Vera


Vera - 01.04.2001, Page 21

Vera - 01.04.2001, Page 21
Helga Baldvinsdóftir Strákar Þegar rætt er um nektardans- staði er gjarnan bent á að þar gildi lögmálið um fram- boð og eftirspurn. Á meðan eftir- spurn sé eftir skemmtun af þessu tagi muni staðirnir verða við lýði. Athyglin beinist því að karlmönn- um og því sem þeir eru að sækjast eftir. Af hverju sækja þeir þessa staði? Þeir halda eftirspurninni uppi og ef þeir hættu að sýna stöðunum áhuga yrði ekki lengur rekstrargrundvöllur fyrir þeim. VERA náði tali af tveimur ungum mönnum, 20 og 21 árs og spurði þá nokkurra spurninga. Afhverju farið þið á strippstaði? Sl: Oftast er það nú þannig að maður endar bara þarna á ein- hverju fyllerfi. S2: já, en ég hef nú alveg farið edrú líka. og strippstaðir vatni og það var kalt. Hún hélt svo áfram að dansa og lét mig leggjast í sófann þar sem hún byrjaði að bíta mig í gegnum nærbuxurnar. Svo var þetta bara búið, ca. hálf- tíma einkadans. S2: ]á, ég keypti mér einu sinni þrjá dansa í einu og stelpurnar voru misgrófar. Sú fyrsta dansaði bara fyrir mig og svo fór hún. Næsta var örlítið grófari. Hún sett- ist ofan á mig, tók hendurnar á mér og lét mig þreifa á brjóstun- um sínum. Sú þriðja var grófust. Við fórum inn í annað herbergi þar sem ég settist í sófa og hún lagð- ist nakin á gólfið og byrjaði að fitla við leggöngin á sér. Mér fannst þetta hálfvandræðalegt svo ég leit undan en þá hló hún að mér og skipaði mér að horfa á sig. Er alltaf líkamleg snerting í einkadönsum? Báðir: Já. Hafið þið spjallað við einhverja af þessum stelpum? S1: Já, ég talaði einu sinni við konu frá Ungverjalandi sem átti 5 ára son og starfaði sem blaðamað- ur. Hún kom hingað til að vinna sér inn pening því launin hennar voru svo lág. S2: Þær koma hingað í mánuð og vinna sér inn alveg himinháar upp- hæðir, allt upp f tvær milljónir, og svo fara þær heim með andvirði margra ára launa. Ég talaði einu sinni við tvær breskar stelpur jafn- gamlar mér sem voru nýkomnar frá Ástralíu, ætluðu að vera hér í mán- uð og fara svo til Kanada og Þýska- lands. Þær voru bara að ferðast og töldu þetta frábæra leið til þess. Berið þið virðingu fyrir þeim? I hvaða tilgangi? Sl: Til að sjá naktar konur. S2: í fyrsta lagi þykir mér mjög gaman að fara á bar í góðra vina hópi og drekka bjór og ekki skemmir það fyrir ef gullfalleg dama dansar hálfnakin á meðan. Þannig að ykkur þykja þær gull- fallegar? SI: Tja, þegar maður er fullur þá gerir maður sér ekki grein fyrir þvf. Hafið þið keypt ykkur einka- dans, hvernig fór hann fram? Sl: Já, nokkrum sinnum. Seinast lenti ég í ótrúlegum aðstæðum. Stelpan byrjaði á þvf að klæða mig úr öllum fötunum nema nærbux- unum svo strippaði hún fyrir mig °g þá tók ég eftir því að hún hafði tekið með sér vatnsglas og kerti. Hún settist klofvega yfir mig og hellti yfir sig kertavaxi, það fór smá á mig og mér fannst það ótrú- lega vont. Síðan hellti hún yfir sig S1: Já, ég fæ allavega alltaf að káfa á brjóstunum á þeim. S2: Já, en eins og ég sagði áðan þá eru þær misgrófar. Hvað finnst ykkur um súludans, er hann erótískur? Sl: Menn æsast við misjafna hluti. S2: Ég fer allavega ekki á stripp- staði til að sjá erótískan listdans og ég stórefa það að fólk í Listdans- skóla Þjóðleikhússins komi þangað til að læra. En svona súludans er þó ekki á hvers manns færi, hann krefst liðleika og æfingar. Hafið þið orðið varir við vændi? S1: Nei, ég held að ég stundi ein- ungis þá staði þar sem ekkert vændi fer fram. S2: Nei, ekki neitt. Finnst ykkur allt í lagi að þið getið keypt ykkur nakta kona til að dansa fyrir ykkur? S1: Já auðvitað, þær eru að gera þetta af því að þeim þykir þetta skemmtilegt, auk þess sem þetta gefur vel í aðra hönd. Ég skil ekki af hverju ég ætti ekki að bera virð- ingu fyrir þeim. S2: Já já, ég veit til dæmis um eina stelpu sem setti sínar grundvallar- reglur. Hún svaf aldrei hjá viðskipta- vinum sínum, hvorki gegn gjaldi eða ekki, og hún sagði að það væri ekkert verið að pressa á sig. Hvað finnst ykkur um baráttu kvenna gegn strippstöðum? S: 1 Æi, þetta eru bara kerlingar að væla. S:2 Ég las einu sinni grein í Morg- unblaðinu um að konur sem eru á móti strippstöðum ættu að úti- loka eiginmenn sína frá fjölskyldu- boðum ef þeir hafa farið á stripp- staði. Þetta fannst mér alveg fá- ránlegt, eru það ekki nákvæmlega þessar konur sem tryllast þegar erlendir karlkyns stripparar koma til íslands? 21

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.