SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Side 10
10 23. maí 2010
M
ér fannst það bráðfyndið þegar Jón Gnarr tilkynnti
framboð sitt og Besta flokksins til borgarstjórnar-
kosninga hér í Reykjavík. Ég var ekki ein um það,
síður en svo. En nú, þegar vika er í borgarstjórn-
arkosningar, hlýt ég að spyrja hvort brandaranum sé ekki að ljúka.
Ætlar þessi húmoristi og bráðsnjalli uppistandari, Jón Gnarr,
ekki að hætta við framboðið? Ætlar hann og hans fólk að axla
ábyrgð á því að hér verði pólitísk upplausn í borginni næstu fjögur
árin? Veit hann og hans fólk hvað felst í því að taka að sér rekstur
stærsta fyrirtækis landsins í
fjögur ár, halda úti almanna-
þjónustu, passa upp á debet og
kredit, þannig að fjárhagur
okkar Reykvíkinga fari ekki
fjandans til á því kjörtímabili
sem hefst eftir eina viku? Mér er
spurn.
Það liggur fyrir, að Hanna
Birna Kristjánsdóttir, þessi
glæsilega og skarpgreinda kona,
hefur staðið sig afburðavel í
hlutverki borgarstjórans í
Reykjavík. Um það virðist ríkja
þverpólitísk afstaða, ef marka
má skoðanakannanir. Hún hef-
ur ítrekað lýst þeirri skoðun að
leiðin út úr þeim efnahagsvanda
sem við okkur blasir verði að-
eins fundin með samvinnu og
sátt í stað átaka og ófriðar. Og
það sem meira er, hún hefur
ekki látið sitja við orðin tóm,
heldur hrint þessari skoðun sinni í framkvæmd, þannig að eftir því
er tekið hversu vel borgarfulltrúar hafa starfað saman við að finna
leiðir, sem gagnast sem flestum og koma niður á sem fæstum. Vit-
anlega hefur mikið mætt á borgarfulltrúum í því erfiða efnahags-
umhverfi sem við Íslendingar búum nú við, en ég held að óhætt sé
að fullyrða að þeir hafi tekið á málum af ábyrgð og festu og gætt
þess að að standa vörð um þá þjónustu sem við viljum flest að sé
hluti af grunnþjónustu borgarinnar.
Hanna Birna orðaði það sjálf svo í aðsendri grein snemma á þessu
ári: „Þrátt fyrir samdrátt í tekjum hefur okkur tekist að mæta öll-
um fjárskuldbindingum og tryggja góða stöðu í lok síðasta árs, án
þess að hækka gjöld fyrir grunnþjónustu eða skatta. Verkefni árs-
ins 2010 verður að standa vörð um þjónustu við börn og velferð og
forgangsraða í þeirra þágu … Þess í stað hagræðum við í stjórnsýslu
og almennum rekstri borgarinnar, rýnum kostnað rækilega og
spyrjum gagnrýnna spurninga um útgjöld.“
Ætla Reykvíkingar virkilega að skipta á þessum árangri, sem
vissulega hlýtur að teljast til verulegra tíðinda, fyrir brandara, sem
á örugglega bara eftir að breytast í lélegan brandara, upplausn og
stjórnleysi á hinum ýmsu sviðum borgarinnar? Ætla kjósendur í
Reykjavík að tryggja Jóni Gnarr og Besta flokknum sex borgarfull-
trúa og 36% atkvæða í borgarstjórnarkosningunum eftir viku, eins
og skoðanakönnun MMR frá því í síðustu viku gaf til kynna að yrði
niðurstaðan?
Það setur að mér óþægilegan aulahroll, þegar ég hugsa til þess,
nú viku fyrir kosningar, að ekkert bendir til annars en Jón Gnarr
og Besti flokkurinn ætli að halda framboði sínu til streitu. Samt
sem áður vona ég að hinir ágætu grínistar sem fara fyrir framboði
Besta flokksins muni sjá að sér. Þetta var fínn brandari og áreið-
anlega þörf áminning fyrir þau sem hafa tekið að sér að reka okkar
ágætu borg. En nú ætti brandaranum að ljúka, eða hvernig halda
þau Jón Gnarr og félagar að þau haldi út næstu fjögur ár, að vera í
alvörurekstri, með mörg þúsund manns í vinnu og veltu upp á tugi
milljarða króna á ári, taka erfiðar ákvarðanir og óvinsælar og kom-
ast ekki upp með að svara út og suður, eins og hefur verið einkenni
þessa grínframboðs hingað til?
Það sem ég vil veðja á núna er að Reykvíkingar sjálfir sjái að sér,
því fátt bendir til þess að grínframboðið muni gera það og vísbend-
ing um að svo geti orðið er að 70% aðspurðra í ofangreindri skoð-
anakönnun telja að Hanna Birna hafi staðið sig frekar vel eða mjög
vel í starfi borgarstjóra.
Er brandar-
inn ekki að
verða búinn?
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Hanna Birna Jón Gnarr
’
70% aðspurðra
í ofangreindri
skoðanakönn-
un telja að Hanna
Birna hafi staðið sig
frekar vel eða mjög
vel í starfi borg-
arstjóra
02.00 Fer að sofa eftir langan
vinnudag. Þegar líður nær frum-
sýningu snýst sólarhringurinn
oft nánast við...
Inga Maren Rúnarsdótttir og
félagar í hóp sem kallar sig
Menningarfélagið frumsýna um
helgina dansverkið Aftursnúið í
Rýminu hjá Leikfélagi Akureyr-
ar. Inga Maren lærði í London en
hefur undanfarið dvalið bæði í
Amsterdam og Costa Rica við
dansmennt.
Hún segir engan dag hefð-
bundinn um þessar mundir en
féllst á að leyfa lesandanum að
dansa með sér í gegnum mið-
vikudaginn. Hann hófst eig-
inlega á því að hún lagðist til
svefns klukkan tvö eftir mið-
nætti sem fyrr segir ...
8.45 Morgunmatur. Mismun-
andi eftir tímabilum; um þessar
mundir Honey Nut Cheerios og
kaffi. Svo smyr ég mér nesti til
að fara með í vinnuna.
9.30 Æfing í Rýminu. Við er-
um tveir dansarar, ég og Ásgeir
Helgi Magnússon, William Coll-
ins er dramatúrg, Egill Ingi-
bergsson sá um að hanna ljósin
og fleira, Lydía Grétarsdóttir
samdi tónlistina og Lára Stein-
grímsdóttir býr til sviðsmynd-
ina. Það má reyndar segja að við
deilum vinnunni þannig að í
rauninni sér enginn alveg um
eitthvað eitt. Allir sem eru í
Menningarfélaginu voru saman í
Versló; samt er ekkert okkar í
viðskiptalífinu!
11.00 Rennsli á sýningunni í
heild með ljósum og öllu. Verkið
er mjög dramatískt og frekar
skýtið að ná fram öllum nauð-
synlegum tilfinningum svona
snemma dags! Það er auðveldara
á kvöldin. Verkið er um tvo ein-
staklinga sem hafa lent í áfalli og
þurfa að bregðast við þeirri stað-
reynd að allt er öðruvísi en áður.
Við segjum ekki hvert áfallið en
einstaklingarnir þurfa að takast
á við algjörlega nýjan veruleika.
13.00 Hádegismatur. Mat-
málstímar eru samt yfirleitt ekki
á hefðbundnum tímum núna.
14.00 Nóg að gera við að
klára sviðsmyndina. Það er
endalaust verk; þarf að mála
eitthvað, líma loftið, laga
lampaskerma eða hengja eitt-
hvað upp.
16.00 Förum yfir það sem
betur hefði mátt fara á rennslinu
í morgun. Fínpússum tækniat-
riði í dansinum.
19.10 Skreppum út á flug-
völl að sækja Pétur, kærastann
hans Ásgeirs.
21.00 Æfing hefst á ný.
23.00 Æfingunni lýkur og
við förum yfir nokkur atriði sem
hefðu mátt ganga betur.
23.30 Hópurinn býr allur
saman við Þórunnarstræti. Egill
ljósamaður fór á undan og þegar
við komum heim er hann búinn
að elda; framreiðir nýjan fisk,
urriða og bleikju, sem hann
veiddi sjálfur. Þetta er í hálf-
indverskum stíl og rosalega gott.
Við horfum svo á vídeó af æfing-
unni í kvöld, skrifum nótur um
það sem þarf að laga. Svo fór ég
yfir tölvupóst til Menningar-
félagsins og svara því sem þarf
að svara.
02.00 Leggst aftur á kodd-
ann og sofna. Þessum mið-
vikudegi lýkur sem sagt ekki
fyrr en á fimmtudegi...
Kannski dreymir mig um allt
sem við eigum eftir að gera sam-
an. Aftursnúið er þriðja verkið
sem hópurinn setur upp í sam-
einingu og við erum með margar
hugmyndir.
skapti@mbl.is
Dagur í lífi Ingu Marenar Rúnarsdóttur dansara
Inga Maren Rúnarsdóttir; sviðsmyndin er öfugsnúin eða þá aftursnúin...
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nú verður aftursnúið
Fyrsta skopteikningin eftir Ívar Valgarðsson myndlistarmann birtist í Sunnudagsmogganum í dag og verða teikn-
ingar hans fastur liður í blaðinu hér eftir.
Nýr skopmyndateiknari