Vera


Vera - 01.04.2001, Side 62

Vera - 01.04.2001, Side 62
Viðtal: Kristín Heiða Kristinsdóttir Sigfríð Þórisdóttir býr yfir töfrum í hverjum fingri þegar kemur að mat og matseld. Engum ætti því að koma á óvart að hún á og rekur fyrirtækið Potta- galdra sem framleiðir krydd og olíur til matargerðar. Ævintýrið hófst fyrir 12 árum þegar hún skráði nafnið til að eiga það til góða. „Þetta nafn, Pottagaldrar, hafði verið til í undirvitund minni f fjölmörg ár og ég ákvað að skrá það án þess ég vissi nokkuð hvað ég ætlaði að gera við það. Á þeim tíma var ég nýbúin að eignast barn og var atvinnulaus og ég eyddi sfðustu aurunum sem ég átti í skráninguna. Skömmu síðar hóf Kola- portið göngu sína og hrein og klár sjálfsbjargarviðleitni varð til þess að þar fór ég að selja krydd og framandi sósur. Þá var ég með sex kryddplöntur heima hjá mér sem ég blandaði í púnsskál en sósurnar fékk ég að gera í stórum potti á veitingastað. Ég fékk strax mjög góð viðbrögð á þessa vöru og með Kolaportssölunni hafði ég f mig og á í tvo mánuði." Sfðan fékk Sigfríð vinnu sem einka- kokkur hjá bresku sendiherrahjónun- um sem þá voru hér á landi og þar var hún f tvö ár. Eftir það fór hún f Tækni- skólann og um það leyti sem hún út- skrifaðist þaðan vann hún í samkeppni um besta lambakjötsréttinn. „Á meðan ég var í skólanum drýgði ég tekjurnar með því að blanda krydd heima hjá mér og fór með þau í kvennafyrirtæki og seldi. Ég segi stundum að þetta hafi verið óformleg markaðskönnun. Konurnar sem höfðu keypt kryddin mín áður f Kolaportinu voru rosalega ánægðar að fá þau aftur. Ég ieit á þessi góðu viðbrögð og verð- launin fyrir uppskriftina sem ákveðna vísbendingu um að ég ætti að fara út í þetta af alvöru. Svo ég tók 350.000 króna Námulán, leigði mér 20 fermetra húsnæði og henti mér út í Pottagald- ursævintýrið. Ég rak fyrirtækið fyrst og fremst á óbilandi bjartsýni." Engin aukaefni og lág-natríum salt Sigfríð blandaði kryddin sjálf en réð strax manneskju f hlutastarf til að hjálpa sér að pakka. Hún lagði mikla vinnu í að kynna vöruna, var nánast hverja einustu helgi með kynningar bæði í Reykjavík og úti á landi. Hún hefur alltaf iagt mikið upp úr hreinleika og hollustu vörunnar og því eru engin aukaefni f Pottagaldurs kryddunum. „Siðfræði matvælaframleiðslu er því miður ekki merkilegri en svo að fólk veit sjaldan með vissu hvað það er að láta ofan í sig. í Pottagöldrum leggjum við áherslu á ákveðnar sið- ferðisskyldur gagnvart neytendum. í því felst að gera sitt besta og vera ekki meðvitað að framleiða vöru sem getur haft skaðleg áhrif. Fyrir utan það að nota engin aukaefni þá erum við með hið íslenska lág-natríum salt frá Reykjanesi í þeim blöndum sem á annað borð innihalda salt. Hreinsun kryddsins fer einnig fram með náttúru- legum hætti, sem er gufuhitameðferð. Við teljum okkur vera skrefi á undan í því að passa upp á gæðin okkar og Pottagaldrar hafa mikla sérstöðu. Einn hluti af gæðastýringunni felst í því að ákveðnir hlutir í framleiðslunni verða aldrei vélvæddir. Þetta er mitt hjartans áhugamál, að efla heilsu fólks með réttu mataræði eða í það minnsta gera það meðvitaðra um hlutina." Fyrirtækið er alltaf að stækka og veltan eykst dag frá degi. Að meðaltali bætast sex til sjö nýjar kryddtegundir í hópinn á hverju ári og einnig fjölgar kryddolíunum. Nú starfa þrjár konur og ein f hálfu starfi í Pottagöldrum auk Sigfríðar sjálfrar. Ef ég var t.d aó elda mexík- anskan mat þó ímyndaði ég mér að ég væri lítil mexík- önsk kerling með hatt oa svo spilaði ég viðeigandi tómist með. Þannig komst ég í réttu stemninauna og þó varð mat- urinn goour. 62

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.