Vera


Vera - 01.04.2001, Síða 47

Vera - 01.04.2001, Síða 47
vera karla er svo óvanaleg, eru viðbrögð margra gagn- rýnenda að túlka þessa fjarveru sem hatur á karl- mönnum. Viðbrögð gagnrýnenda eru skiljanleg í karl- miðjuðu samfélagi okkar. Þeir vita hreinlega ekki hvernig bregðast á við kvenmiðjun Píkusagna. Píkan og dýrkun hennar Píkusögur er furðuleg blanda af póstfemínisma og ný- aldartrúarbrögðum níunda áratugarins. Póstfemín- isminn birtist í því hvernig Ensler leggur aðaláherslu á fjölbreytileikann, það að allar konur og allar píkur séu hver annarri ólíkar. Allar eigum við það þó sam- eiginlegt að við kunnum ekki að meta píkuna og kraft hennar. Eins og aðrir póstmódernistar leggur Ensler mikla aherslu á kraft orða til þess að breyta skynjun og skilningi okkar. Hún skrifar því Píkusögur til að endur- heimta orðið „píka". Rétt eins og samfélag samkyn- hneigðra tók upp skammaryrðið „queer" og breytti merkingu þess svo að það varð að nýju og spennandi heiti fyrir samkynhneigða, þá vill Ensler að konur geti notað orðið píka skammlaust og fundið nýjan kraft innra með sér með notkun þess. Píkan hefur í leikriti Enslers á sér goðsagnablæ. Mikil áhersia er lögð á dulúð píkunnar og stjórnleysi hennar. í leikritinu sprettur Píkan fram á sjónarsviðið sem sjálfstæð vera. Þessi gyðjusköpun Enslers á Pfkunni er sérstaklega dregin fram í formála Gloriu Steinem að bókarútgáfu Píkusagna. Þar tengir Steinem píku Enslers við trúar- brögð heimsins og reynir að sýna fram á hvernig Pík- an sé upphafskraftur allrar trúar og trúarbragða. Ensler fellur hér í gryfju nýaldarhyggjunnar. Eins og furðufuglarnir sem kveikja á reykelsum í tíma og ótíma og tala um innri kjarna sálarinnar, þá upphefja Píkusögur píkuna sem aðaldrifkraft konunnar. Leikrit- ið hvetur konur til að finna þennan miðpunkt sinn, möndul og aflvaka. Ensler vill að konur hugsi og lifi í gegnum píkuna. Kraftur konunnar felst nefnilega ekki í heilanum heldur í píkunni. Þessi heimspeki Enslers er þó ekki ný og vísar óþægilega til fortíðarinnar þeg- ar konur voru ekki taldar rökverur, heldur fyrst og fremst kynverur sem einungis gátu hugsað með lfk- amanum. Ensler á þó hrós skilið fyrir að reyna að endurskapa femínismann með píkupælingu sinni, og víst er að leikrit hennar hefur hleypt nýju blóði í kven- réttindabaráttuna. Píkusögur í Borgarleikhúsinu Óhætt er að hvetja alla til að fara á uppsetningu Borgarleikhússins á Píkusögum. í tilefni af sýningu leikritsins var skapað nýtt kaffihús f Borgarleikhúsinu þar sem áhorfendur horfa á leikritið meðan þeir sötra kaffi og narta í píkukökur. Þessi kaffihúsastemning eykur nálægð áhorfenda við leiksviðið og ná leikpík- urnar þrjár, Halldóra, lóhanna og Sóley, góðum tengslum við áhorfendur. Texti Píkusagna lifnarvið íþýðingu IngunnarÁs- dísardóttur og eina stutta kvöldstund í Borgarleikhús- inu stíga píkur á svið og fá loksins að hlæja og gráta, öskra og hvísla og syngja og dansa með áhorfendum. Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar Hjá Útfararstofu kirkjugarðanna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfararþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. ÚTFARARSTOFA K1RKJ UGARÐAINNA EHF. Vesturhlið2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð ErFidrykkja MYNDLISTASKOLINN THE REYKJAVÍK SCHOOL OF ART í REYKJAVÍK HRINGBRAUT 121 • 107 REYKJAVÍK • SÍMI 551 1990 Vor- og sumarnámskeið í maí Námskeið í fullorðinsdeildum 16. - 30. maí. Módelteikning-byrjendur, módelteikning-frh., málun-frh., vatnslitir, leir. Kennt verður 16. 17. 21. 22. 23. 28. 29 & 30. maí kl. 17:30-21:25. Alls 40 kennslustundir. í júnf Námskeið í barna-og unglingadeildum: Vikunámskeið, 20 kennslustundir hvert. Fyrir 6-10 ára og 10-12 ára: 5.-8., 11.-15., 18,- 22. og 25,-29. júní. Fyrir 13-16 ára: 5,- 15. og 5. 7. 11. 12 & 14. júní. Nánari upplýsingar og innritun á skrifstofu skólans, símar 551 1990 og 551 1936. Opnunartími mán.- fim. 14-18 og fös. 14-17. www.myndlistaskolinn.is

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.