Vera


Vera - 01.02.2001, Page 18

Vera - 01.02.2001, Page 18
að huaa að íramnaldsnámi? Tækniskóli ís 1 a n d s Háskóli aivinnu Wfsin C Frumgreinadeild ) Undirbúningur að námi á háskólastigi Einnig hraðferð fyrir stúdenta C Tæknifræði J Sjö anna nám sem lýkur með B.Sc. gráðu: Byggingatæknifræði Iðnaðartæknifræði Rafmagnstæknifræði Upplýsingatæknifræði Vél- og orkuti efknifræði C Iðnfræði J Þriggja anna nám að loknu iðnnámi og prófi úr undirbúningsdeild Tækniskóla íslands. Byggingaiðnfræði Rafiðnfræði Véliðnfræði C Iðnrekstraríræði ) Fjögurra anna diploma nám C Alþjóðamarkaðsfræði ) Tveggja anna B.Sc. nám að lokinni iðnrjélcstfarfræði c Vörustjúrnun I) Tveggja anna B.Sc. nám að lokinni iðnrekstrarfræði.. _________________________ C Meinatækni Atta anna B.Sc. nám ( Ronhjtinlækni D Atta anna B.Sc. nám tækniskóli íslands Höfðabakka 9, 110 Reykjavfk, sími 577-1400, fax 577-1401, www.ti.is umboð hafa til samningagerðar við kennara sem lfklegt væri að dygði til að leysa kjaradeiluna. Vel hefði mátt leysa þess kjaradeilu fyrir jól. Það er allt að því fárán- legt að 22. desember, sama dag og slitnaði upp úr við- ræðum við ríkið, gekk ég nánast beint inn á samninga- fund við Verslunarskóla íslands og við undirrituðum kjarasamning við skólann kringum miðnætti sama dag. Þegar þarna var komið sögu hafði nefnilega, þrátt fyrir pólitíkina, skítkastið og lætin út á við, verið unnin svo mikil vinna við endurskoðun kjarasamnings kennara, sem er langur og flókinn, og undirþúning tilfærslu kennara yfir í nýtt launakerfi, að vel hefði verið hægt að leggja í lokalotu. Það er engin leið að líta fram hjá því að samningamönnum ríkisins virtist í mun að framkalla viðræðuslit þarna tveimur dögum fyrir jól. Þetta þótti mér og þykir enn hafa verið hreint skemmdarverk." Kennarakaupið orðin þjóðarskömm „Ég held að starfandi kennurum hafi verið alveg ljóst að þessi kjaradeila snerist um annað og meira en launa- hækkanir til starfandi hóps. Þetta snerist um að koma grunnlaununum upp úr skurðinum og um það að fram- haldsskólarnir gætu haldið í sína kennara og ráðið sér nýja til þess að eðlileg endurnýjun ætti sér stað. Þessir kjarasamningar fólu í sér að verðleggja kennarastarfið í framhaldsskólunum upp á nýtt. Fólk í stéttinni skamm- aðist sín þegar það sagði frá þvf hvernig starfið var metið til launa enda var þetta þjóðarskömm. Sú leið- rétting launakjara sem samið var um þæði í kjarasamn- ingum framhaldsskólans og grunnskólans var lífsnauð- synleg og skiptir máli fyrir miklu fleiri en kennara. Framhaldsskólasamningurinn breytir mjög aðstöðu framhaldsskóla til þess að ráða nýja kennara til starfa og hækkar, eins og löngu var tímabært, eftirlauna- greiðslur lífeyrisþega. Segja má að samningurinn leið- rétti launamat á kennarastarfinu og endurspegli ef til vill réttari áherslur þ.e. á grunnstarfið við kennslu og námsmat. Að lokum lögðust allir ó eitt Ekki fór hjá því, þar sem samningaviðræður vegna framhaldsskóla og grunnskóla fóru fram á sama tíma, að menn veltu fyrir sér ástæðum mismunandi fram- göngu eða vinnubragða. Að mínu mati skilgreindu við- semjendur grunnskólakennara sig með allskýrum hætti sem fulltrúa grunnskólans sem stofnunar á meðan samninganefnd ríkisins gerði það framan af ekki. Þeir voru greinilega undir mikilli pressu frá sínum pólitísku yfirboðurum en á hinn bóginn voru samskipti samn- inganefnda aðila yfirleitt vinsamleg og kurteisleg, þrátt fyrir verulega fjandsamlegar yfirlýsingar ráðherra um kennara, samninga þeirra og forystumenn. í lokalotu samningagerðarinnar lögðust svo, þrátt fyrir allt sem á undan var gengið, samningsaðilar í samstarfi við menntamálaráðuneytið á eitt um að búa til heillegan og ítarlegan kjarasamning sem studdur er markmiðs-

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.