Ný saga - 01.01.1987, Síða 96
AÐ VITA SANN Á SÖGUNUM
gagnstæðar hugmyndir, enda
ber hann ísland á bilinu 1000-
1200 saman við lönd Vestur-
Evrópu á sama tíma og sér
mikinn mun, annars vegar
vöxt bæja og borga og eflingu
kirkju og konungsvalds, hins
vegar kyrrstöðu.31
Mannfræðingurinn Durr-
enberger beinir athyglinni að
skorti á stöðugleika í íslenska
þjóðveldinu og telur að það
hafi verið lagskipt samfélag
án ríkis. Lagskipt var það af
því að sumir áttu land, aðrir
ekki, sumir voru voldugir,
aðrir valdalausir, jöfnuður-
þekktist ekki. Um þetta ritar
Durrenberger ma.: „Þannig
er lagskipt þjóðfélag án ríkis
eitt óstöðugasta stjórnar-
formið sem um getur" (,,Thus
the stratified society without
a state is one of the most
unstable of political
forms.")32 Jafnvægisskortur-
inn varð æ meiri á 11. og 12.
öld með aukinni lagskiptingu
og leiddi til upplausnar og
ófriðar. Eina lausnin til að
tryggja frið var ríkisstofnun
en á upplausnartíma 13. aldar
vildu ,,höfundar" íslendinga-
sagna að mati Durrenbergers
varðveita minninguna um
þjóðfélagsskipan 10. og 11.
aldar „til að samsama óvissu
samtímans fullvissu frá liðn-
um tíma" ("to identify the
confusions of the present
with the certitudes of the
KIRKJUR Á
HÓLUM. Kirkjan
sem sýnd er
lengst til hægri er
núverandi Hóla-
kirkja en sú sem
er lengst til vinstri
stóð á bilinu 1395-
1624 og var tæpra
50 m löng. Hörður
Ágústsson telur
allar líkur benda
til að kirkja Jóns
Ögmundssonar
(1106-21) hafi verið
sömu stærðar og
gerðar og að
kirkjan sem reis í
Skálholti upp úr
1153, kennd við
Klæng biskup,
hafi verið svipuö.
Þetta voru stærstu
timburkirkjur á
Norðurlöndum, og
þótt vlðar væri
leitaö, og benda
til að staða ís-
lensku kirkjunnar
hafi verið allsterk
á f.hl. 12. aldar.
4--------X-------1--------X-------X-------X “
past"). Durrenberger telur að
sögurnar geti veitt vitneskju
um félagsleg kerfi eða stofn-
anir á tímanum sem þær
lýsa.33
Durrenberger er sammála
Byock um að kristni og kirkja
hafi ekki breytt miklu 1000-
1200, Byock leggur áherslu á
að kirkjan hafi verið undir
stjórn goða en Durrenberger
segir að þá fyrst geti kirkja
orðið sterk að hún njóti stuðn-
ings ríkisvalds. En hann ritar:
„Vilji menn halda fram rök-
um um samfellu, má finna
þau. Vilji menn halda fram
rökum um ósamfellu er held-
ur enginn skortur á þeim."
(„If one wants to argue for
continuity, one can find
evidence for it. If one wants to
argue for discontinuity, there
is plenty of evidence for that
too.")34 Eins og áður gat telur
hann að efnahagslegt og
félagslegt jafnvægi hafi rask-
ast mjög á 11. og 12. öld þar
sem skort hafi ríkisvald.
Turner er sömu skoðunar og
hann telur, ólíkt Byock, að
smádeilur („feuds") hafi iðu-
lega orðið stórdeilur og
reynst óleysanlegar nema
með miklum vígaferlum því
að kerfið sem ætlað var að
leysa deilur og tryggja frið
hafi verið gallað og skortur á
miðstjórn tilfinnanlegur.35
Engu að síður telja þeir
Turner, Miller og Durren-
berger að hið félagslega og
pólitíska kerfi hafi haldist í
aðalatriðum á 11. og 12. öld og
því sé rétt lýst í íslendinga-
sögunum. Þeir virðast vera
sömu skoðunar og Byock um
þetta.
Mörg álitamál
Sagnfræðingar hljóta að hafa
ýmsar efasemdir um þá notk-
un íslendingasagna sem hér
var lýst. Ritunartími sagn-
anna er mikið vandamál. Sem
dæmi má nefna að Víga-
Glúms saga var td. vanalega
talin hafa verið rituð nálægt
1240 en árið 1980 var sett
fram kenning um að hún hafi
ekki verið rituð fyrr en eftir
1313!36 Og ekki er mjög langt
síðan menn sannfærðust
almennt um að Fóstbræðra
saga hafi verið rituð seint á
13. öld en ekki nálægt 1200
eins áður var talið líklegast.37
Vitneskja um þjóðveldið er
trúlega því ótraustari í sögun-
um sem lengra hefur liðið frá
lokum þess árið 1262 til
ritunartímans og áhrif
konungsvalds og nýrra
stjórnhátta urðu meiri. En
margar af sögunum hafa lík-
lega verið settar á skrá uþb.
sem íslendingar gengu
Noregskonungi á hönd. Þá
hafði skipan goðorða raskast
algjörlega, alþingi hafði gjör-
breytt um svip frá því sem var
á 12. öld og óvíst að vorþing
hafi komið saman nema endr-
um og sinnum frá um 1190.
Byock telur samt að höfundar
íslendingasagna hafi vitað
hvernig þetta stjórnkerfi var
um 1180 eða svo og telur að
það hafi verið mjög líkt á 11.
öld og styðst um þetta við
Grágás. En mönnum reynist
örðugt að grípa þá gæs og
ákvarða hvernig helst megi
nota hana.
Álitaefnin eru mörg en hér
skal aðeins nefnt til viðbótar
að Jenny Jochens hefur sett
fram þá skoðun að íslend-
ingasögum sé ætlað að vera
siðferðisspeglar fyrir menn
13. aldar. Hún segir að í sög-
unum sé látið eins og frillulífi
hafi tæpast verið til á 10. og
11. öld þótt biskupar teldu
það hins vegar vera vandamál
94