SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Blaðsíða 26

SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Blaðsíða 26
26 23. maí 2010 Þ að er vika þangað til kosið verð- ur til borgarstjórnar Reykjavík- ur og annarra sveitarstjórna og það er eins og engar kosningar séu í nánd. Fullyrða má, að svona deyfð hefur ekki verið í aðdraganda kosninga í hundrað ár. Ástæðan er augljós. Þjóðin er með hugann við skýrslu rannsókn- arnefndarinnar, bankahrunið og afleið- ingar þess, sem birtzt hafa að undanförnu í handtökum, gæzluvarðhaldsvist og öðru slíku. Þjóðin er líka búin að missa trú og traust á stjórnmálaflokkum eins og sjá má í nið- urstöðum skoðanakannana. Sumir segja, að þetta muni breytast í kjörklefanum. Þegar þangað verði komið eigi grínistar ekki upp á pallborðið. Ég er ekki viss um að það sé rétt. Þeir sem eru fyndnir á yf- irborðinu eru oft miklir alvörumenn und- ir niðri. Stjórnmálaflokkarnir og frambjóðendur þeirra hafa átt erfitt með að fóta sig í þessu umhverfi. Þetta kom skýrt fram í auglýs- ingu, sem birtist í sjónvarpi fyrir síðustu helgi frá Samfylkingunni. Þar var vakin athygli á miklu atvinnuleysi í Reykjavík og því síðan lýst með fjálglegum hætti hvernig flokkurinn mundi þurrka það út fengi hann tækifæri til. Áhorfandinn hlaut að spyrja sig, hvers vegna þess sæi ekki stað á landsvísu, þar sem Samfylkingin er í forystu. Boðskapurinn var endurtekinn í fréttatíma viðkomandi sjónvarpsstöðvar í viðtali við Dag B. Eggertsson, sem leiðir framboðslista flokksins í Reykjavík. Sömu dagana flutti Árni Páll Árnason, félags- málaráðherra sama flokks, þjóðinni alvar- leg tíðindi um niðurskurð í velferð- arkerfinu. Er þetta trúverðugur máflutningur og er við hæfi að nota aug- lýsingastofur til að koma honum á fram- færi? Er þetta ekki eitthvað 2007 eins og unga fólkið segir? Jafnvel Gylfi Arnbjörns- son kennir forystuleysi ríkisstjórnar um. Samfylkingin er þó ekki eini stjórn- málaflokkurinn, sem á í vandræðum með sjálfan sig þessa dagana. Það eiga þeir allir. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki hafa gert upp við sig, hvernig hann eigi að bregðast við skýrslu rannsóknarnefnd- arinnar, þótt tækifærin til þess blasi við í skýrslunni sjálfri. Þó náði þingflokkurinn vopnum sínum, svo að notað sé orðalag gamals þingmanns flokksins, í umræðum í liðinni viku um bankana og fjár- málakerfið. Þar sóttu hinir ungu þing- menn flokksins fram og náðu að hrekja þingmenn stjórnarflokkanna í vörn. Kannski er það vísbending um betri tíð. Hanna Birna Kristjánsdóttir borg- arstjóri hefur slegið réttan tón í kosninga- baráttunni en hún mætti halda honum meira fram. Á sama tíma og Dagur B. Eggertsson hefur hvatt til þess að skerpa andstæðurnar, sem er gam- aldags, hefur Hanna Birna hvatt til auk- innar þátttöku borgarbúa í ákvarð- anatöku, sem sýnir að hún er í takt við grasrótina í samfélaginu. Og það sem meiru skiptir: hún hefur sýnt þennan vilja sinn í verki eins og fjallað var um hér á þessum vettvangi fyrir nokkrum mán- uðum (19. desember 2009). Sæki Sjálf- stæðisflokkurinn fram síðustu dagana fyrir kjördag undir þeim merkjum hefur hann enn möguleika á að efla stöðu sína. Kannski er skýringin á því hvað for- ystusveit Sjálfstæðisflokksins hefur hægt um sig í aðdraganda kosninganna um skýrslu rannsóknarnefndarinnar sú, að frambjóðendur flokksins í sveitarstjórn- arkosningum hafi óskað eftir því, að hún haldi sig til hlés fram að kjördegi. Það er þó tvíbent. Til þess, að fólk kjósi Sjálf- stæðisflokkinn til sveitarstjórna, þarf það að hafa öðlast trú á að flokkurinn hafi náð áttum eftir bankahrunið. Sú trú fæst ekki nema það liggi ljóst fyrir hvað flokkurinn vill í málefnum þjóðarinnar. Fyrir hverju hann vilji berjast. Verði stjórnmálaflokkarnir fyrir áfalli í sveitarstjórnarkosningunum vegna þess, að nýir listar nái árangri, hvort sem um er að ræða grínista eða aðra, mun gagnrýnin innan flokkanna ekki beinast að fram- bjóðendum í þessum kosningum. Hún mun beinast að forystumönnum flokk- anna. Nái Samfylkingin ekki árangri verð- ur lífið erfitt fyrir Jóhönnu Sigurð- ardóttur. Fái Sjálfstæðisflokkurinn nýtt áfall verður Bjarni Benediktsson spurður erfiðra spurninga. Detti Framsókn- arflokkurinn út úr borgarstjórn verður spurt um Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Þetta kom skýrt fram innan Sjálfstæð- isflokksins eftir kosningaósigurinn vorið 1978. Þá beindist gagnrýnin ekki fyrst og fremst að Birgi Ísl. Gunnarssyni, sem þá var borgarstjóri, heldur Geir heitnum Hallgrímssyni, sem þá var formaður flokksins og forsætisráðherra. Kosningarnar eftir viku hafa því póli- tíska þýðingu á landsvísu og m.a. vegna þess, að gert er ráð fyrir að landsfundur Sjálfstæðisflokksins komi saman í lok júní eða mánuði síðar. Það uppgjör, sem þar mun fara fram, tekur óhjákvæmilega mið af úrslitum sveitarstjórnarkosninganna og þá ekki sízt í Reykjavík. Og hættan er sú, að nauðsynleg málefnaleg endurnýjun hverfi í skuggann fyrir deilum um önnur mál. Þó er ljóst, að Sjálfstæðisflokkurinn nær sér ekki á strik nema endurnýjun verði á stefnumálum flokksins í grund- vallaratriðum. Hanna Birna Kristjánsdóttir er eini for- ystumaður Sjálfstæðisflokksins, sem hefur tekið af skarið og lýst yfir stuðningi við hugmyndir um aukið lýðræði og beint lýðræði í orði og verki. Pólitísk framtíð hennar sjálfrar byggist að sjálfsögðu mikið á úrslitum borgarstjórnarkosninganna en það verður ekki síður forvitnilegt að sjá hvort hún tekur hugmyndir sínar um aukið lýðræði og aukna þátttöku almenn- ings í ákvarðanatöku um eigin mál upp á landsfundinum og berst fyrir því að þær verði þáttur í endurnýjun á stefnumörkun Sjálfstæðisflokksins. Hvort svo verður getur ráðið úrslitum um framgöngu þeirra hugmynda þar. Hugmyndir Hönnu Birnu geta ráðið úrslitum Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is V ið vorum allir sex vopnaðir haglabyssum, sjálfvirkum rifflum og skammbyssum. Við hófum skothríðina með sjálfvirku rifflunum og tæmdum þá áður en bíllinn kom að okkur. Þá tókum við upp haglabyssurnar ... Reyk lagði frá bíln- um og svo virtist sem kviknað væri í honum. Þegar haglabyssurnar höfðu gert sitt gagn tæmdum við úr skammbyssunum á bílinn sem var kominn framhjá okk- ur og stakkst ofan í skurð skammt þar frá. Minnstu munaði að hann ylti. Við héldum áfram að skjóta á bílinn eftir að hann nam staðar. Tókum enga áhættu.“ Lögregluteymið sem sat fyrir Bonnie Parker og Clyde Barrow á fáförnum vegi í Bienville-sókn í Louisiana á þessum degi fyrir 76 árum tók útlagana alræmdu engum vettlingatökum, svo sem glöggt kemur fram í yfirlýsingu tveggja úr teyminu, Teds Hintons og Bobs Alcorns. Parker og Barrow, eða Bonnie og Clyde eins og flestir þekkja þau, höfðu leikið lausum hala um miðríki Banda- ríkjanna um tveggja ára skeið, farið ránshendi um banka, verslanir og bensínstöðvar og myrt að því er talið er a.m.k. níu lögreglumenn og ótilgreindan fjölda óbreyttra borgara. Þau voru álitin afar hættuleg og höfðu verið eftirlýst um langt skeið þegar lögregla hafði loksins hendur í hári þeirra þennan örlagaríka dag. Hópurinn sem sat fyrir parinu í Louisiana hafði elst við það í meira en fjóra mánuði undir forystu Franks Ha- mers, reynds mannaveiðara frá Texas. Smám saman þrengdist hringurinn og þegar Hamer og menn hans höfðu spurnir af því að Bonnie og Clyde væru á leið til Louisiana þann 21. maí 1934 biðu þeir ekki boðanna. Komu sér tryggilega fyrir á téðum stað á þjóðveginum og biðu. Sumar heimildir herma að þeir hafi beðið í hálfan annan sólarhring en aðrar aðeins næturlangt. Alltént er staðfest að Hamer og félagar voru við það að gefast upp á biðinni þegar þeir heyrðu skyndilega stolinn Ford V8 nálgast á miklum hraða laust eftir klukkan níu að morgni 23. maí. Tveir í hópnum þekktu misindisfólkið í sjón og þegar þeir staðfestu að um réttan bíl væri að ræða hófst skothríðin sem lýst er hér að framan. Örlög skötuhjúanna voru ráðin um leið og fyrsta kúlan fór í loftið. Þau áttu aldrei möguleika. Talið er að Clyde hafi fallið fyrst, alltént staðhæfði Ted Hinton að Bonnie hefði rekið upp vein þegar hún gerði sér grein fyrir að lagsmaður hennar hafði orðið fyrir skoti. Samkvæmt skýrslu dánardómstjóra voru sautján að- skilin skotsár á líki Clydes og 26 á líki Bonniear, þar af nokkur á höfði. Svo illa voru líkin farin að erfiðlega gekk að smyrja þau vegna skorts á líkamsvessum. Í bílnum fannst gríðarlegt magn skotvopna og -færa, auk fimmtán para af stolnum skráningarnúmerum. Fregnin um fall Bonniear og Clydes fór eins og eldur í sinu um Bandaríkin og forvitið fólk dreif að. Tveir sex- menninganna sem urðu eftir á staðnum til að gæta lík- anna áttu í erfiðleikum með að hafa hemil á múgnum og konu einni tókst að klippa lokk úr blóðugu hári Bonniear og bút úr kjól hennar sem hún seldi síðar dýrum dómum sem minjagripi. Á elleftu stundu tókst að stöðva mann sem hugðist saga skotfingurinn af Clyde og annan sem hafði augastað á eyranu. Múgnum héldu engin bönd. Enda þótt Bonnie og Clyde hafi komið fram á sjón- arsviðið á hæpnum forsendum hefur frægð þeirra haldist fram á þennan dag. Ýmsir rekja þá staðreynd ekki síst til ögrandi ljósmynda sem teknar voru af Bonnie meðan vígatíðin stóð sem hæst. Fullyrt er að án hennar væri Clyde löngu fallinn í gleymskunnar dá. Þá dró kvikmynd Arthurs Penns frá 1967, Bonnie og Clyde, með Warren Beatty og Faye Dunaway í aðalhlutverkum ekki úr vin- sældum þessa vígamóða pars en þess má geta að í Illinois er starfrækt safn þeim til heiðurs. Clyde Barrow var 25 ára þegar hann týndi lífi en Bon- nie Parker aðeins 23 ára. orri@mbl.is Bonnie og Clyde söll- uð niður Clyde Barrow og Bonnie Parker meðan allt lék í lyndi. Samkvæmt skýrslu dánardómstjóra voru sautján aðskilin skotsár á líki Clydes og 26 á líki Bonniear, þar af nokkur á höfði. Myndir sem þessi juku mjög á vinsældir parsins alræmda. Á þessum degi 23. maí 1934
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.