Ný saga - 01.01.2000, Page 36
Rósa Magnúsdóttir
Mynd 6.
Kristinn E. Andrés-
son var frumkvöðuil
að stofnun Sovét-
vinafélagsins sem
lítamáásem und-
anfara MÍR og bók-
menntafélagsins
Máls og menningar.
Sitt sýndist
hverjum og
æstur mennta-
maður hrópaði
í fullri meiningu:
- Vinstri villa,
ekkert annað
en hrein og klár
vinstri villa
vinafélagið leystist upp í síðari heimsstyrjöld
m.a. vegna þess að félagið varð Kristni E.
Andréssyni of þröngur starfsvettvangur -
bókmenntafélagið Mál og menning, slofnað
1937, átti hug Kristins allan næstu árin.40
Félagsstarf var ætíð öflugt á vinstri væng
stjórnmálanna. Menningarmál skipuðu stór-
an sess og margir helstu menntamenn þjóðar-
innar léðu félags- og menningarstarfi vinstri
manna krafta sína. Halldór Kiljan Laxness,
Þórbergur Þórðarson, Kristinn E. Andrésson,
Halldór Stefánsson, Jóhannes úr Kötlum, Jón
Oskar, Jón úr Vör og Ólal'ur Jóhann Sigurðs-
son voru allir virkir í félagsstarfi fjórða ára-
tugarins. Hinir þrír fyrstnefndu voru í hópi
frumkvöðla og forystumanna MIR á sjötta
áratugnum.
Stofnfundur félagsins Menningartengsl Is-
lands og Ráðstjórnarríkjanna var haldinn í
Tjarnarkaffi sunnudaginn 12. mars árið 1950.
Fyrstur tók til máls Kristinn E. Andrésson og
rakti liann tildrög þess að félagið var stol'nað.
Hann minntist forvera MIR, Sovétvinafélags-
ins, og sagði litla þörf hal'a verið á slíkum fé-
lagsskap í síðari heimsstyrjöld þar eð
Sovjetríkin liefðu þá sjáll' kynnt sig með
baráttu sinni og hetjudáðum. Nú væri hins-
vegar járntjaldið svonefnda komið til sög-
unnar sem og Marshalláællunin og Atl-
antshafsbandalagið, og óhróðurinn um
Sovjetríkin aldrei verið meiri. Hinsvegar
væri íslendingum nauðsyn á friði og góðri
sambúð við allar þjóðir, og þessi einhliða
áróður færi í bága við arftekna þrá íslend-
inga á haldgóðri þekkingu á öðrum þjóð-
um og löndum.41
Undir lok ræðu sinnar lagði Kristinn til að fé-
lagið hlyti nafnið Mennlatengsl íslands og
Ráðstjórnarríkjanna, skammstafaö MÍR, en
orðið mír þýðir l'riður á rússnesku.42
Jón Múli Arnason, útvarpsþulur, jazzaðdá-
andi og sósíalisti, segir frá stofnfundi MÍR í
endurminningum sínum og umræðum um
nafn félagsins: „Orð fá ekki lýst þeirri miklu
undrun og fögnuði sem þessi opinberun vakti
meðal samkomugesta, höl'ðu margir orð á því
að þetta væri hreinlega geníalt og bráðsnjallt
og hrópuðu heyr til staðfestingar skoðunum
sínum.“ En ekki voru allir jafn ánægðir og
„djarfur maður með fastmótaðar skoðanir“
reis upp og mótmælti því að orðið mennta-
tengsl kæmi fyrir í heiti félagsins: „Þar þykist
ég kenna ávæning af þeim menntahroka sem
einatt loðir við menntamenn borgarastéttar-
innar og má ég frábiðja mér þann stimpil á
þessi nýju samtök vinslrimanna nú á miðri
luttugustu öld.“ Sitt sýndist hverjum og
„æstur menntamaður hrópaði í fullri mein-
ingu: -Vinstri villa, ekkert annað en hrein og
klár vinstri villa.“ Fundarstjóri sá þann kost
vænstan að gefa oröið laust og Jón Múli segir
að þvarg um grundvallarmuninn á mennta-
tengslum og menningartengslum hafi staðið í
hátt í klukkustund. Samstaða náðist síðan um
heitið Menningartengsl Islands og Ráðstjórn-
arríkjanna.43 Það breytir því þó ekki að flest-
ir félagsmenn voru menntamenn og starfsem-
in tók talsvert mið af því. Til dæmis miðaði
VOKS, systurféiag MÍR í Sovétríkjunum, að
mennta- og menningartengslum við erlend
ríki en önnur samtök sáu um tengsl við verka-
menn. MIR hafði þó síðar milligöngu um að
til Sovétríkjanna færu verkalýðssendinefndir
en töluverður þrýstingur var á félagið að
sinna verkalýðnum.
Halldór Kiljan Laxness tók einnig til máls
á þessum fyrsta fundi og hvatti til tímaritsút-
gáfu til að miðla „hlutlausri“ fræðslu um Sov-
étríkin.44 Markmið félagsins var skýrl. Þar eð
stjórnvöld sinntu ekki menningarsamstarfi
þjóðanna tveggja skyldi MÍR miðla þekkingu
á Sovélríkjunum til íslendinga. Stofnfundur-
inn var vel sóttur, setið var í hverju sæti,
margir stóðu og fjölmargir þurl'tu l'rá að
hverfa vegna þrengsla.45 Því var ákveðið að
halda framhaldsstofnfund 19. mars í Sljörnu-
bíói þar sem lög félagsins voru samþykkt og
kosið til stjórnar. Halldór Kiljan Laxness var
kjörinn forseti og Þórbergur Þórðarson vara-
forseti.46 Sendifulltrúi Ráðstjórnarríkjanna,
N. A. Gushev, mælti félaginu heilla að stjórn-
arkjöri loknu en að síðustu var rússneska
kvikmyndin „Þau hittust í Moskvu“ sýnd47
Sigvaldi Thordarson arkitekt veitli teikni-
slofu SIS forslöðu og til vilnis um hve hart var
tekist á í stjórnmálum þessa tíma er að hann
var rekinn úr starli fljótlega eftir að hann tók
sæti í stjórn MÍR.48 Einar Olgeirsson tók
þetta sem dæmi um „aðfarir lýðræðispostul-
anna“:
34