Morgunblaðið - 27.08.2010, Síða 26

Morgunblaðið - 27.08.2010, Síða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2010 ✝ Ágúst M. Sig-urðsson fædd- ist á Akureyri 15. mars 1938. Hann lést á líknardeild LSH í Kópavogi 22. ágúst 2010. Ágúst var sonur hjónanna sr. Sig- urðar Stef- ánssonar, síðar vígslubiskups Hólastiftis, f. 10. nóv. 1903, d. 8. maí 1971, og eiginkonu hans frú Maríu Ágústsdóttur, f. 30. jan. 1904, d. 18. ágúst 1967. Systkini síra Ágústs eru Sigrún, sjúkraliði og myndlistarkona, f. 28. ágúst 1929, og Björn, fyrrverandi lög- regluvarðstjóri, f. 9. maí 1934 og Rannveig, kennari í Svíþjóð, f. 6. apríl 1940. Ágúst kvæntist 8. jan. 1965 eftirlifandi eiginkonu sinni, Guð- rúnu L. Ásgeirsdóttur, fyrrver- andi skólastjóra og bókasafns- kennara, f. 14. nóv. 1940. Börn þeirra eru Lárus S. Ágústsson, verkfræðingur, f. 9. ágúst 1965, og María Ágústsdóttir, prestur, f. 20. feb. 1968. Lárus er kvænt- ur Signe Gjerlufsen f. 24. maí 1967, verkfræðingi og kennara, og börn þeirra eru Stefan Lárus, tíma á Prestbakkaárunum. Sr. Ágúst var formaður Félags fyrr- um þjónandi presta og stjórnaði fundi félagsins í síðasta sinn sunnudaginn 15. ágúst sl. Fræði- og ritstörf síra Ágústs eru umfangsmikil. Þegar um tví- tugt hélt hann sitt fyrsta út- varpserindi, en þau urðu tæp- lega 200. Landskunnur varð hann fyrir þátttöku sína í spurn- ingakeppnum í útvarpi og sjón- varpi á 7. og 8. áratug síðustu aldar. Fjórar bækur undir heit- inu Forn frægðarsetur komu út á árunum 1976 – 1982, og bóka- flokkur um kirkjur á Vest- fjörðum var gefinn út árin 2005 –2008. Níunda bók sr. Ágústs, Öll þau klukknaköll, kom út í fyrra, að hálfu byggð á sam- nefndum útvarpsviðtölum við prestkonur frá vetrinum 2008- 2009. Viðtölin voru liður í gagnasöfnun sr. Ágústs fyrir Prestsetrasafnið á Útskálum, en hann skrifaði um fleiri hundruð prestsetur fyrir safnið. Tíunda bókin kemur út í byrjun árs 2011, en eiginkona sr. Ágústs er meðhöfundur að síðustu bókum hans. Þá hafa birst fjöldamargar greinar eftir sr. Ágúst í blöðum og tímaritum, síðustu árin í Heima er bezt. Síðustu árin voru þau hjónin búsett að Hagamel 14 í Reykjavík. Útför síra Ágústs fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, föstudaginn 27. ágúst 2010, og hefst athöfnin kl. 13. f. 17. maí 1991, Maria, f. 8. júní 1994, Julie, f. 8. júní 1994 og Mathi- as, f. 20. júlí 1997. Eiginmaður Maríu er Bjarni Þór Bjarnason f. 14. nóv. 1962, prestur, og börn hennar fjögur, Kolbeinn, f. 24. sept. 1994, Ragnhildur, f. 10. des. 1996, Guðný Lára, f. 27. maí 2004 og Guðrún María f. 4. okt. 2005. Ágúst varð stúdent frá MA 17. júní 1959 og cand. theol. frá Há- skóla Íslands 3. júní 1965. Lauk réttindanámi til þjónustu í dönsku kirkjunni 1981. Vígður til prests á Hólum 20. júní 1965 til þjónustu í Möðruvallapresta- kalli. Sóknarprestur í Vallanesi á Völlum 1966-1970, í Ólafsvík 1970-1972 og á Mælifelli í Skaga- firði 1972-1983. Sendiráðsprest- ur í Kaupmannahöfn 1983-1989. Sóknarprestur á Prestbakka í Hrútafirði 1989 uns hann lét af störfum vegna versnandi park- insonveiki árið 2002. Gegndi sr. Ágúst fjölda trúnaðarstarfa, m.a. í sýslunefnd Skagafjarð- arsýslu og var prófastur um Hann Ágúst bróðir andaðist á líknardeild Landspítalans Kópavogi þ. 22. ágúst sl. Ég er knúin til að kveðja þennan ástkæra bróður minn með nokkrum orðum. Við andlát Ágústs er eins og heimurinn minnki, svo stór spor skilur hann eftir sig. Hann er og verður öllum sem áttu því láni að fagna að hafa fengið að kynnast honum, ógleymanlegur. Það verða aðrir, sem munu minnast hans sökum gáfna hans og fræðimennsku og læt ég þeim það eftir. Mig langar að minnast hans sem bróður og besta vinar. Við áttum það sameiginlegt að vera talsvert lík. Við vorum bæði af- skaplega hláturmild, sérstaklega þegar við vorum bara tvö. Þá gátum við endalaust talað um æskuheimili okkar á Möðruvöllum í Hörgárdal. Ég var 9 ára, þegar hann fæddist. Það var á Akureyri sem hann leit dagsins ljós. Honum til leiðinda alla tíð var, að hafa ekki fengið að fæðast á gamla virðulega prestssetrinu. En í brunanum mikla 1937 brann íbúð- arhúsið heima til ösku og ekkert stóð eftir nema rústir einar, við fluttum inn á Akureyri eftir brunann og bjuggum þar fram á næsta vor. Ágúst var yndislegur lítill drengur, sem hafði áhuga á öllu umhverfinu. Hann var alltaf viljugur, samvisku- samur og fljótur til. Ég man pabba segja: „Það er svo gott að vekja hann Ágúst. Hann er kominn upp í fjós áð- ur en ég veit af og mjólkurbrúsarnir tilbúnir á stundinni.“ Hann bróðir minn var mikið snyrtimenni og ávallt vel klæddur. Synir mínir nutu leiðsagnar Ágústs, hann var þeirra lærifaðir. Oft fór kennslan fram uppi í fjósi og við bú- störfin. Sigurður elsti sonur minn var sérlega hændur að honum. Eins var með Stefán minn, sem naut þeirra forréttinda að vera fæddur á sama stað og Ágúst. Eftir að Ágúst kom suður til að hefja nám í guðfræðideildinni, bjó hann hjá afa á Framnesveginum. Hann átti því láni að fagna að kynn- ast sínum lífsförunaut, henni Guð- rúnu L. Ásgeirsdóttur. Það var eins með þau og með pabba og mömmu, þau voru alla tíð ástfangin, og er það mikil guðsgjöf á langri leið. Hún Guðrún varð strax mjög handgengin foreldrum mínum. Þegar pabbi dó árið 1971, var hann búinn að festa kaup á Framnesvegi 26. Þá voru synir mínir orðnir 5 og mig vantaði ekkert nema þak yfir hópinn minn. Þá var það Ágúst enn einu sinni, sem gerði mér það kleift með því að gefa mér sinn hlut í húsinu. Það er stærsta gjöf, sem mér hefur verið gefin. Eina sem mig vanhagaði um, var fast land loksins. Ekki gerðu þau það endasleppt, því í tvígang var Óli minn hjá þeim. Fyrst í Vallanesi og rifjar hann enn upp ævintýrin með bróður mínum þegar hann fór að húsvitja. Síðan var hann aftur hjá þeim í Ólafsvík, þaðan sem hann lauk skyldunámi. Svona samtvinnað- ist líf sona minna og Ágústs bróður míns, Guðrúnar konu hans og barna þeirra. Hvar sem þau voru, hérlend- is eða erlendis, var alltaf opið hús. Það er yndislegt að fá að vera sam- ferða slíku fólki öll þessi ár. Aldrei mætt nema gleði og góðu í húsum þeirra. Nú kveð ég þig, elsku besti bróðir minn. Þú tekur á móti mér, þegar minn tími kemur. Blessuð sé minning þín. Þín systir, Sigrún. Kær mágur er látinn eftir langa baráttu. Lífsviljinn var mikill en lokastundin varð ekki lengur umflú- in. Kynnin eru orðin löng. Það var fyrir 46 árum sem þau Guðrún Lára systir mín og Ágúst kynntust og ákváðu að ganga saman ævigöng- una. Fyrsta veturinn, á meðan Ágúst lauk guðfræðinámi sínu, bjuggu þau á æskuheimili okkar. Að námi loknu fluttust þau norður í Möðruvelli í Hörgárdal og Ágúst gerðist aðstoð- arprestur föður síns fyrst um sinn. Nokkru síðar fluttust þau í Vallanes á Héraði ásamt Lárusi Sigurbirni, syni sínum, en María dóttir þeirra fæddist fyrir austan. Síðar lá leið þeirra til Ólafsvíkur, í Mælifell í Skagafirði, þaðan til Kaupmanna- hafnar og loks í Prestbakka í Hrúta- firði. Á öllum þessum stöðum unnu þau hjónin mikið og merkilegt starf, bæði innan safnaðanna sem og við menningarmál viðkomandi héraða. Heimili þeirra var öllum opið og risna og gestakomur þar í miklum mæli. Við þessi tímamót er ljúft og skylt að þakka fyrir móttökur allar og umhyggjusemi þeirra hjóna í minn garð og minna. Prestsverk innti Ágúst af hendi við heimili mitt af ljúfmennsku, fyrst við brúðkaup okkar hjóna og síðan við skírn son- anna þriggja. Guðrún og Ágúst hafa verið ákaf- lega samstiga í leik og starfi. Unaðs- reitur þeirra hin síðari ár var í Bakkabúi, sumarbústað þeirra í Borgarfirði. Þar vildu þau dvelja helst allt sumarið. Eftir að föstu starfi lauk og þrátt fyrir vaxandi vanheilsu Ágústs voru þau mikið á ferðinni, ýmist í heimsóknum til Danmerkur til sonarins og fjöl- skyldu hans, í siglingum eða í vett- vangsferðum í kirkjur landsins vegna skrifa Ágústs um kirkjur og kirkjustaði. Guðrún var hans hægri hönd í skrifunum, hann las fyrir og hún sló inn á tölvu eða skrifaði eftir handriti hans. Hin síðari misseri var Ágúst sem í kapphlaupi við tímann, því að tímaglasið var að renna út, og skrifaði hverja stund sem hann mátti. En eigi má sköpum renna. Nú er kominn tími kveðju og þakkar. Guð blessi minningu Ágústs Sigurðsson- ar. Sigrún V. Ásgeirsdóttir. Ég sendi kveðju til Ágústs, vinar míns og mágs. Þessa skilningsríka manns á sviði náttúrunnar, sem um- lykur okkur öll, þess sem við teljum vera raunveruleika okkar, en þekkj- um ekki nema að takmörkuðu leyti, því bæði verkfærin og þjálfunina skortir. Það sem tengdi okkur Ágúst saman frá byrjun var óskin um að fá svör við ýmsum spurningum, sem margir aðrir voru hættir að spyrja. Nútímamenningin sér um það. – Ég kveð hagleiksmanninn og náttúrubarnið, sem vann sér smám saman stað nálægt hjarta mínu, þrátt fyrir allt veraldlegt, eins og sagt er. Nú á þessum tímamótum, er mér það ofarlega í huga, þegar ég fékk forðum skilaboð „að handan“ frá afa mínum í Ási, í þá veru að „hann hefði haft rétt fyrir sér“ og með „hann“ var Ágúst meintur. Þannig vildi til að þeir tveir hempu- klæddu voru ósammála um vissa þætti trúarinnar á meðan þeir voru stutt samskipa í Ási. Niðurstaða fékkst ekki, en skilaboðin til mín voru tilraun í þá átt. Í raun sagði að- ferðin við skilaboðin mest um það um hvað ósamkomulagið fjallaði. Þá vil ég einnig minna á innlegg Ágústs í kirkjusögu Íslands. Þau er ófá ritin og bækurnar, sem hann vann á því sviði, oft með Guðrúnu Láru systur minni og enda þótt slík fræði séu yfirlit yfir liðna tíma og mitt sérsvið snúi meira að framtíð- inni, tókst þeim hjónunum stundum að virkja mig, ef skortur var á mynd- efni. Ég vil nota tækifærið og flytja Guðrúnu systur og börnum þeirra, Maríu og Lárusi auk makanna og barnabarnanna, innilegar samúðar- kveðjur frá okkur Manuelu Guðrúnu héðan frá Brieselang í Norður- Þýskalandi. Einar Þorsteinn. Árið 1983 urðu prestaskipti í Kaupmannahöfn, nýr prestur, séra Ágúst Sigurðsson, kom sem prestur íslenska safnaðarins í Kaupmanna- höfn. Eitt af hans fyrstu verkum var að ferma son minn Valdemar og seinna annaðist sr. Ágúst allar at- hafnir fyrir fjölskyldu hans. Lítið grunaði mig þá að nýi presturinn og kona hans mundu verða svo góðir vinir mínir og minnar fjölskyldu, nú í 30 ár. Það var auðséð okkur í söfnuðin- um strax þegar þau hjón fóru að starfa að þar fóru samhent hjón og líka kát og skemmtileg. Í önnum daglegra starfa skiptu þau með sér verkum og m.a. höfðu þau uppi á mörgu eldra fólki sem hafði ekki hitt landa sína í ótrúlega mörg ár. Við kirkjukaffið og önnur tækifæri feng- um við líka að kynnast því hversu fróður Ágúst var, því ósjaldan sagði hann frá áhugaverðum efnum úr sögu Íslendinga í Höfn auk annars fróðleiks um Íslendinga bæði heima og erlendis. Íslenskir sjúklingar á ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn fóru heldur ekki varhluta af um- hyggju þeirra hjóna því oftar en ekki tóku þau sjúklinga sem máttu fara í helgarleyfi heim til sín um helgi. Kirkjukórinn efldist líka mjög við komu þeirra og það var alltaf glatt á hjalla á söngæfingunum sem voru á heimili þeirra í Jónshúsi, alltaf boðið í kaffi og glatt á hjalla. Eins síðar heima á Fróni í afmælum og við önn- ur hátíðleg tækifæri. Í Kaupmanna- höfn var aldrei gestalaust á heimili þeirra og gestir í öll mál, einn daginn þegar við kirkjukórsfélagar í Kaup- mannahöfn tókum á móti kirkjukór frá Íslandi á prestsheimilinu komu margir aðrir gestir og svo fór að prestsheimilið tók á móti áttatíu manns þann daginn. Ferð ásamt séra Ágústi til Íslands með hóp eldri borgara til vikudvalar á elliheimilinu í Hveragerði er líka eftirminnileg. Strax ári áður en þau hjón fluttu heim aftur eftir sex ára starf var eldra fólkið farið að kvíða fyrir brottför þeirra, hver mundi nú koma með íslensku blöðin sem Ágúst eða Guðrún Lára keyrðu á milli og hver mundi nú fara í Dalles Varehus eftir heklugarninu eða bara koma við eða hringja og spjalla smástund. Það voru mikil viðbrigði eftir erilinn í Kaupmannahöfn að flytja í Hrúta- fjörðinn. Á fyrstu árunum eftir heimkomuna héldum við hópinn kór- félagarnir og komum á Jónsmess- unni í Hrútafjörðinn og séra Ágúst og „strákarnir“ í kórnum hlóðu bál í fjörunni og svo var grillað og skemmt sér fram eftir í bjartri sum- arnóttinni. En tíminn leið og fólk dreifðist um landið eins og gengur en þegar Ágúst skírði elstu dóttur Valdemars sonar míns komu kórfélagar úr Kaupmannahafnarkórnum saman á ný og okkur til mikillar gleði sungu þau undir stjórn séra Maríu við at- höfnina sem var haldin í Dómkirkj- unni í Reykjavík. Við komum honum svo að óvörum og sungum við messu hjá honum á 60 ára afmælisdaginn hans. Það er mikil gæfa að hafa fengið að njóta vináttu þeirra og hlýju öll þessi ár. Elsku nafna mín; ég, Valdemar, Sigrún og dæturnar fimm og Ásta dóttir mín senda þér, Lárusi, Maríu og þeirra fjölskyldum samúðar- kveðjur. Guð geymi ykkur öll. Guðrún Valdemarsdóttir. Enginn veit um ævilokin öðrum fremur enginn veit hver aftur kemur, enginn veit hvar staðar nemur. (Draumvísa Snæbjarnar í Hergilsey.) Þegar vinur til margra ára kveður er skarð fyrir skildi. Í raun og veru getur enginn fyllt það skarð, þegar fólk er komið á efri ár. Við sr. Ágúst vorum vinir og síðar starfsbræður allt frá skólaárum. Löngum var þó vík milli vina því hann var prestur í öðrum landshlut- um og í Danmörku meðan ég var í Borgarfirði. Þó endaði þetta með því, að við urðum nágrannaprestar, að vísu sitt hvorum megin Holta- vörðuheiðar. Fjölgaði þá samfund- um, ekki síst er þau hjón, Ágúst og Guðrún, eignuðust sumarhús í landi Stóra-Fjalls í Borgarfirði. Þar undu þau löngum stundum á Bakkabúi sínu. Oft lögðum við hjónin leið okk- ar þangað í hásumardýrðinni enda stutt leið úr Stafholti. Og jafnan var okkur tekið með kostum og kynjum, enda þau hjón alkunn að gestrisni og greiðasemi. En nú eru þessir samfundir á enda. Síðustu árin urðu honum erfið, veikindi sóttu að með tilheyrandi sjúkrahúslegum. Og nú er hann allur og falinn dýrð þess Drottins, sem bæði gaf og tók. Þjónn hans var hann. Það fór ekki hjá því, að sr. Ágúst yrði minnisstæður vinum sínum og samferðafólki. Hann var ágætlega máli farinn og orðhagur og gat fyr- irvaralaust sett á langar tölur ef svo bar undir. Þá var hann mjög minn- ugur og fróður, einkum þó um kirkjur og staði og persónusögu þeim tengda eins og skýrt kemur fram í ritverki hans Forn frægðar- setur auk fleiri rita sem hér verða ekki talin. Efa ég að annar maður hafi búið yfir jafnmikilli þekkingu um síðari tíma kirkjusögu og hann. Þá var hann meðan heilsan leyfði mjög starfssamur eins og ritaskrá hans ber vitni um. Hugmyndaríkur var hann í besta lagi, ör í lund og var ekki að liggja á skoðunum sínum eða afstöðu. Fyrir vikið var veröldin stundum annaðhvort hvít eða svört. Hann málaði umhverfi sitt oft býsna sterkum litum. Þess vegna gat það tekið á að vera vinur hans. En vinur var hann vina sinna, tryggur og hugulsamur. Og nú skal honum þökkuð vinátta liðinna ára og samvistir marga glaða stund. Samúðarkveðjur mínar og Ás- laugar til Guðrúnar Láru, Lárusar og sr. Maríu, maka og barna- barnanna. Vertu Guði falinn, vinur. Brynjólfur Gíslason. „Ég fulltreysti einmitt því að hann, sem byrjaði í ykkur góða verk- ið, muni fullkomna það allt til dags Jesú Krists.“ (Fil 1.6) Sr. Ágúst Sigurðsson var gáfu- og atgervismaður sem vitnaði um hjálp- ræði Guðs í lotningu og fagnandi trú og skilur eftir sig vandfyllt skarð í fylkingu íslenskra presta. Hann var djúphugull og horfði hátt mót himn- esku marki. Trúin var honum grunn- þáttur í mannlífi og menningu sem varð ekki skilin nema gætt væri að sögu og lífsháttum. Ágúst var norðlenskur vígslubisk- upsson, fágaður í fasi og framkomu hvernig sem öldur risu. Ritverk hans og fræðistörf sýna glöggskyggni, ög- uð vinnubrögð og yfirgripsmikla þekkingu. Sr. Ágúst lýsir vel sögu fornra kirkjustaða og frægðarsetra, en ekki síður útkjálkakirkjum er voru mannlífi skjól í stormum og stríði. Stíllinn er ljós og litríkur. Út- varpserindi hans bera vott um þekk- ingu og fróðleik, og hann bar af flest- um að kunnáttu í spurningaþáttum útvarps og sjónvarps. Hvarvetna sem sr. Ágúst gekk að helgri prestsþjónustu vann hann verk sín af alúð og miðlaði fagurlega nærveru Guðs í orði og sakrament- um. Kennisetningar takmörkuðu ekki prédikun hans og trúarhugsun enda sá hann spor Krists víðar en innan kirkjuveggja og virti reynslu af æðri sýn og heimum. Þegar ég fór til framhaldsnáms í Danmörku leitaði ég í Jónshús þar sem sr. Ágúst var umsjónarmaður og einnig sendiráðsprestur. Þau Ágúst og Guðrún Ásgeirsdóttir eig- inkona hans tóku mér opnum örm- um, uppörvuðu og hvöttu. Samhent beittu þau sér fyrir fræðslu og menningarstarfsemi í Jónshúsi sem var fjölsóttur samkomustaður Ís- lendinga. Sr. Ágúst var samúðarríkur gagn- vart þeim er höfðu hrasað á hálum brautum enda vissi hann að öllum var hætt. Hann leitaði uppi sam- landa sína víða í Danmörku og skráði oft merka sögu þeirra. Hann var fyrirmannlegur og hagaði orðum sínum svo vel að dyr opnuðust greið- lega fyrir landa hans og flutti fyr- Ágúst Sigurðsson HINSTA KVEÐJA Síra Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum. Gleðigjafi, fræðari og vinur. Við þökkum af hjarta liðna samleiðartíð. Blessuð sé minning þín. Sjöfn og Björn Akranesi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.