Vera


Vera - 01.04.2001, Qupperneq 57

Vera - 01.04.2001, Qupperneq 57
Karen Theodórsdóttir Skortur á fyrirmyndum Eg hef stundum hugsað um hversu mikil breyting það var á lífi mínu þegar ég uppgötvaði femínisma og meðtók hann af heilum hug. Pað hefur reynst mér hvorutveggja erfitt og ánægjulegt f senn. Það erfiða var að endurskoða allar mínar karllægu hugmyndir og skoðanir sem ég hafði áður haft. Það var ekki síður erfitt að standa frammi fyrir ættingjum og vinum sem virtust við öll tækifæri gagnrýna þessa „nýju" konu og bentu mér á að með auknum þroska myndi ég vaxa upp úr þessu. Þegar ég lít til baka tel ég samt að þetta hafi ekki verið það erfiðasta þar sem ég, yfir mig ánægð yfir þessum nýju uppgötvunum, hætti að taka þessum ábendingum per- sónulega. Það verður hins vegar að segjast að uppeldi dætra minna tveggja, fjögurra og sjö ára, krafðist heldur betur endurskoðunar af minni hálfu þar sem ég gat ekki hugsað mér að ala þær lengur upp í þeim misskilningi sem ég hafði áður búið við. Misskilningurinn felst nefni- lega í því að jafnrétti kynjanna sé orðið að veruleika og að kynbundin hegðun sé eðlislæg en ekki menningarlega mótuð og með þennan misskilning í farteskinu sendum við börnin okkar óvarin út í lífið. Ég veit hins vegar að í raunveruleikanum er þessu ekki svo farið þar sem konur eru langt frá því að vera metnar til jafns á við karla. Þrátt fyrir að engin segi það beint þá er slíkum hugmyndum lætt til okkar þannig að við tökum sjaldnast eftir því. Ég taldi því nauðsynlegt að reyna eftir fremsta megni að kenna dætrum mínum að koma auga á þessi skilaboð en gerði mér jafnframt grein fyrir því að ég yrði að gera það á einfaldan máta sökum ungs aldurs þeirra. Skortur á fyrirmyndum að femínísku uppeldi hefur gert mér erfitt fyrir, því ekki virðist vera rætt um þetta og hvergi finnast kaflar í uppeldisbókum sem fjalla um femínískt uppeldi. Þar sem ég skil hversu fyrirmyndir eru okkur mikilvægar og þær fyrirmyndir sem stelpurnar mínar hafa fyrir augum sér eru síður en svo femínískar, verð ég að vera hin femíníska fýrirmynd fyrir þær. Með þessu móti vil ég kenna þeim að vera stoltar af kynferði sinu og að þær tileinki sér gagnrýna hugsun til þess að geta valið hvort þær taki þátt í hinum menningarlega mótuðu hug- myndum um hegðun kynjanna eður ei. Tarsan tannkrem fyrir stróka Ég finn að það virkar vel að þenda þeim á þegar gert er lítið úr konum og nota til þess m.a. hlutverk stelpna í teiknimyndum og auglýsingum. Mér til mikillar ánægju virtist yngri dóttir mín meðtaka þetta mjög fljótt þrátt fyrir ungan aldur. Hún mótmælti t.d. hástöfum auglýsingu í sjónvarpinu sem sagði að Tarsan tannkrem væri fyrir stráka og bað mig um útskýringu á þessu þar sem hún átti siálf slíkt tannkrem inni á baði. Mér varð svara fátt og fann að ég átti bágt með að útskýra þetta fyrir henni þannig að hún skildi. Hvernig útskýrir þú menningarmót- aðar hugmyndir fyrir fjögurra ára gömlu barni? Henni var einnig brugðið þegar fjögurra ára gamall frændinn neitaði að leika Mulan og sagðist vera STRÁK- UR, þar sem hún taldi ekkert eðlilegra en að bregða sér í „karlahlutverk" og leika Batman eða Ping. Þrátt fyrir að ég státi mig af eftirtektarsemi hennar þá kemur hún nánast daglega heim af leikskólanum með nýjan „sannleika" um t.d. að strákum finnist hjörtu vera ljót og að bleikur sé ekki litur fyrir stráka. Ég þarf því stöðugt að útskýra fyrir henni að það sé ekki vegna þess að þeir eru strákar. Ég finn þó að þetta verður auðveldara eftir því sem þær eldast og sé það hjá eldri dóttir minni sem tekur stöðugt eftir því þegar gert er lítið úr konum. Hún rökstyður það fyrir sjálfri sér með þvf að fólk geti ekkert að þessu gert þar sem því hafi ekki verið kennt ann- að. Hún ákvað því að fyrirgefa skólastjóra sínum um dag- inn að hann skyldi ekki fatta að konur gætu haldið á stól- um þegar hann bað um tólf hrausta karla til að rýma stóla úr salnum á fjölskylduhátfðinni og kom með þá athuga- semd að við ættum kannski að benda honum á þetta. rvaliö er hjá okku Tryggdu barmnu þinu öruggt sæti MAJOR 0-13 kg. m/skermi, höfuðpúða og geymsluhólfi kr. 8.980 TOP eins og MAJOR en m/svuntu kr. 9.840 CHALLENGER 0-18 kg m/stuðningspúða kr. 10.960 POLO 15-36 kg. m/örmum kr. 1.890 SPEEDWAY 9-36 kg. m/höfuðpúða og 5 punkta belti kr. 8.850 DUO 15-36 kg. m/hæðarstillingu fyrir öryggisbelti kr. 6.700 * c/ oXm/jÍA, 2001 o Viöurkonndir og E-merktir samkv. ECE reglug. nr. 44.03 w w w * o 57
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.