Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Síða 12
42
TlMARIT VFl 1960
SKÝRSLUR’)
verkfræðinga og annarra, vegna ráðstefnunnar:
HEIMILDASKRÁ
ALMENNAR HEIMILDIR')
Fjármálatíðindi, Hagfræðideild Landsbanka Islands
(Töflur nr. 1, 3, 4 og 5: 3. hefti 1959).
Freðfiskiðnaður íslendinga, Othar Hansson, verkfr., Iðn-
aðarmál, 3.—4. hefti 1960, Iðnaðarmálastofnun ísl.
Forhandlinger ved Det Nordiske Nationalökonomiske
Möde 1958, Nielsen & Lydiche, Khöfn, 1959.
Iðnaðarskýrslur 1953, Hagstofa Islands, 1958.
Lækkun húsnæðiskostnaðar, Iðnaðardeild Atvinnudeildar
Háskólans, Byggingarefnarannsóknir 1960.
Manntal á Islandi 1950, Hagstofa Islands 1958.
Orkumál, Raforkumálastjóri (nr. 3, 1960).
Sjávaraflinn og útflutningsverzlunin, Már Elísson, hagfr.,
Ægir, afmælisrit 1959, Fiskifélag Islands.
Skipastóllinn, Arnór Guðmundsson, skrifstofustj., sama
rit.
Skrá um íslenzk skip 1960. (Tafla nr. 2).
Tæknimenntun og fjárfesting, Sveinn Björnsson, verkfr.,
Iðnaðarmál, 1.—2. hefti 1960.
tír þjóðarbúskapnum, Framkvæmdabanki Islands (nr.
3, 1956).
Þróun raforkumála á Islandi, Iðnaðarmál, 4. hefti, 1957.
') Útgáfust. Rvlk. neina annað sé tekið fram.
Byggingarefnarannsóknir; Haraldur Ásgeirsson, verkfr.
Fiskveiðar; Vilhjálmur Guðmundsson, verkfr.
Framleiðsla áburðar; Runólfur Þórðarson, verksm.stj.
Framleiðsla á vörum úr steinsteypu; Rögnvaldur Þor-
kelsson, verkfr.
Framleiðsla sements; Dr. ing. Jón Vestdal, forstj.
Frysting fisks; Ólafur Gunnarsson verkfr. og Helgi
Þórðarson verkfr.
Islenzkar hafrannsóknir og gildi þeirra fyrir þjóðarbúið;
Unnsteinn Stefánsson, verkfr.
Jarðrækt; Dr. Björn Jóhannesson, verkfr.
Kjötiðnaður; Páll Lúðvíksson, verkfr,
Línulagnir í ábótarvinnu; Eiríkur Briem, frkv.stj.
Logsuðugasframleiðsla; Valgeir Björnsson, hafnarstj.
Mjólkuriðnaður; Þórhallur Halldórsson, mjólkuriðnaðarfr.
Mjöl, lýsi og aukaefni; Björn Bergþórsson, efnafr.
Raftækjaframleiðsla; Axel Kristjánsson, forstj.
Saltfiskverkun. Geir Arnesen, verkfr.
Skreiðarverkun; Sig. B. Haraldsson, verkfr.
Steinstólpagerð; Ólafur Tryggvason, verkfr.
Trésmiðaiðnaður; Sveinn K. Sveinsson, verkfr.
Vélabúskapur; Haraldur Árnason, frkv.stj.
Vélræn netaframleiðsla; Sveinn Björnsson, verkfr.
Vinnsla, dreifing og sala raforku; Steingrímur Jónsson,
rafmagnsstjóri.
-) Flestar prentaðar á bls. 55—78.
FJÁRFESTING OG ÞRÓUN
Eftir dr. Gunnar Böðvarsson, verkfræðing
INNGANGUR.
Undanfarnir áratugir hafa verið tímabil mikillar
efnahagslegrar framvindu um allan heim. Einkum á
þetta við um árin eftir ófriðinn 1939—1945. Flest lönd
Norðurálfu hafa risið úr rústum styrjaldar með meiri
blóma en áður. Má segja, að framvindan hafi orðið meiri
en margur hafði talið mögulegt.
Samhliða þessu gefa menn lögmá'um framvindunnar nú
meiri gaum en áður. Hagfræðilegar athuganir og rann-
sóknir eru stundaðar í æ ríkara mæli og gagnasöfnun
er mikil, enda þótt segja megi, að þar sé margt misjafnt
að gæðum.
Samband fjárfestingar og efnahagslegrar framvindu
er nú eitt meginefni hagfræðilegra rannsókna. Menn hafa
tekið upp þann hátt að meta og reikna vinnslu starfs-
greina og þjóðfélagsheilda og kanna samband tímabreyt-
inga vinnslunnar og fjármunamyndunar. Á grundvelli
reynslu liðinna tíma gera menn spá um framtíðina.
Vinnslan er venjulega metin á markaðsverði í hverju
landi og er ýmist reiknuð verg (brúttó) eða hrein (nettó)
vinnsla. Siðari stærðin er verg vinnsla að frádregnum
eðlilegum afskriftum og/eða hráefnakostnaði. Niður-
stöðutölur má síðan deila með fjölda starfsmanna eða
þjóðfélagsþegna og reikna þannig vinnslu á mann. Fjár-
festingu má einnig meta á líkan hátt. Þessir reikningar
verða skýrðir nánar hér á eftir.
Hér á landi hefur málum þessum ekki verið gefinn
vei-ulegur gaumur. Veldur þessu ýmist skortur almennra
gagna og einnig nokkuð áhugaleysi manna almennt. Er
þetta bagalegt þar sem athuganir af þessu tagi virðast
einmitt mjög aðkallandi hér á landi.
Hér verðui' reynt að drepa á nokkur meginatriði þess-
ara mála. Verður þá byggt ýmist á fræðilegum athug-
unum og tölulegum gögnum erlendum og innlendum. Að
lokum verður reynt að draga nokkrar ályktanir um að-
stæður hérlendis. Tekið skal fram, að nokkur töluleg
gögn, sem notuð verða, einkum þau innlendu, eru ófull-
komin, og væri æskilegt, að nákvæmari rannsókn gæti
farið fram.
Vegna hinna innlendu gagna er rétt að hafa í huga
að gera ber greinarmun á efnahagsmálum og fjármálum.
Með efnahagsmálum er átt við efnaskipti þjóðfélagsins,
en hugtakið fjármál er takmarkað við fjármunaskiptin.
Eðlilegt væri, að verðlag væri þannig, að fjárkerfið