SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Síða 14

SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Síða 14
14 23. maí 2010 „Alzheimer-sjúkdómurinn ágerist hægt og sígandi, þó mishratt eftir einstaklingum og virðist vera meira illkynja eftir því sem fólk er yngra,“ segir Björn Einarsson, öldr- unarlæknir á Landakoti. Björn segir flesta hafa haft einkenni í um það bil tvö ár þegar þeir koma á minn- ismóttökuna, sem er hluti af göngudeild Landakots. Hann nefnir að hin dæmigerða þróun sé að vel gangi heima í tvö til fjögur ár eftir það, fólk sé þá í eftirliti hjá heim- ilislækni en aftur komi að minnismót- tökunni þegar sjúklingurinn þurfi á fé- lagslegum stuðningi, heimaþjónustu, heimahjúkrun, lyfjaskömmtun og dagvistun að halda. Tveimur til þremur árum eftir það segir hann fólk yfirleitt þurfa varanlega vist- un á hjúkrunarheimili. Heilabilun er „samsafn einkenna um vit- ræna skerðingu sem veldur félagslegri van- hæfni til að sjá um sig sjálfur“, segir Björn. Heilabilun meðal áttræðra er um 10%, um 20% fólks 85 ára eru með sjúkdóminn og sjúkdómurinn verður enn algengari með hækkandi aldri. Um 75 ára aldur eru um 6% með sjúkdóminn en sjötugt 3%; því má segja að tvöföldun verði með hverju fimm ára aldursbili en sjúkdómurinn er sem betur fer sjaldgæfur fyrir 65 ára aldur að sögn Björns, „þótt við fáum öðru hvoru sjúklinga allt niður í 50 ára“. Margvísleg einkenni Alzheimer er langalgengasta orsök heila- bilunar, um 50-70% tilfella. Æðavitglöp eru næstalgengust og er lýst í allt að 10- 50% tilfella. „Algengi þess sjúkdóms er nokkuð misjafnt eftir því hvar ber niður á jarðkringlunni en í Ameríku er hann talinn um 10%, nálægt 50% í Svíþjóð en er al- gengasti heilabilunarsjúkdómurinn í Jap- an. Þetta endurspeglar trúlega frekar mis- munandi skilgreiningar á sjúkdómnum en raunverulegan mun.“ Björn segir blandaða heilabilun af Alz- heimer-sjúkdómi og æðavitglöpum trúlega miklu algengari en við höldum, enda er margt sem þessir sjúkdómar eiga sameig- inlegt.“ Björn segir fyrstu einkenni um dulinn heilabilunarsjúkdóm oftast geðræn; þung- lyndi og kvíði eða þá framtaksleysi og aðrar persónuleikabreytingar. „Skammtíma- Um 10% áttræðra með heilabilun Björn Einarsson Þórunn Bjarney Garðarsdóttir, hjúkrunarfræð- ingur og forstöðukona heimaþjónustunnar Sinnum, segir starfsmenn þar á bæ hafa nokkur atriði sérstaklega í huga varðandi samskipti við sjúklinga með minnisglöp; það orð vill hún nota frekar en heilabilun. 1. Við leggjum okkur fram um að kynnast styrkleikum og áhuga- málum fólks og finn- um leiðir til að við- komandi geti notið þeirra. Verkkunnátta í eldhúsi getur t.d. reynst vel til að virkja einstaklinginn. Margir halda líkamlegri getu sinni til að framkvæma ákveðin verk en vantar frumkvæði. 2. Við tölum í núinu. Það ruglar oft ein- staklinga að segja frá einhverju löngu fyr- irfram. Ekki borgar sig að tala um það sem á að gerast næstu vikur eða eftir mánuð. Tíma- skynið lætur oft undan og þá getur einstakling- urinn ekki gert greinarmun á því sem á að gerast á eftir eða á morgun. 3. Mikilvægt er að velja umræðuefni sem ligg- ur fólki næst. Ef það er fortíðin þá er um að gera að dvelja í minningunum. Mikilvægt er að leyfa einstaklingnum að segja frá og taka þátt í um- ræðunni á hans forsendum. Það getur verið mikil áskorun ef einstaklingurinn talar alltaf um sama hlutinn og það er einn af þeim þáttum sem aðstandendur nefna oft sem mikinn álagspunkt. 4. Við hjálpum fólki að koma á rútínu, t.d. að matast reglulega eða taka lyf. Við notumst við hjálpartæki eins og dagatöl og merkjum inn á mikilvæga atburði. Einstaklingurinn finnur þannig til aukins öryggis. 5. Við höfum samskiptin einföld. Mikilvægt er að nota einfaldar, stuttar setn- ingar, tala skýrt og nota eðlilega tónhæð. Eitt af einkennum minnissjúkdóma er hægfara en stöðug, minnkandi málgeta. 6. Gefa þarf fólki tíma til að meðtaka skilaboð og vinna úr þeim. Við þurfum að gefa þeim tíma til þess að bregðast við áður en við förum í næsta skref. Vera þolinmóð og setja sig í spor hins að- ilans. 7. Við höldum augnsambandi. Persónuleg tengsl eru mjög mikilvæg fyrir einstaklinginn, hann þarf að finna að athyglin og ástúðin beinist að honum. 8. Við notum líkamstjáningu. Þrír þættir hafa verið nefndir sem lykilatriði í samskiptum manna á milli; orðaval, raddbeiting og líkamstjáning. Það kemur e.t.v. einhverjum á óvart að þegar vægi þessara þátta eru skoðuð hafa orðin, þ.e. orðavalið, minnst vægi eða 7%, röddin vegur 38% og líkamstjáningin 55%. Ár- angursríkast er að blanda saman orðum og lát- bragði til að ýta undir skilning. Einstaklingar með minnisglöp eru mjög næm- ir á líkamstjáningu fólks og oft gefum við mis- vísandi skilaboð án þess að ætla okkur það. 9. Við leiðum einstaklinginn í gegnum verkið skref fyrir skref, til dæmis með því að einfalda hlutina og bjóða upp á lítið val. Þannig segjum við til dæmis: Viltu kaffi eða te? En ekki: Hvað viltu drekka? Þegar hann heyrir orðið er líklegra að hann geti svarað spurningunni með já eða nei, heldur en ef hann þarf að muna orðið kaffi, te, vatn eða eitthvað annað. 10. Við tökum líðan alvarlega og staðfestum upplifun. Þannig efumst við ekki um vanlíðan eða áhyggjur – jafnvel þó að þær séu ekki rök- réttar. Það hjálpar oft einstaklingum og bætir líðan þeirra að fá staðfestingu á því hvernig þeir virka. T.d. ef einstaklingur virkar leiður eða sorgmæddur spyrjum við – ertu sorgmæddur? Það er gaman að geta glaðst saman en stundum er líka gott að syrgja saman. Þórunn Bjarney Garð- arsdóttir hjúkrunarfræð- ingur. Hvernig eru sam- skiptin best? Minnisglöp A lzheimer er mjög grimmur sjúkdómur sem rænir okkur persónuleikanum. Það tekur á að horfa upp á ein- hvern nákominn veikjast svona og fara í gegnum sorgina og söknuðinn, og líka óttann við að verða svona sjálfur,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir al- þingismaður. Móðir hennar, Hólmfríður Guðmundsdóttir, glímdi við Alzheimer-sjúkdóm árum saman en lést 2003. Ragnheiður Elín ræddi um veikindi móður sinnar á ráð- stefnu sem Sinnum heimaþjón- Húmor, reisn, þolinmæði Um 300 manns greinast ár- lega með Alzheimer-sjúk- dóminn hér á landi. Miklu máli skiptir hvernig sam- skiptum við sjúklinginn er háttað. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Ragnheiður Elín Árnadóttir ásamt foreldrum, Árna Þorgrímssyni sem enn lifir góðu lífi og Hólmfríði Guðmundsdóttur. Ragnheiður Elín Árnadóttir

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.