Teningur - 01.04.1986, Blaðsíða 3
teningur
Vettvangur fyrir listir og bókmenntir
2. hefti apríl 1986
Til lesenda
Ritstjórn:
Eggert Pétursson
Guðmundur Andri Thorsson
Gunnar Harðarson
Hallgrímur Helgason
Páll Valsson
Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson
Utgefandi og ábyrgðarmaður:
Gunnar Harðarson
Kápa:
Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson
Prentverk:
Steinmark
Askriftarsími:
18417
Eerð til áskrifenda:
200 kr.
i iausasölu
250 kr.
Efni berist ritstjórn eða pósthólfi 1686
121 Reykjavík
^flt frumsamið efni er birt á ábyrgð
höfunda.
Teningur hefur yfirleitt hlotið góðar undirtektir og flestir áskrifendur hafa
staðið í skilum. Því er nú annað hefti ritsins komið út. Það fylgir svipaðri
stefnu og fyrsta heftið, en áherslan er að þessu sinni á myndlist og prósa-
skáldskap. Rætt er við Tuma Magnússon, Guðrúnu Tryggvadóttur og
Brynhildi Þorgeirsdóttur, og fjallað er um sýningar í Reykjavík á árinu
1985. Kynntar eru tvær sögur eftir franska rithöfundinn Marguerite Your-
cenar, en um hana sagði Michel Toumier í blaðaviðtali fyrir skömmu að af
öllum núlifandi frönskum rithöfundum ætti hún það helst skilið að hljóta
nóbelsverðlaun. Hún hefur verið lítt kunn hérlendis, aðeins birst eftir hana
ein saga í Tímariti Máls og menningar að því okkur er kunnugt. Afram er
haldið með prósaþætti Steinars Sigurjónssonar og svo fær Pétur Gunnars-
son sinn skerf af bókmenntaumræðunni að sögu hans allri. Ljóðaval fyrsta
Tenings þótti slakasta hliðin á honum að því er heyra mátti á skotspónum,
en þeim gagnrýnisröddum skal svarað með því að benda á öll hin tímaritin
sem óðfús eru að birta verk ungskáldanna. Teningur fylgir sveigjanlegri
stefnu í ljóðmálum en hann er þó ekki tímarit fyrir allt. Rétt er að geta þess
hér að nafn þýðanda ljóðanna eftir Robert Desnos í síðasta hefti féll niður,
þau þýddi Þór Stefánsson.
Ritstjórnin.
4 2 3 c 3 2
L; .'A'"
1