Ný saga - 01.01.2000, Síða 84
Mynd 1-2.
Frá vígslu Þjóðmenn-
ingarhúss. Á myndinni
til vinstri má m.a. sjá
Björn Bjarnason
menntamálaráðherra,
Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra, forseta Is-
lands, Óiaf Ragnar
Grfmsson, Salome
Þorkelsdóttir fyrrv.
forseta Alþingis og
Guðmund Magnús-
son forstöðumann
Þjóðmenningarhúss.
Á myndinni t.h. sést
forseti íslands á tali
við nokkra gesti:
Einar Sigurðsson
landsbókavörð,
Sigurð Helgason
forstjóra, Hjört Torfa-
son hæstaréttar-
dómara og Ragnheiði
Torfadóttur rektor.
Ólafur Rastrick
Hús með sál - þjóðarsál
Lesið í sköpun Þjóðmenningarhúss
M
annvirki", skrifaði Björn Bjarna-
son, menntamálaráðherra, í frétta-
pistli á heimasíðu sinni þann 23.
apríl síðastliðinn, „stuðla að því að skerpa
sjálfsmyndina og eru oft nauðsynleg til að
sanna fyrir einstaklingum, hvar þeir eru á vegi
staddir.“] Það mannvirki sem ráðherrann hef-
ur í huga er Safnahúsið við Hverfisgötu sem
nú hefur fengið nýtt nafn og nýtt hlutverk.
Þetta virðulega hús, sem áður hýsli ýmis söfn
þjóðríkisins, heitir nú Þjóðmenningarhús, og
er vettvangur sýninga á menningararfleifð
Islendinga.
Þessi glæsilega bygging, sem var reist á ár-
unum 1906-1908 að lilhlutan heimastjórnar-
innar, hefur nú gengið í gegnum rnikla endur-
nýjun, bæði í efnislegum og táknrænum skiln-
ingi. Salir sem í áratugi hafa verið lokaðir
öðrunr en starfsfólki Þjóðskjala- og Lands-
bókasafns hafa nú verið gerðir fallega upp og
opnaðir fyrir almenningi. Endurbæturnar
sýna og sanna að húsið er ein af tignarleguslu
byggingum höfuðborgarinnar.
Byggingin skapar virðulega umgjörð um
sýningarrými hússins sent eru af tvennum
toga. A annarri hæðinni er rými undir sýning-
ar sem standa eiga til lengri tíma. Á þeim eru
mest áberandi formleg tákn ríkisins eins og
skjaldarmerki, en einnig bækur. Á fyrstu hæð-
inni og í risinu eru svo stór rými fyrir breyti-
legar sýningar. Fyrstu sýningar hússins í þess-
um hluta eru af sögulegum toga, önnur rekur
sögu kristni á íslandi í 1000 ár og á hinni seg-
ir frá siglingum og landnámi norrænna manna
á miðöldum. Auk þess að vera sýningarhús
þjónar byggingin senr móttöku- og fundahús
fyrir stjórnvöid, en einnig fyrir fyrirtæki og fé-
lagasamtök senr geta fengið fundarsali þess
leigða.
I Þjóðmenningarhúsinu er lagður metnað-
ur í að skapa andrúmsloft virðuleika og fág-
unar. Með því að halda kynningar í þessu um-
hverfi sögu og menningar geta ríkisvaldið,
fyrirtæki og félög nýtt sér virðuleikann í sköp-
un ímyndar sinnar eða til að markaðssetja
varning sinn. Með því að helga húsið þjóð-
82