Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Qupperneq 3
TIMARIT
VERKFRÆÐIIMGAFÉLAGS ÍSLAIMDS
3.-6. hefti 19 60 45. árg.
RÁÐSTEFNA ÍSLENZKRA VERKFRÆÐINGA 1960
ÁVARPSORÐ
Eftir Steingrím Jónsson, verkfræðing.
Háttvirta samkoma.
Góðir gestir og félagsmenn:
Pyrir hönd undirbúningsnefndar þessa móts býð ég
yður alla hjartanlega velkomna til þessarar hinnar fyrstu
ráðstefnu íslenzkra verkfræðinga.
Verkfræðingafélag Islands var stofnað 1912 með 13
meðlimum. Það óx hægt í byrjun, en örara siðan, svo
að nú eru meðlimir 280. Árið 1940 var stofnuð fyrsta
sérdeild innan félagsins, félag rafmagnsverkfræðinga.
Síðan hafa verið stofnaðar smám saman aðrar deildir i
aðalgreinum verkfræðinnar. Eftir því sem félagið hefur
vaxið og félagsdeildir verið stofnaðar, hefur félagsmönn-
um orðið ljóst, að starfshættir aðalfélagsins hlytu að
taka nokkrum breytingum frá því sem áður var, meðan
félagið var fámennt og óskipt. Fyrir tveim árum var
þvi skipuð nefnd til að athuga hvort eigi væri tími til
kominn að efna til ráðstefnu meðal íslenzkra verkfræð-
inga, og til að undirbúa slíka ráðstefnu, ef tiltækilegt
þætti. Það hefur tekið lengri tíma hjá nefndinni, en
ætlað var í upphafi og þótt svo sé, er ráðstefna þessi
samt um sumt miður undirbúin en æskilegt hefði verið.
Var það ætlun okkar að vanda vel til ráðstefnunnar, svo
að hún gæti orðið að sem mestu gagni og félaginu til
sóma.
Undirbúningsnefndin var einhuga um það, að eigi
skyldi taka fyrir mörg málefni á sjálfri ráðstefnunni,
þótt af nógu væri að taka, heldur bæri að taka fá mál
og gera þeim því betri skil. Við völdum saman tvo
málefnaflokka, er við töldum einna mikilvægasta og
mest áríðandi að gera mönnum ljóst, hversu ástatt væri
hjá okkur í þeim málum og hversu mjög okkur væri
þar áfátt, þrátt fyrir miklar framfarit- á mörgum svið-
um hina síðustu áratugina.
Annað þessara málefna var æðri tæknileg menntun í
verkfræðum og náttúrufræðum, en hitt er vélvæðing og
vinnuhagræðing í íslenzkum atvinnuvegum og mann-
virkjagerð. 1 sambandi við fyrra málefnaflokkinn hefði
mátt einnig bæta við lægri tæknilegri menntun á landi
hér, þvi hún er mjög á eftir tímanum. En betur þótti
fara á þvi að einbeita sér að háskólamenntuninni sér-
staklega, enda var það fremur á sviði V.F.l. að rök-
ræða og styðja.
Siðari málefnaflokkurinn var valinn meðfram í þvi
skyni að sem flestir félagsmenn gætu átt þar nokkurn
hlut að, með því að leggja til undirstöðuritgerðir, hver
frá sínum verkahring, um hvernig ástatt væri um vél-
væðingu og vinnuhagræðingu í hans grein. Hafa margir
félagsmanna brugðist vel við þessu og allmargar góðar
ritgerðir hafa komið fram, er ég vona að við megum
birta siðar, vegna fróðleiks þess, er þær hafa að geyma.
En þótt margar ritgerðir kæmu fram, varð þó fljótt ljóst,
að þær einar gætu ekki orðið grundvöllur að yfirlitser-
indi því, er flytja skyldi á ráðstefnu okkar, því vélvæð-
ing í atvinnuvegum okkar er svo nýleg, misjöfn og fá-
breytt, að samfellt yfirlit á borð við það, sem fáanlegt
væri í iðnþróuðum löndum, verður ekki komið við hér.
Varð því ljóst, að semja yrði yfirlitserindið á breiðara
grundvelli. Þetta hefur gert framsögumönnum okkar
erfiðara fyrir, en áhugi þeirra á málefninu hefui' yfir-
unnið alla örðugleika.
Það er eigi tilgangurinn hér í stuttu ávarpi að rekja
þau mál nánar, það er verkefni ráðstefnunnar, og munu
okkar ágætu framsögumenn gera þessum málum góð
skil, og ég vænti þess að ýmsir félagsmenn gerist þátt-
takendur í umræðum á eftir þann stutta tíma, sem þeim
er markaður.
Við höfum einnig talið rétt að fá fram á ráðstefnu
þessari nokkurn samanburð við önnur Norðurlönd, svo
að enn ljósara mætti verða, af þeim samanburði, hvar
við sjálfir værum á vegi staddir. Við höfum verið svo
heppnir að fá danskan framámann, sem athugað hefur
menntamál í landi sínu á sviði vísindalegra tæknirann-
sókna, en þar í landi, svo sem víðar í hinum stóru iðn-
aðarlöndum, eru þessi mál mjög til umræðu og svo virð-
ist, sem menn séu þar yfirleitt á þeirri skoðun, að mik-
illa úrbóta sé þörf í menntamálunum á þessum sviðum,
ef löndin eigi ekki að dragast aftur úr i samanburðin-
um við enn stærri lönd.
Við höfum fengið norskan mann, er starfað hefur sem
ráðunautur á iðnaðarmálasviðinu í landi sínu og sem