Húsfreyjan - 01.10.1964, Síða 26
MANNELDISÞÁTTÚR
Smurt
brauð
Smurt bruuð er auSvelt og skemmtilegt
að útbúa og það er ætíð vel þegið.
Smurt brauð er Iiægt að bera fram sem
sjálfstæða máltíð, þá eiga brauðsneiðarnar
að vera frekar stórar og áleggið mettandi.
Hinsvegar eiga brauðsneiðarnar að vera
litlar, lystaukandi og girnilegar séu þær
bornar fram sem forréttur. Smurt brauð
með kaffi á einnig að vera frekar lítið.
Brauðið þarf lielzt að vera dagsgamalt,
svo að auðveldara sé að skera það. Það er
mikilvægt að rétt brauðtegund sé undir
liverri áleggstegund. Bragðsterkt álegg eins
og t. d. reykt og saltað á að bafa á grófu
brauði, rúgbrauði eða flatbrauði. Álegg
með mildu bragði á að vera á bveitibrauði
eða kexi.
Skerið brauðið frekar þunnt með brauð-
sög, skerið eða klippið allar skorpur af
ínota þær í brauðsúpu eða brauðmylsnu),
áður en brauðið er smurt. Smjiirið þarf að
vera lint, smyrjið með breiðblaða, fjaður-
mögnuðum bnífi og vel út á allar brúnir.
Atbugið að smyrja ekki of þykkt, einkum
og sér í lagi, ef áleggið er feitt. í smjörið
er stundum blandað kryddi, einkum sé það
notað í samlokur eða brauðtertur.
Hafið allt álegg tilbúið, ferskt og vel
kalt, áður en farið er að útbúa brauðið.
Smyrjið fyrst allt brauðið og skiptið því
niöur. Hafið rakan klút, smjörpappír eða
plastic til að leggja yfir brauðið, svo að
það þorni ekki.
Leggið fyrst bragðlitla áleggið á brauð-
sneiðarnar og síðast það bragðsterka eins
og t. d. síld og reykt álegg. Atbugið að þvo
vel upp áhöldin eftir hverja áleggstegund,
svo sama bragð verði ekki af öllu. Áleggið
á alltaf að liylja brauðið. Síðan er skrautið
sett á brauðið og þess gætt að það yfirgnæfi
ekki og eigi vel við áleggiö.
Salöt á lielzt ekki að setja beint á braúð-
sneiðarnar, lieldur leggja salatblöð undir.
ÖII salöt þurfa að vera vel stíf, svo að þau
fljóti ekki út af brauðsneiðunum. Oft er því
betra að bera salatið fram í fallegri skál og
raða brauðsamlokum eða kexi í kringum
skálina, en setja það á.
Athugið að áleggið sé ekki of einhæft,
livað bragð snertir. Hafið t. d. ekki margar
tegundir af reyktu áleggi, þótt annað sé
kjöt og hitt fiskur. Sé ein áleggstegundin
mjög feit, verða hinar að vera magrar.
Hvað áleggstegundirnar eru margar
24
HÚSFREYJAN