar sem systkinin ólust upp.
Það er líklega engin tilviljun að á úrslitakvöldinu
var Rima Fakih spurð hvort tryggingar ættu að
greiða fyrir getnaðarvarnapilluna. Hún var alfarið á
því enda pillan dýr. „Pillan er eins og hvert annað
lyf.“ Hvort fegurð hennar jókst við þetta svar skal
ósagt látið en önnur ummæli Rima Fakih eru þegar
orðin fleyg: „Það er fegurðin sem vekur athygli
þína en persónuleikinn sem vinnur hjartað.“
Heyr, heyr ...
Rana Fakih segir systur sína ítrekað hafa orðið
fyrir barðinu á fordómum, einkum eftir hryðju-
verkaárásirnar 11. september 2001. „Við erum mjög
stolt af því að vera líbansk-bandarísk og fögnum
því að Rima hafi náð þessum árangri þrátt fyrir
andstreymið, álagið og staðlaða ímynd af aröbum
og Líbönum. Það var ekki auðvelt fyrir hana að ná
þessu takmarki en það tókst,“ segir Rana en fjöl-
skyldan flutti fyrir nokkrum árum til Michigan.
Rima Fakih hefur líka mátt glíma við hefð-
bundnari úrtölur en eftir að hún var krýnd Ungfrú
Bandaríkin vakti útvarpsstöð í Detroit á vefsíðu
sinni athygli á eggjandi myndum af henni í súlu-
dansi á herraklúbbi árið 2007. Rima ræfillinn var
fljót til andsvara, gekkst vissulega við myndunum
en upplýsti að þær væru teknar á kynningarkvöldi
fyrir konur sem vinur hennar á téðri útvarpsstöð
hefði gengist fyrir. Hún hefði aldrei unnið fyrir sér
sem súlumær. „Eins og sjá má eru þetta ekki
skemmtilegustu myndir sem sögur fara af en ég hef
ekki gert nokkurn skapaðan hlut af mér,“ sagði
Rima í samtali við miðilinn Today.
Donald Trump, eigandi fegurðarsamkeppninnar
vestra, var líka snöggur að stíga inn í atburða-
rásina. Lýsti því yfir að ekkert væri athugavert við
ljósmyndirnar, Fakih væri í spjörum á þeim öllum
og þær á engan hátt frábrugðnar myndum sem
teknar voru af henni fáklæddri í keppninni sjálfri.
Og menn deila ekki við Trumparann ...
Reuters
Engin Hezbollah
Fyrsti innflytjandinn, Rima Fa-
kih, kjörin Ungfrú Bandaríkin
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Rima Fakih
tekur við árn-
aðaróskum
kvöldið góða.
Haldlítil klæði þykja ekki
hæfa konum í hinum
múslímska heimi og
óvíst hvernig Rima Fakih
yrði tekið spókaði hún
sig á baðfötum í Líb-
anon, þangað sem hún
kemur reglulega til að
heimsækja ættingja.
Það er hins vegar til
marks um umburðar-
lyndi foreldra hennar að
þeir hvöttu hana með
ráðum og dáð til að taka
þátt í fegurðarsam-
keppnum. Faðir hennar,
Hussein, var meira að
segja viðstaddur úr-
slitakvöldið og gladdist
með dóttur sinni.
Með samþykki
foreldranna
www.noatun.is
hvítasunnuhelgina
Opið alla
í Hamraborg,
Austurveri og Nóatúni 17