Vera - 01.04.2001, Side 73
Bækur
Bára Magnúsdóttir
Launhelgi
lyganna
eftir Baugalín
Mál og Menning 2000
- skáldsaga
Það er ekki auðvelt verk að reyna að
skilgreina „Launhelgi iyganna". Þetta er
engin venjuleg saga - en hún er því
miður sönn. Þetta er saga sem gerist
að mestu leyti á sfðustu fjórum áratug-
um og er sögð í fyrstu persónu af höf-
undinum sem kýs að kalla sig Bauga-
lín. Hún segir sögu fjölskyldu sinnar,
hvernig foreldrar hennar kynntust og úr
hvernig fjölskyldum þau komu. Frá
skilnaði þeirra og stofnun nýrrar fjöl-
skyldu. Þetta er samsuðu bók, ævisaga,
örlagasaga, ættarsaga, saga um íslend-
inga sem eru alltaf að byggja - alltaf f
leit að húsnæði sem skjóli. Saga kyn-
slóða sem hver um sig upplifir hörm-
ungar en er ófær um að búa börnum
sínum betra skjól. Þar sem ein lygin
rekur aðra þar til ekkert er orðið eftir
nema nístandi þögn og afneitun.
Þetta er líka samfélagsleg saga.
Hún segir jafnt frá unglingakúltúr sem
félagslegu umhverfi fátæklinga á 20.
öld. Segir frá samtryggingu kerfiskalla,
afglöpum starfsmanna félagslega kerf-
isins og glæpsamlegum athæfum.
Sagan er sögð undir dulnefni og
eflaust öll nöfn og einhverjir stað-
hættir eða atburðir dulbúnir, enda á-
stæða til, því annars gæti höfundur átt
yfir höfði sér málshöfðun fyrir meið-
yrði og róg. Svona eru lögin undarleg
og ósanngjörn. Reyndar er sístur sá
kafli sem fjallar um iögin og máttleysi
/ viljaleysi þeirra sem að þeim koma.
Sannarlega þarfur en siítur sögulokin
úr eðlilegu framhaldi af sögunni. Sögu
sem sögð er af tilgerðarleysi og
óhugnanlegu raunsæi. Af konu sem
ber heila ættarsögu á bakinu og neitar
að þegja, neitar að láta eins og allt sé
í besta lagi.
Það er ekki þægilegt að lesa þessa
bók, það svfður undan henni. Samt
ættu allir að lesa hana, hún er ekki svo
yfirgengilega svæsin að viðkvæmum
sálum sé háski búinn. En reyndar ættu
þau helst að lesa þessa bók sem álíta
sig ekki viðkvæmar sálir. Þau sem hitta
fyrir fólk eins og er f bókinni; félagsráð-
gjafar, lögreglumenn, lögfræðingar,
læknar og dómarar. Þau þurfa að sjá
hina hlið málsins, sjá orsakirnar en
ekki bara afleiðingarnar. Og sjá að ein-
hversstaðar, einhverntíman þarf að
stoppa einstaklinga af, hjálpa þeim, til
þess að rjúfa keðju eyðileggingar.
o
Ertu í fýlu?
Fáðu þér þá Air sponge lyktargleypi á næstu Esso stöð eða í
verslunum Húsasmiöjunnar.