Vera


Vera - 01.04.2001, Side 64

Vera - 01.04.2001, Side 64
Frásögn um margboðað jafnrétti ■P1!'■ PRPP"' : p m' 9 9npippiRMMI ' ' JÍCtKORKA 3. HEFTl OKTÚBER 1150 S. AHO. í- Melkorka -tfmarit kvenna kom út frá 1944 til 1962. Rannveig Krist- jánsdóttir var ritstjóri þess fyrstu fjögur árin en eftir það tók Mál og menning við útgáfu þess. Melkorka var sósíalískt tímarit og voru marg- ar greinar þess mjög pólitískar og þá ekki síst gegn hersetunni. Árið 1950 voru eftirfarandi spurn- ingar lagðar fyrir lesendur Melkorku og þær beðnar um að svara þeim skriflega og senda til ritstjórnar. 1. Hver voru viðhorf þín til kven- réttindamála áður en þú fórst að fá sérstakan áhuga fyrir þeim? 2. Hvers vegna eru ungar stúlkur tregar til að vinna að kvenréttinda- málum? Vantar þær skilning eða eru aðrar ástæður til þess? 3. Hvernig verður áhugi ungra stúlkna á réttindamálum bezt vak- inn? 4. Hver er ástæðan til þess, að stjórnmálamenn og karlmenn yfir- leitt eru skilningslitlir á réttindamál kvenna og vilja lftt leggja konum lið í jafnréttisbaráttu þeirra? 5. Hvers vegna ertu kvenréttinda- kona? 6. Hvers vegna heldur þú, að kunningjakonur þínar og nágranna- konur hafi ekki áhuga á kvenrétt- indamálum, eða vilji ekki láta á- huga sinn í Ijósi með þátttöku í fé- lagsstarfinu? 7. Hvernig viltu láta meta hús- móðurstörf þín og störf húsmæðra yfirleitt? 8. Hvaða konur fá, lífs eða liðnar, mest dugnaðar- og myndarskapar- orð? 9. Á hvern hátt telur þú, að stjórn- arskráin geti tryggt konum fullt jafnrétti í hvívetna? 10. Tel ur þú konur ábyrgðarlausari en karla um stjórnarfarið í landinu? (Gerðu stutta grein fyrir svari þínu.) 1 . Hvers vegna eru svo fáar ís- lenzkar konur í opinþerum stöðum? O „Þessar stúlkur eru ekki heimskar!" Nýverið birtist grein á vef- svæði USA TODAY um nýjung í markaðssetn- ingu Flugleiða. Herkænskan sem gekk út á að bjóða Bandaríkja- mönnum á keppnina Ungfrú ísland.is virðist falla vel í kramið þar ytra. 260 bandarískir karlmenn mættu í svokallaða „Midnight Madness'' dvöl sem stóð í 4 daga. Hápunktur dvalarinnar var að berja 16 íslenskar ungar stúlkur augum sem voru þátttakendur í keppn- inni. Kaninn fékk tækifæri til að hitta ungviðið eftir keppni enda um svokallaðan VlP-pakka (Very- Important-Person) að ræða. f umræddri grein USA TODAY er m.a. haft eftirfarandi eftir amerí- könunum: „VÁ! Sií lakasla afþeim er meira að segja æðisleg. Markmið mitt var að fiitta sex stúlkur og ég náði að tala við þrjárl Ég ælla að hengja veggspjaldið af þeim upp heimaV' John Timm, (34) ráðgjafi. Vera bendir John á: Það er einnig hægt að fá veggspjald af íslensku sauðkindinni ef það er enn autt svæði á veggjum heimilis lohns'. „VÁ! Pærfara langlfram úrvænting- um okkar." Omri Dahan (27), nemi. Vera ráðleggur Omri: Að Ijúka námi og uppfylla væntingar for- eldra sinna. „Ég hef komið til 113 landa og íslensku stelpurnar eru langfallegastar. Víking- arnir sem settust að á íslandi þustu áður um Evrópu og náðu fallegustu konun- um. Og af því að ísland er eyja hafa gen íslenskra kvenna ekki blandast öðrum. Þær borða mikinn fisk, synda og af því að það er ekki mikil sól fá þær ekki hrukkur". Gregg Schmidt (49) starfs- maður í bílaverksmiðju. Vera þakkarGregg, hinum siglda, fyrir að fræða bandaríska lesendur um íslenska sögu, fæði og hrukku- leysi íslenskra kvenna. „Þessar stúlkur eru ekki heimskar." upplýsti Bob Geldof, tónlistar- maður áhorfendur Ungfrú ísland punktur is. Vera er sammála Geldof en skilur ekki af hverju hann þarf að taka þetta sérstaklega fram. Greinarhöfundur hefur eftir Þór- dísi Oddsdóttur (17) einum kepp- anda Ungfrú ísland.is að henni finnist skrýtið að hafa 260 banda- ríska karlmenn, sem gætu verið feður hennar, gónandi á. „Hún lekurþessu þó með hðgværð, ró og sjálfstrausti sem einkennir stúlkurn- ar" bætir greinahöfundur við. Vera telur að flestum keppenda hijóti að hafa misboðið þetta nýjasta uppátæki Flugleiða í mark- aðssetningu. Þessar stúlkur eru ekki heimskar! Nú er á dagskrá Flugleiða að mat- reiða Mæðradaginn í Kanann. Frétt um það hefst á orðunum: „Our beauliful lcelandic mothers." Vera vonar að einhvers staðar verði tek- ið fram í kynningu að þær séu heldur ekki heimskar! 64 o

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.