Freyr - 01.07.1947, Blaðsíða 24
206
PREYR
T
Námsmeyjar í hús-
mœðraskóla við mat-
reiðslu
Ljósm.:
Þorsteinn Jósepsson
nokkur sumur 6 vikna námskeið í hús-
mæðrafræðslu. —
Fyrir dugnað og víðsýni kvenfélagsins
Ósk á ísafirði var þar stofnaður húsmæðra-
skóli árið 1912. Var honum skipt í tvö
4 mánaða námstímabil og gátu 12 stúlk-
ur notið þar kennslu í einu. Á fyrri stríðs-
árunum lagðist kennsla niður við ísafjarð-
arskólann en byrjaði aftur 1924 og hefir
skólinn starfað síðan. Nú er verið að reisa
mjög myndarlegt hús fyrir húsmæðraskól-
ann á ísafirði.
Þessir skólar sem hér hafa verið nefndir
voru aðallega matreiðsluskólar, en auk
matreiðslu var kenndur þvottur, hirð-
ing húsa og húsmuna og hjúkrun í
heimahúsum. — Unnu þessir skólar ó-
metanlegt gagn, enda voru valdir kenn-
arar við þá, en augljóst var að þeir gátu
ekki fullnægt þörfinni. Námstíminn var
stuttur aðeins 3—4 mánuðir. Fáir nem-
endur komust fyrir í skólunum og sveit-
irnar voru settar hjá, þar voru engir hús-
mæðraskólar, en umferðakennsla fór
fram í sveitunum í nokkur ár. Naut hún
styrks frá Búnaðarfélagi íslands.
Á þessum árum er hljótt um þessi mál
á Alþingi. Þeim miðar aðallega áfram fyrir
atbeina einstakra áhugakvenna og kven-
félaga, er tóku þau upp á stefnuskrá sína
og beittu sér fyrir því af alefli, að hús-
mæðraskólar yrðu reistir í sveitunum og