SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Qupperneq 38

SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Qupperneq 38
38 23. maí 2010 H efði einhver spurt mig fyrir fáeinum vikum hvort ég teldi líklegra að ég ætti fyrr eftir að standa á tindi Esjunnar eða Zugspitze, hæsta fjalls Þýskalands, hefði ég væntanlega veðjað á Esjuna enda bú- settur við rætur hennar. Það fór á annan veg. Örlögin höguðu því nefnilega þannig að ég virti fyrir mér útsýnið í nepjunni á tindi Zugspitze fyrr í þessum mánuði. Vissulega svolítið vandræðalegt fyrir Kjal- nesinginn en á móti kemur að það eru hvorki áætlunarferðir með lest né kláfi upp á Esjutinda. Kannski Jón Gnarr og hans fólk ættu að taka það mál upp. Þess má geta að um þessar mundir eru áttatíu ár frá því fyrsti kláfurinn sem ferj- aði fólk upp á Zugspitze var tek- inn í notkun en hann þótti mikið undur á sinni tíð. Hæsti tindur Zugspitze er í 2.962 metra hæð yfir sjávarmáli. Hvorki meira né minna. Og útsýnið eftir því. Óvíða ku fegurra í fjallasal. Zugspitze er syðst í Bæj- aralandi við landamæri Austurríkis og á góðum degi sést til hinna ýmsu landa, Austurríkis, Ítalíu og Sviss. Því miður er lágskýjað meðan ég stend á tindinum og fátt annað að sjá en fjöll og skýhnoðra. Gestgjafinn, Tanja að nafni, fullvissar mig og ferðafélaga mína um að útsýni yfir München, höfuðborg Bæjaralands, sé alla jafna mikilfenglegt og auðveldlega hægt að fylgjast með gangi mála í kappleikjum á Allianz-leikvanginum. Bara ekki í dag. Það er ekki um annað að ræða en taka hana trúanlega, einkum eftir að hún sýnir okkur myndir máli sínu til stuðnings. Fjallstjórinn á fundi Tanja er að hlaupa í skarðið fyrir fjallstjór- ann sem átti að vera með okkur en festist á fundi. Tilkomumikið starfsheiti „fjall- stjóri“ og lofa ég því hér með að sækja um það starf losni það einhvern tíma hér heima – nema þá helst á Eyjafjallajökli. Fjallstjórinn þar væri eflaust búinn að segja starfi sínu lausu núna. Ég hef aldrei komið til Aust- urríkis – alltént ekki í þessu lífi – og nem staðar við kirfilega merkta hurð á landa- mærunum. Tek duglega í hana og hristi. Allt kemur fyrir ekki, Austurríki er lokað í dag, enda þótt landamæravarsla hafi lagst af með Schengen-samkomulaginu. Gott og vel, Tírol bíður þá bara betri tíma. Eftir að hafa stjáklað um stund á útsýn- ispallinum á tindi Zugspitze höldum við sem leið liggur inn í München-húsið sem Þýski alpaklúbburinn reisti um þarsíðustu aldamót. Heldur rólegt er þar þennan morgun en alla jafna verður ekki þverfót- að fyrir ferðamönnum. Og stórmenni. Rolling Stones stungu þarna við stafni í fyrra og fyrir Evrópumeist- aramótið 2008 var Zugspitze undir iljum Það er engu líkt útsýnið af tindi hæsta fjalls Þýskalands, Zugspitze í Bæjaralandi. Þar er líka draumaland skíðaiðkenda og fjallagarpa, auk þess sem vel er gert við matgæðinga og ráð- stefnufólk. Og hvergi í Þýskalandi ganga fleiri upp að altarinu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Landamæri Austurríkis voru lokuð þennan dag. Góð aðstaða til skíðaiðkunnar er á Zugspitze. Umhverfi veitingastaðanna SonnAlpin og Glergarðsins er stórfenglegt. þýski landsliðshópurinn í knattspyrnu kynntur í glersal miklum sem hlotið hefur heitið Panorama-stofan. Hún er almennt séð vinsæll vettvangur fyrir fundi og ráð- stefnur. Í meira en heila öld hefur hátindurinn líka verið veðurstöð sem safnar í seinni tíð einnig upplýsingum fyrir Alþjóðlegu loft- hjúpsvaktina. Vinsæl kapella Í stað þess að snæða hádegisverð í Pano- rama-stofunni höldum við með kláfi nið- ur rúma 350 metra á næsta áningarstað í fjallinu, Zugspitzplatt. Komum þar á hreint prýðilegan veitingastað sem kallast SonnAlpin. Ég ræðst til atlögu við einhverja kalkúnakássu sem bragðast ágætlega. Það er önnur saga. Við hlið- Ferðalög

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.