Ný saga - 01.01.2000, Page 56

Ný saga - 01.01.2000, Page 56
Torfi H. Tulinius Mynd 5. Ríki Sturlunga eftir 1232. Að vera kvænt- ur konu af ætt Noregskonunga og eiga með henni skilgetin börn gat verið mikilvægt tromp í baráttunni um völd fyrir mann sem ekki var sjálfur af konungsættinni haft töluvert táknrænl gildi. Það er ljóst af Islendinga sögu að Snorri var óánægður með giftingu Sturlu og Sólveigar: „Fár varð Snorri um er hann frétti kvonfang Sturlu og þótti mönnum sem hann hefði til annars ætlað.“31 Hvað það var sent hann ætlaðist fyrir er óljóst, en líklegt má telja að hann hafi annað- hvort haft hug á því að eiga Sólveigu sjálfur eða gifta hana Jóni murti syni sínum. Augljóst er að hún var eftirsóknarverður kvenkostur, og má velta því fyrir sér hvort ein helsta ástæðan fyrir því hafi verið fyrrnefnt konung- legt blóð. Hvernig gat slíkt skipt máli í tog- streitu höfðingja um völd í landi sem ekki laut neinum konungi? Sagnfræðingurinn Andrew Lewis hefur sýnt fram á mikilvægi konunglegs ætternis í stjórnmálahugsun á Vesturlöndum á 12. og 13. öld með sérstakri hliðsjón af frönsku kon- ungsættinni. Völd konunga voru réttlætt með tilvísun til konunglegra forfeðra, en yfir kon- ungsættum hvíldi einhvers konar helgi.32 Þessi hugsun var einnig við lýði í Noregi, hvort sem hún hafði að öllu leyti borist með kristnum áhrifum eða átti að cinhverju leyti rætur að rekja til heiðinna viðhorfa.33 í bók sinni um afstöðu til konungsvalds í íslenskum kon- ungasögum sýnir Armann Jakobsson að við- líka hugsun var við lýði hér á landi.34 Þeir sem gátu sýnt fram á að þeir væru af konungaætl styrktu verulega samfélagsstöðu sína, því það er „óbrúanlegt bil milli konungsættar- innar og annarra ætta.“35 Svo virðist að marg- ir samtímamanna hans hafi nærri því litið á Jón Loftsson sem konung. Sverrir Tómasson hefur bent á orðasambandið „princeps patriæ" sem notað er um Jón í latínugerð Þorlákssögu helga og er skýrt nierki um þetta viðhorf, því á miðöldum var orðið „princeps“ einvörð- ungu notað um konunga.36 Að vera kvæntur konu af ætt Noregskon- unga og eiga með henni skilgetin börn gat verið mikilvægt tromp í baráttunni unt völd fyrir mann sem ekki var sjálfur af konungs- ættinni, en þótt Slurlungar gátu rakið ættir sínar til Ynglinga voru þeir ekki afkomendur Haralds hárfagra og því heldur ekki seinni konunga.37 Það var t.d. líklegra að Noregs- konungur veldi slíkan inann til að vera jarl. í Hirðskrá Magnúsar lagabætis, sonar Há- konar gamla, kemur skýrl fram að jarlstignin er fyrst og fremst ætluð þeim sem eru af sömu ætt og konungur eða nátengdir henni.38 Deila má um það hvort skyldleiki Sólveigar við Hákon hal'i verið nægilegur til að tryggja stöðu Sturlu. Þó var hann síst minni en skyld- leiki konungs og Gissurar Þorvaldssonar, sem síðar varð jarl, því Jón Loftsson var langafi Gissurar en afi Sólveigar, en konung- ur er sagður kalla Gissur frænda sinn í Þórð- ar sögu kakala.39 Það er freistandi aö ætla að kapphiaup um jarlóm yfir íslandi hafi þegar verið hal'ið á þriðja áratugi 13. aldar. Þá er líklegt að sú tegund táknræns auðmagns sem fólst í því að vera af konunglegunt ættum hafi verið far- in að vega þungt í virðingarstöðu hvers höfð- ingja. Þeir sem ekki voru svo heppnir að vera afkomendur Jóns Loftssonar hefðu því haft ástæðu til að tengjasl norsku konungsættinni í gegnum þennan íslenska sprota hennar. Sé þetta rétt, var Sturla kominn í mjög sterka slöðu þegar hann gekk að eiga Sólveigu.40 Því var brýnt að minnka samanlagl félagslegt auðntagn hans með öðrunt hætti. Þetta gæti einnig varpað ljósi á atvik sem átti sér stað þegar synir Þorvalds Vatnsfirð- ings réðust að bæ Sturlu og Sólveigar að Sauðafelli snemma árs 1229. Tilgangur þeirra var að drepa Sturlu og töldu margir að Snorri 54
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.