SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Síða 34
34 23. maí 2010
undarlegt hljóðið í steypuvélinni: duff,
duff, duff, duff, bang, bang, duff, duff,
duff, duff, bang, bang, en bankið kom
alltaf hinum megin úr vélinni. Steini
skríður upp á steypuvélarbelginn sem
snerist jafnt og þétt með duffinu og
bankinu, en í þann mund sem hann áttar
sig á því að banghljóðið kom vegna
grjóthnullungs sem var látinn veltast
inni í belgnum til að steypukleprar fest-
ust ekki, þá dettur hann ofan í belginn
og horfði nú ekki vel, kallarnir í kaffi.
En nú breyttist hljóð frá vélinni og það
var duff, duff, duff, duff, bang, bang,
hjálp, hjálp, duff, duff, duff, duff, bang,
bang, hjálp, hjálp. Til allrar Guðs lukku
fer fólk hjá vélinni og heyrir að það er
barn inni í steypuvélinni. Það er rokið
upp til handa og fóta og barnið tosað út í
heiminn á ný og því komið í skyndi til
Arngríms læknis: „Umhumm, um-
humm, umhumm, kemur hann enn,“
sagði Arngrímur að vanda og „hugðu að
drengnum, Gulla mín, haltu honum inni
í nokkra daga.“
Áður en nokkrir dagar voru liðnir kom
olíubíll í bæinn og Steini Gun slapp út til
þess að hanga aftan í olíubílnum, það var
toppurinn. Allt gekk að óskum til að
byrja með, en allt í einu, þar sem olíu-
bíllinn er að aka yfir brúna í bæjargilinu,
missir Steini takið og steypist í gegnum
brúarhandriðið niður í ána. Þaðan var
honum dröslað upp skömmu síðar og
farið með hann til Arngríms læknis.
„Umhumm, umhumm, kemur hann eina
ferðina enn,“ sagði Arngrímur.
Besti veiðitúrinn
En það er alltaf von á einni frá Hrólfi vél-
smið Hraundal, sagnalistin sem þeir hafa
svo gaman af Grundfirðingar. Hrólfur
var í vinahóp að segja frá skemmtileg-
ustu ferðinni sinni, en hann er mikill
ferðagarpur:
„Það leið að hausti og Helga mín var
hætt að jagast í mér að fara með sig í
ferðalag. Og allt í einu áttaði ég mig á því
að hún var hætt að sýna mér alls konar
ódýra möguleika og haustlitirnir voru að
koma fram hér á norðurhjara. Mér fannst
þeir fallegir og þá kemur gæsaveiðitím-
inn og rjúpnaveiðitíminn, sem ég reynd-
ar hef svo lítinn tíma til að sinna.
En besti veiðtúrinn minn var 1961
þegar ég ásamt félögum mínum Erni og
Braga fór frá Vopnafirði í Atlavík. Við
fengum gamlan bónda til að aka okkur á
herjeppa frá því úr stríðinu, 1942-módel.
Þetta var ágætur kall og bíllinn góður,
enda Ford. Upphaflega hafði þetta verið
herjeppi með tuskuhúsi, en nú var á
honum trékamar eins og
var notaður í Öræfunum
til að kúka í þegar ég kom
þar fyrst.
Við héldum sem leið lá
inn fyrir Vopnafjörð og
upp með Bustarfelli og í
humátt norður og vestur
Vopnafjarðarheiði og svo
var stefnan tekin á
Möðrudal og þaðan á
fjallgarðinn niður á Jök-
uldal. Eftir Jökuldalnum
hossuðumst við og klofuðum ár. En það
var okkur á þeim tíma eðlilegt svo við
tókum ekkert sérstaklega eftir því. En
þegar við skyndilega lentum á pallsléttri
timburklæddri Lagarfljótsbrúnni sungu
helvítis ormarnir í aftursætinu: Brúin er
úr spýtu, brúin er úr spýtu, lallalala,
lallalala, brennivínið er búið og Hrólfur
fær ekki neitt, lallalala.“
Þeir þorparar stálu sem sagt af mér
mínum þriðjung og ég varð súr.
Þegar við komum í Atlavík þá stóðu
þeir hvorki á höndum né fótum, voru
eiginlega bestir á nefinu eða herðunum.
Ég var súr og axlaði allar byrðar nema
það sem þeir töldu sig ráða við. Þar kom
sögu þessa leiðangurs að framundan var
tjald og heyrðist þaðan stúlknasöngur og
kvennahjal. Þar fyrir framan leist mér
vel að tjalda. En félagar mínir lögðu koll-
húfur og sögðu fussumsvei og vildu
tjalda inni í skógi. Ég tók því stóran
hring í erfiðustu skógarflækjunni og
þreytti þá svo sem ég hafði vit til, en
kom svo með þá aftur þangað sem fallega
kvennahjalið var og þar tjölduðum við á
þeim sama stað og ég hafði lagt til áður.
Þeir sofnuðu ekkert en létu mig í friði
fram undir morgun, en þá heyrði ég
hlátrasköll stúlku og rann á hljóðið. Þar
stóðu félagar mínir heldur aumk-
unarverðir og hressileg stúlka í grárri
kápu stóð þar á þúfu og hló að þeim. Það
skipti engum togum að þessa stúlku ætl-
aði ég að eiga. Ég sagði því: „Stúlka mín,
ef þú hefur ónæði af þessum peyjum eða
ert í vandræðum, þá komdu bara til
mín.“
Hún hvessti á mig græn augun og
sagði: „Far þú nú bara til andskotans,“
og svo hoppaði hún af þúfunni og var
skyndilega horfin í skóginn, hún Helga
mín, sem síðar varð.“
Morgunblaðið/RAX
’
En nú breyttist
hljóð frá vélinni
og það var duff,
duff, duff, duff, bang,
bang, hjálp, hjálp,
duff, duff, duff, duff,
bang, bang, hjálp,
hjálp.
Á göngu í átt að bænum. Í fjarska er Mýrarhyrna og Kerlingin röltir heiðina.
P
lató hélt því fram að á fornöld hafi verið til þrenns
konar tegundir af manneskjum. Sem sagt ekki bara
karlar og konur. Samkvæmt skilgreiningum Platós
voru manneskjur á fornöld samansettar af tveimur
pörtum; karl og karl, karl og kona, og kona og kona. Lengi
vel var fólk almennt mjög ánægt með þetta fyrirkomulag og
lítið var um kvartanir. Þeir félagar Plató, Hómer, Sókrates
og „vinir“ þeirra í Samtökunum ’78 fyrir Krist hefðu eflaust
viljað vera uppi aðeins fyrr. En einhverra hluta vegna ákvað
svo guð að breyta ríkjandi fyrirkomulagi og skar alla í
tvennt. Ekkert múður. Og það tók hann auðvitað ekkert
langan tíma vegna þess að hann er guð. Og guð getur gert
alveg rosalega margt í einu, eins og við vitum. Sem ýtir auð-
vitað enn frekari stoðum undir það að guð sé kona. Þegar
guð var búinn að skera alla í tvennt, sagði hann að nú væru
bara til karlar annars vegar og konur hinsvegar og ef fólk
ætlaði að rugla saman reitum eða hefði áhuga á því að kom-
ast í snertingu við hvort annað, þyrfti það að giftast.
Kirkjan greip þetta hugtak fegins hendi og gerði sér mat
úr. Kirkjan ákvað þó að setja þak á þetta fyrirkomulag því
almennt bann var sett við því að konur gætu gifst konum og
karlar körlum. Ég veit ekki af hverju þetta þróaðist svona en
kirkjur hafa í gegnum tíðina ekki verið neitt sérstaklega
hliðhollar hommum og lesbíum. Reyndar gengið svo langt
að kalla homma og lesbíur kynvillinga. Sem er líka svolítið
spes vegna þess að
maður hefur heyrt af
nokkrum kynverum
innan ýmissa safnaða
(eða Byrgja) svona í
gegnum tíðina, sem
sýnt hafa villimanns-
lega framkomu, og þá á
ég við mun alvarlegri
hluti en að prestur sé
skotin í öðrum presti,
sem er þegar öllu er á
botninn hvolft ekkert
svo villimannslegt. En
þetta var náttúrulega
alveg brilliant hjá
kirkjunni að gera sér mat úr giftingunni og eigna sér hana.
Gifting er eitt besta marketing stönt sem fundið hefur verið
upp. En ég hef aldrei áttað mig á hvers vegna kirkjunni hef-
ur verið svona illa við homma og lesbíur. Ég meina ef þú lít-
ur á giftingu sem bisness þá er í raun kirkjan að ýta frá sér
bisness með þessum hætti. Ætti kirkjan ekki frekar að opna
þetta bara uppá gátt og leyfa hverjum sem er að gifta sig?
Þetta er svona svipað og ef íslenska ríkisstjórnin tæki
ákvörðun um að hækka ekki skatta til að koma hagkerfinu
almennilega af stað. Já, nei, slæmt dæmi. Auðvitað hækkar
maður allt upp úr öllu valdi og lætur millistéttina borga
brúsann. Ekki er hægt að hækka skattana á unga liðið, það er
allt farið. Einhver verður jú að borga. Og kirkjan getur auð-
vitað ekki gift bara alla. Það myndi enda með ósköpum.
Tveir giftir hommar, það náttúrulega gengi aldrei. Þeir gætu
farið sér á voða.
En segjum að þetta sé rétt hjá Plató, að það hafi verið til
þrjár tegundir af fólki áður en guð og síðan kirkjan skárust í
leikinn (og ég meina Plató var enginn vitleysingur) – erum
við þá öll meira og minna hálf? Er þessi endalausa makaleit
karla og kvenna, hvort sem verið er að leita að körlum eða
konum, einfaldlega vegna þess að við erum að leita að „hin-
um rétta helmingi?“ Og ef guð meðvitað skar okkur öll í
helminga, hvers vegna í ósköpunum kom hann þá ekki upp
einhvers konar númerakerfi til að auðvelda okkur þessa leit?
Ókei, segjum sem svo að þetta sé bara rétt hjá Plató, að allir
eigi sinn rétta helming einhversstaðar þarna úti, er þá ekki
svolítið sérstakt að þér sé í framhaldi bannað að giftast hon-
um? Það meikar eiginlega bara engan sens. Eins og reyndar
svolítið margt þessa dagana.
Betri
helming-
urinn
Pistill
Bjarni Haukur
Þórsson
’
Ég meina ef þú
lítur á giftingu
sem bisness þá
er í raun kirkjan að
ýta frá sér bisness með
þessum hætti. Ætti
kirkjan ekki frekar að
opna þetta bara uppá
gátt og leyfa hverjum
sem er að gifta sig?