Vera


Vera - 01.04.2001, Síða 25

Vera - 01.04.2001, Síða 25
Forvitni, löngun í kynlífstilbreytingu og þægindi, einmanaleiki og vandi við að mynda tengsl og vandi í samskiptum við maka geta verið ástæður þess að menn kaupa kynlífsþjónustu. Stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa unnið margar samþykktir og skýrslur um efnið og Evrópusam- bandið hefur staðið fyrir fjölmörg- um aðgerðum til að vinna gegn verslun með fólk í kynlífsþrældóm. Interpol hefur hafið viðamikla gagnasöfnun og skipulagt sig í samvinnu við Sameinuðu þjóðirn- ar og ESB. Það samstarf hófst upp úr fyrstu öldu innflutnings kvenna frá suðaustur Asfu. Alþjóðainn- flytjendastofnunin (IOM) sinnir einnig skýrslugerð og útgáfu upp- lýsinga, svo og Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu (OSCE). Samband milli eiturlyfja- smygls, peningajovættis og verslunar meo folk Evrópuráðið héit alþjóðlega ráð- stefnu um málið 1998, síðan voru haldnir vinnufundir og fleiri að- gerðir og unnið að skýrslu- og til- lögugerð á árunum 1998-2000 um efnið. í henni er lögð mikil áhersla á samræmdar aðgerðir allra aðila til að geta mætt með nógu áhrifa- ríkum hætti útsmognum aðferðum glæpahringja sem t.d. flytja kon- urnar ört milli landa til að forðast eftirlit. Einnig hefur komið f ljós að oft er mjög náið samband milli eiturlyfjasmygls, peningaþvættis og viðskipta með fólk til kynlífs- þjónustu eða -þrælkunar og kyn- lífsferðamennsku og misnotkunar barna. Lögð var áhersla á að fylgj- ast vel með netinu en þar fer fram mansal t.d. með tölvupósti þar sem beitan getur verið giftingartil- boð í nafni hjónabandsmiðlana sem hafa að yfirskini að koma pör- um saman, einnig með sölu á klámi og vændi. Um leið og karlarnir eru aðalkaupendur kynlífsþjónustu og eftir- spurn þeirra ræður markaðnum eru þeir flestir nafnlausir og ósýnilegir. Hverjir eru neytendur lcyn- lífsþjónustunnar? f skýrslunni segir einnig að mikil- vægt sé að rannsaka viðskiptavini eða neytendur kynlífsþjónustunnar til að skilja eftirspurnina og neysl- una en hún er aðalundirstaða þessara viðskipta með fólk. Mjög fáar rannsóknir eru til en Svíar og Norðmenn hafa safnað upplýsing- um um forsendur þess að menn kaupa kynlífsþjónustu. í þessum könnunum hefur komið fram að forvitni, löngun f kynlífstilbreyt- ingu og þægindi, einmanaleiki og vandi við að mynda tengsl og vandi í samskiptum við maka geta verið ástæður. Staðreyndin er samt sú að konur sem eru í svipuðum félagslegum eða tilfinningalegum aðstæðum og karlar kaupa sér ekki kynlífsþjónustu. Norsk könnun (Prior og Taksdal) sýnir að ástæður fyrir því að karlar kaupa kynlífs- þjónustu hafa breyst. Áður voru þær staðfesting á yfirráðum karls- ins en eftir breytingar í samfélag- inu eru þær nú fremur viðleitni til að ná aftur glötuðum yfirráðum. Um leið og karlarnir eru aðalkaup- endur kynlífsþjónustu og eftir- spurn þeirra ræður markaðnum eru þeir flestir nafnlausir og ósýni- legir. Erfitt er að mæla magn kyn- lífsþjónustunnar og hve yfirgrips- mikil hún er en nauðsynlegt er að það verði rannsakað. Einnig er mikilvægt að stunda fræðslu í þeim löndum sem stúlkurnar koma frá. Þar vita konur mjög lítið um hina raunverulegu lífshætti á vesturlöndum og mikið af rang- hugmyndum og goðsögnum eru í gangi. Sem dæmi má nefna að í skoðanakönnun sem gerð var hjá menntaskólastúlkum í Moskvu 1998 kom í ljós að framtíðar- draumar þeirra um störf voru að verða annað hvort fyrirsæta eða vændiskona. (S ° Aukin ökuréttindi Kennsla á leigu- vöru- og hópbifreið og vörubifreið með eftirvagn. Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga. (áfangakerfi) Reyndir kennarar og góðir kennslubílar. Aukið við atvinnumöguleikana. Hringið eða komið og leitið upplýsinga. Sími 567-0300 Námskeið fyrir almennt ökupróf B. réttindi, einnig fyrir ensku- og taílensku mælandi. Endurbætt kennsluaðstaða Frábærir kennarar Þarabakka 3 109 Reykjavík E-mail okusk,mjodd@simnet.is <fi> OKU SKOUNN IMJODD

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.