Ný saga - 01.01.2000, Page 44
Steinunn Jóhannesdóttir
Eftir fyrri umferðina leit út fyrir stórsigur FIS
(Front islamique du salut) sem andstæðing-
arnir kalla miðaldasinna en ol'last er talað um
islamista og integrista, það er að segja bók-
stafstrúarmennina sem vilja taka upp hin
heilögu lög islams, charia, og gera þau að lög-
um samfélagsins á ný.
Fyrstu frjálsu kosningar í 26 ár
Þegar boðað var til kosninga í lok desember
1991 var efnahagsástandið í landinu orðið
mjög bágborið. 26 ára flokkseinræði að sov-
éskri fyrirmynd var að koma landinu í þrot,
hrun kommúnismans í Sovétríkjunum og
Mynd 1.
Torg píslarvottanna,
áður Þrælatorgið
i Algeirsborg,
þar sem tæplega
400 Islendingar
voru seldir mansali
áríð 1627.
Austur-Evrópu hafði keðjuverkandi áhrif í
Alsír sem víðar í Afríku. Þjóðin sem hafði
háð svo grimmilegt stríð fyrir frelsi sínu und-
an nýlendustjórn Frakka var full vonbrigða
og þráði nýja frelsun (salut). í Alsírstríðinu
fyrra voru meginátökin af þjóðernislegum
toga milli hins valdalitla múslímsk-arabíska
meirihluta og hins stýrandi fransk-kristna
minnihluta með hernaðarmaskínu nýlendu-
veldisins að bakhjarli. En frækornum þeirra
átaka sem hófust 1992 var þegar sáð í stríðinu
gegn Frökkum. Þá þegar voru öfl í landinu
sem vildu ganga lengra í uppgjörinu við ný-
lendustefnuna en bara losa sig við yfirstjórn
Frakka. Vestræn menning var óvinurinn, vest-
rænni menningu fylgdi siðferðileg upplausn
samfélagsins, háskalegar kvenfrelsiskröfur og
niðurlæging lungu og trúar Múhameðs. Skoð-
anir sem þessar brutusl fram af fullum þunga
í hinni íslömsku byltingu í Iran 1979 og þang-
að lilu margir aðþrengdir Alsíringar vonar-
augum, þrált fyrir að þeir séu sunni-múslímar
en íranir síta-múslímar. íran bauð upp á fyrir-
mynd með rætur í þeirra eigin trúarbrögðum
á meðan bæði kommúnisminn og kapítalism-
inn áttu upptök hjá kristnum þjóðum sem
höfðu sínar „villukenningar" ýniist frá guð-
lausum gyðingum eins og Karli Marx eða
æðstu prestum hins alvalda markaðar. Alsír-
ingar höfðu fengið nóg al' stjórnaraðferðum
óvinanna. Og þá gerðist það sem frjálslyndu
fólki í landinu, sem talið var það nútímaleg-
asta í Arabaheiminum, þótti nær óskiljanlegt;
þjóðin, sem hafnaði einræði al' meiði sósíal-
ismans ætlaði að nota fyrstu frjálsu kosning-
arnar til að kjósa yfir sig nýja tegund einræð-
is, harðstjórn af toga trúarinnar. Aftur til upp-
hafsins 622-32. Margir urðu felmtri slegnir.
Upphaf hlóðbaðsins
Herinn var látinn grípa inn í. Hætt var við
seinni uml'erð kosninganna. Það varð upphaf-
ið að blóðbaðinu. Trúarróttæklingarnir, sem
voru rændir sigri sínum, gripu til vopna og
hófu skæruárásir á einstaklinga og hópa. Her-
inn svaraði af hörku. Nafngreind moska í
hjarta Alsírborgar varð aðsetur ofsatrúar-
manna sem sendu Iiðsmenn til þjálfunar hjá
Talibönum í Afgahnistan. Margar af þeim
hrottalegu aðferðum sem beitt hefur verið lil
að skapa skelfingu meðal almennings eru þó
gamalkunnar úr Alsírstríðinu. Margur mað-
urinn var gerður höfðinu styttri með sveðju
og þá sem nú var konum nauðgað áður en
þær voru myrtar og lík svívirt á margan máta.
Stríð er sóðalegt, einkum í návígi. En stríði
verður einhvern veginn að ljúka.
Verkefni Ahdelaziz Bouteflika
Og l'yrir háll’u öðru ári voru boðaðar forseta-
kosningar í landinu. Nokkrir kandídatar voru
kallaðir til en að lokum var aðeins einn í
framboði, Abdelaziz Bouteflika, gamalreynd-
42