Vera - 01.04.2001, Page 23
Margar stúlknanna skulda glæpa-
samtökunum stórfé eftir flutninginn
og glata þannig frelsi sínu.
rannsóknir hafa sýnt að alvarlegu of-
beldi á borð við ítrekaðar nauðganir er
beitt til að brjóta vilja þeirra og sjálfs-
virðingu á bak aftur. Þá ánetjast marg-
ar þeirra ffkniefnum. Með slíkum gróf-
um mannréttindabrotum eignast
glæpasamtökin liðssveit kynlífsþræla
sem síðan eru gerðir út til starfa vfða
um lönd. í ljósi félagslegrar stöðu
stúlknanna og alls þess sem þær hafa
mátt ganga f gegnum verða hefð-
bundnar vangaveltur á borð við „frjálst
val" eða vilja þeirra til starfans næsta
merkingarlausar.
í Ijósi þess að Evrópuríki hafa verið
hvött til að berjast gegn verslun með
fólk telur Alþýðusamband fslands
nauðsynlegt að stjórnvöld upplýsi
hvaða aðgerðum er beitt til að grafast
fyrir um félagslega stöðu þeirra
stúlkna sem hingað koma til starfa á
nektardansstöðum og bakgrunn þeirra
erlendu fyrirtækja sem senda þær eða
sjá um að koma þeim í samband við
fslensku klúbbana. f þessu sambandi
hlýtur náið samstarf lögreglu- og fé-
lagsmálayfirvalda þvert á landamæri
að skipta sköpum. Þá hafa ríki verið
hvött til þess að veita þeim stúlkum
varanlegt hæli sem vitna gegn þræla-
höldurum sínum fyrir rétti. Það yrði
óafmáanlegur smánarblettur ef upp
kæmist að hér þrifist kynlífsþrælkun
skipulagðra glæpasamtaka í skjóli op-
inberra atvinnuleyfa. f skýrslunni til
Evrópuþingsins er fullyrt að verslun
með konur til kynlífsiðnaðar snerti öll
ríki Evrópusambandsins að meira eða
minna leyti. Engin dæmi um slíkt hafa
verið staðfest hér á landi en Ijóst er að
stjórnvöld verða að vera á varðbergi
gagnvart þessari nútíma þrælasölu
sem vex ár frá ári.
Að lokum vill Alþýðusamband ís-
lands minna á að í umræðum um
þessi mál sem önnur ber ASÍ að hafa í
huga hagsmuni alls launafólks og þau
markmið í jafnréttis- og mannréttinda-
málum sem verkalýðshreyfingin stend-
ur fyrir. ASÍ stendur því bæði vörð um
virðingu og réttindi þeirra erlendu
dansara sem hingað koma, kvenna al-
mennt og ekki síst þeirra ungu stúlkna
sem eru að hefja þátttöku á vinnu-
markaðnum. íslenskum stjórnvöldum
ber að verja sömu hagsmuni og því
vaknar sú spurning hvort einhverjar
rannsóknir séu fyrirhugaðar á þvf
hvaða áhrif skipulögð og viðurkennd
atvinnustarfsemi, þar sem seldur er
aðgangur að líkama kvenna, hefur á
viðhorf til kvenna og þar af leiðandi
stöðu þeirra á vinnumarkaði. Út-
breiðsla starfsemi af þessu tagi kann
að hafa áhrif á sjálfsmynd hópa
kvenna og þau viðhorf og það viðmót
sem viðkomandi mæta. Um þetta hef-
ur verið deilt og því eðlilegt að gengið
sé úr skugga um slíkt áður en teknar
eru ákvarðanir til frambúðar um það
hvað telst til opinberlega viðurkenndr-
ar atvinnustarfsemi. Slfkar rannsóknir
þarf að efla til muna enda eðlilegur
hluti af metnaðarfullri jafnréttisstefnu
stjórnvalda.
Halldór Grönvold sfirifstofustjóri ASÍ
Það yrði óafmáanlegur smánarblettur
ef upp kæmist að hér þrifist kynlífs-
þrælkun skipulagðra glæpasamtaka í
skjóli opinberra atvinnuleyfa.
Nýjung á matseðli meistarans
Bragðið þekkja allir en tilfinningin er ný. gerðu það gott með After Eight ístertunni
4* Q1 lílW^ 1 r- '1 >4 if t
Sími: 588 3700