Ný saga - 01.01.2000, Side 93
„Fyrir þér ber ég fána ..
Danskir jafnaðarmenn vígðu sinn rauða
fána árið 1872. Árið áður höfðu þeir stofnað
flokk sinn, Den Internationale Arbejderforen-
ingfor Danmark, sem var deild Alþjóðasam-
bandsins í Kaupmannahöfn. Einkunnarorð
hans voru letruð með hvítum bókstöl'um:
Frihed, lighed, broderskab (frelsi, jal'nrétti,
bræðralag). Lögreglan bannaði að vígsla fán-
ans færi fram utanhúss og að rauði fáninn yrði
borinn í skrúðgöngu. Þess var krafist að fán-
anum yrði breytt lil samræmis við þjóðfánann
Dannebrog en því var hafnað. Fánavígslan
fór því fram innanhúss þann 14. júní 1872.2
Þegar verkalýðsfélög festu rætur á Skáni
upp úr 1880 einkenndist hreyfingin af hug-
myndum frjálslyndra borgaralegra afla sem
glöggt má sjá í gerð fánanna. Grunnliturinn er
oft blár, stundum hvítur, í bláurn og/eða gul-
um ramma og myndflöturinn gjarnan ofhlað-
inn myndefni. Hreinir litir og myndir af fólki
við störf eru einkennandi fyrir fyrstu fána
verkalýðsielaganna í Suður-Svíþjóð.
Fánar norskra verkalýðfélaga eiga margt
sameiginlegt með fánum og myndmáli hinna
Norðurlandanna og þari'engan að undra. Hitl
er öllu einkennilegra að norskir fánar hafa að
auki sérkenni sem gera þá l'rábrugðna fánum
annarra landa. í Noregi er önnur fánahefð en
í nágrannalöndunum Danmörku og Svíþjóð.
Þetta á bæði við um myndir, forrn fánanna og
litaval. Ef félög hafa kosið að koma á fram-
færi pólitískum boðskap á fánum sínum hafa
þau gert það með myndmáli eða texta í stað
litar. I Noregi er m. ö. o. ekki eins sterkt sam-
band og í nágrannalöndunum á milli rauðra
verkalýðsfélaga, í pólitískri merkingu, og
rauðra fána. Hlutfall rauðra stéttarfélagsfána
í Noregi er aðeins um 50%. Blár grunnlitur
kemur næstur og svo hvítir og grænir. Eini lit-
urinn sem varla sést á norskum stéttarfélags-
fánum er gulur litur. Margir norskir fánar
líkjast að því leyti enskurn fánum að myndir
þekja stóran hluta dúksins og efst á þver-
slánni er oft kappi með kögri.
Þegar á öndverðri 20. öld áltu samtök
verkafólks í Noregi að baki langa fánahefð.
Mynd 3.
Fánaborg á
Ingólfstorgi
1. maí.
91