SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Blaðsíða 30
30 23. maí 2010
H
ann varð níræður í febrúar,
hann Sun Myung Moon, þessi
auðjöfur sem kallað hefur sig
ýmsum nöfnum, þeirra á
meðal Messías.
Lítið hefur verið skrifað á Íslandi um
þennan mann og söfnuð hans sem stund-
um er kallaður valdamesti sértrúarsöfn-
uður heimsins. Lesendur þekkja Moon
sennilega best fyrir fjöldabrúðkaupin sem
hann hefur stýrt með reglulegu millibili og
þykja yfirleitt skondið fréttaefni.
Fréttunum fylgir þó sjaldan umfjöllun
um söfnuðinn og þær vafasömu hliðar sem
hann virðist eiga sér.
Jesús birtist á fjallinu
Sun Myung Moon fæddist í Kóreu árið
1920 inn í fátæka bændafjölskyldu. Kórea
laut á þessum tíma stjórn Japanskeisara og
samfélagsaðstæður hreint ekki þær
skemmtilegustu. Moon þótti vitur langt
umfram það sem aldur hans gæfi til kynna
og á jafnvel að hafa verið sagður skyggn.
Segir sagan að þegar Moon var 16 ára hafi
hann haldið upp á fjall þar sem hann bjó í
norðurhluta landsins, og lagst þar á bæn.
Þar birtist sjálfur Jesús honum, steig úr
gylltu skýi og færði honum þær fréttir að
hann væri hinn nýi Messías og skyldi klára
það starf sem trésmiðnum frá Galíleu hefði
ekki tekist að ljúka.
Í gegnum tíðina eiga fleiri vættir heims-
trúarbragðanna að hafa tekið hús á Moon.
Konfúsíus, Búdda og jafnvel Múhameð
sjálfur hafa að sögn trúarleiðtogans opin-
berast honum og aðstoðað við útbreiðslu
trúarinnar.
Seinna á lífsleiðinni á Moon að hafa
gagnrýnt Jesú Jósefsson fyrir það einmitt
að vera of linur, og öðruvísi hefði farið ef
hann hefði fengið til lags við sig trúheitari
lærisveina, tilbúna að fórna lífinu fyrir
hann.
Lærdómsrík fangabúðavist
En það er önnur saga. Áfram hélt hinn
ungi Moon á sinni braut. Hélt til Tókýó þar
sem hann lauk námi í rafmagnsverkfræði
frá Waseda-háskóla í miðri seinni heims-
styrjöld. Stríðinu lauk og Moon sneri aftur
til sjálfstæðrar Kóreu. Slegið á að hafa í
brýnu milli Moons og leiðtoga öldunga-
kirkjunnar sem hann tilheyrði. Honum
var vikið úr söfnuðinum og, til að gera
langa sögu stutta, hélt norður í land til að
boða þar trú á eigin forsendum. Um það
leyti réðust kommúnistar inn í landið að
norðan, og Kóreustríðið hófst. Fyrir boð-
unarstörf sín var Moon hent í hræðilegar
fangabúðir þar sem hann sat í þrjú ár,
pyntaður og kvalinn allt þar til herlið SÞ
bjargaði honum, að sögn á síðustu stundu.
Söfnuðurinn kennir að í fangabúðunum
á þjáning Moons að hafa verið slík að hann
frelsaði mannkynið undan syndum sínum
og „hreinsaðist“. Það sem moonistar
minnast sjaldnar á er að í búðunum lærði
hann mörg þau heilaþvottarbrögð sem
áttu eftir að vera límið í trúarsöfnuðinum.
Moon lýsti trúarkenningum sínum í rit-
inu sem á ensku hefur fengið heitið Divine
Principle, og stofnaði formlega árið 1954
Sameiningarkirkjuna, eða Holy Spirit
Association for the Unification of World
Christianity eins og hún heitir fullu nafni á
enskri tungu. Utan safnaðarins er talað
Hinn dularfulli hr. Moon
Hann er voldugur
maður með stóran
skara fylgjenda og
jafnvel enn stærra við-
skiptaveldi. Hér er
skoðaði óvenjulegt lífs-
hlaup Sun Myung Moon
og hvers vegna varla
má borða sushi í
Bandaríkjunum án
þess að styrkja um-
deildan ofsatrúar-
söfnuð
Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is
Moon ásamt þriðju eiginkonu sinni, henni Hak Ja Han. Þau gengu að eiga hvort annað árið 1960. Hún var þá nýorðin 17 ára og hann fertugur. Saman hafa þau átt 14 börn.
Moon hefur, allt síðan hann
fór að geta látið að sér
kveða sem safnaðarleið-
togi, verið með fingurna í
stjórnmálum með einum
eða öðrum hætti. Bæði
með því að veita mjög
rausnarlega í kosn-
ingasjóði, og svo vitaskuld
með því að beita Wash-
ington Times fyrir sig.
Þegar Watergate-
hneykslið gróf undan Nix-
on, ágætum vini Moons og
samherja í baráttunni gegn
kommúnistum, voru sýndar
fréttamyndir af stuðnings-
mönnum forsetans sem
mótmæltu í Washington.
Nú hefur komið í ljós að ekki var um sjálf-
sprottinn stuðning almennra bandarískra
borgara við forsetann sinn að ræða, held-
ur voru þar á ferð meðlimir safnaðarins
sem Moon hafði skipað að fara af stað.
Ætli hápunktinum hafi ekki verið náð
árið 2004 þegar fríður hópur fólks –
þeirra á meðal 12 meðlimir Bandaríkja-
þings – hittist við hátíð-
lega athöfn í einni af
byggingum þingsins í
Washington. Eftir at-
höfnina, sem finna má
kostulega upptöku af á
Youtube, eiga sumir
þingmannanna að hafa
lýst því yfir að þeir hafi
verið gabbaðir til sam-
komunnar: þeir héldu að
þar ætti að fara fram
einhvers konar verð-
launaathöfn.
En nei, þar fór fram
eitthvað annað og
meira. Þar færði einn
þingmannanna trúar-
leiðtoganum og konu
hans ríkulega skreyttar kórónur, og Moon
var krýndur „friðarkonungurinn“.
Við sama tækifæri lýsti Moon því yfir
að hann hefði bjargað sálum Hitlers og
Stalín, frelsað þá til betri siða, og í sýn
sem hefði birst honum hefðu þeir félagar
lýst Moon sem bjargvætti mannkyns.
Ekki amaleg veisludagskrá það.
Konungur Bandaríkjanna?
Moon og kona hans hátíðlega
krýnd í þinghúsi bandaríkja-
þings
Næstelsti sonur Moons, Heung-Jin Mo-
on, fórst í bílslysi á öðrum degi ársins
1984. Þá upphóst undarleg atburðarás,
því andi sonarins fór að birtast í safn-
aðarmeðlimum víða um heim. Andinn lét
að lokum staðar numið í moonista frá
Simbabve, Cleopas Kundioni að nafni.
Kundioni var fljótlega vippað upp í flug-
vél til fundar við „fjölskyldu“ sína, og á
heimili Moons var honum tekið opnum
örmum sem Heung-Jin endurholdguðum.
Fyrr en varði var söfnuðurinn farinn að
kalla hinn svarta Heung-Jin Moon hinn
nýja Krist, og andi Jesú sjálfs væri þar
með í för.
Svarti Heung-Jin Nim („Nim“ er kóreskt
heiðursviðskeyti sem notað er t.d. um
fjölskyldumeðlimi leiðtogans) var síðan
sendur af stað að heimsækja útibú safn-
aðarins víða um heim. Þar lét hann hend-
ur bókstaflega standa fram úr ermum og
lúbarði þá meðlimi sem skrikað hafði fót-
ur á einstigi hins góða siðferðis. Suma
setti hann í gyllt handjárn, tók síðan fram
hafnaboltakylfuna og lét höggin dynja á
þeim. Jafnvel leiðtogar innan safnaðarins
sluppu ekki við barsmíðarnar, og einn
þeirra – gamall og hrumur – lá á spítala í
vikutíma eftir meðferðina.
Smám saman fór söfnuðurinn að ókyrr-
ast, og á endanum var nýja Kristi bægt til
hliðar, og hafnaboltakylfunni hans með.
Síðast þegar fréttist til Cleopasar var
hann á leið aftur heim til Simbabve.
Svarti nýi Jesús