Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Qupperneq 63
TlMARIT VFl 1960
93
Sigurður B. Haraldsson:
SKREIÐARVERKUIVI
1. Snemma á öldum var farið að verka fisk í skreið,
og var hún lengi aðalútflutningsvaran, allt fram á fyrri
hluta 19. aldar. Eftir því sem lengra leið á þá öld, jókst
saltfiskverkun stöðugt, en skreiðarverkunin minnkaði,
þannig að um 1880 var hún hverfandi. Lá skreiðarverk-
unin eftir það niðri þar til að Fiskimálanefnd hóf starf-
semi sína 1935. Gekkst hún þá fyrir innflutningi á fisk-
trönuefni og hvatti menn til skreiðarverkunar. Fram-
leiðslan var um 300 tonn á ári allt fram að stríðslokum,
en lagðist svo hér um bil niður i 3—4 ár. Eftir það
jókst framleiðslan mjög ört, þannig að nú síðustu ár
hefur hún verið um 10.000 tonn á ári. Langmestur hlut-
inn af skreiðarframleiðslunni er fluttur til Nigeríu, en
nokkuð fer til Italíu.
Skreiðarverkun, eins og hún er framkvæmd í dag^
lærðum við af Norðmönnum. Um tæknilega þróun er
ekki að ræða. Helzt væri það, þegar tekið var að nota
pressur við pökkun á skreið. Ýmsir nota einnig í vax-
andi mæli loftblástur í skreiðargeymslum, eftir að
skreiðin hefur verið tekin inn af hjöllunum. Ekki hefur
tekizt enn að þurrka fisk í húsum frá byrjun, því að
skreiðin fær með því móti ýmsa galla, svo sem annað
bragð, sem neytandinn sættir sig ekki við.
2. Ógerlegt er að gefa nokkuð yfirlit um fjárfest-
ingu í sambandi við skreiðarverkun. Yfirleitt er skreið-
arverkun framkvæmd jafnframt annari fiskverkun, svo
sem frystingu og söltun, og erfitt að ákveða skiptin
þar á milli.
Hér á eftir verður því farin sú leið að áætla nauð-
synlega fjárfestingu hjá meðalstórri stöð, sem framleiðir
skreið eingöngu, þ. e. a. s. 100 tonn af fullþurri skreið
á ári.
Fjárfesting 1958:
Þús.
Húsakostur kr. 300
70 hjallar — 350
2 pressur og önnur áhöld — 120
Meðalbirgðir — 1.270
kr. 2.040
en það síðasta ekki fyrr en eftir mitt næsta ár. Sam-
kvæmt þessu er skiljanlegt, hve liðurinn ^meðalbirgðir"
er hár.
3. Stofnfjárstuðull.
Framleiðsluverðmæti stöðvarinnar (100 tonn skreið
+ 125 tonn úrgangur), að frádregnum sölulaunum og
útflutningsgjöldum, er kr. 1.740.000.
liðast þannig:
1) Rekstrarvara (588 tonn
fiskur, rafmagn, olía og
umbúðir
2) Viðhaldsvara
3) Þjónusta tengd rekstri
(akstur)
4) Þjónusta tengd viðhaldi
og áhöldum og 15% af hjöllum.
Nemur fyrning því kr. 73.500.00.
svöru og þjónustu sundur-
Þ ú s . k r .
Erl. Innl. Alls
50 1235 1285
10 5 15
70 70
10 10
60 1320 1380
húsakosti, 10% af vélum
Stofnfjárstuðull verður samkvæmt ofanrituðu:
2040000
1740000 — 1380000 — 73500
: 7.12
4. Afköst vinnueiningar.
Starfsmannahald er mjög mismunandi eftir árstíma,
eða frá 15 manns (8 st. á dag) yfir 2% mánuð á vorin,
um 5 manns á sumrin fram í miðjan nóvember, en að-
eins 1 maður eftir það. Heildarvinnulaun yfir árið mun
vera nálægt kr. 270 þús. Miðað við Dagsbrúnartaxta
samsvarar þessi upphæð um 5.4 mannárum.
Afköst vinnueiningar verða því:
1740000 — 1380000 — 73500
K ,-----------= 53000
5. Samanburður við erlenda stuðla er ekki fyrir hendi.
Skreiðarverkun fer fram á þann hátt, að fiskur er
hengdur upp á hjalla 2% mánuð að vorinu. Skreiðin 6. Tæknilegar umbætur eru ekki fyrirsjáanlegar í ná-
er ekki tekin niður fyrr en í júlí, og ekki fullverkuð fyrr inni framtíð, nema þá súgþurrkun í skreiðargeymslum
en í september. Reynt er svo að jafna útflutningnum verði almennt tekin upp. Verður þá hægt að taka skreið-
þannig, að hann verði sem jafnastur yfir allt árið, og er ina inn fyrr en ella, og þar með verða óháðari breyti-
yfirleitt ekki nema helmingurinn farinn út um áramót, legri veðráttu.