Freyr - 01.07.1947, Page 27
FREYR
209
Jóhannsdóttur að Löngumýri í Skagafirði
er hóf starf sitt árið 1944.
★
Mér hefir ekki tekizt að ná í skýrslur
frá húsmæðraskólunum, en samkvæmt
upplýsingum er námstjóri, frú Rannveig
Kristjánsdóttir Hallberg, hefir látið mér í
té, þá stunduðu í vetur á sjötta hundrað
nemendur nám í þessum skólum og eru þá
ótalin kvöldnámskeiðin í Húsmæðraskóla
Reykjavíkur, en þar hafa um 100 stúlkur
notið kennslu síðastliðið skólaár.
í öllum skólunum er lögð stund á handa-
vinnu samhliða matreiðslu og húsmæðra-
fræðslu. Raddir hafa heyrst um það, að
handavinnan væri of mikil og fjölbreytt,
húsmæðurnar settust aldrei niður við slík
vinnubrögð. Um þetta má vafalaust deila,
en menningarauki er það að kunna fallegt
handbragð og geta gert skil á því sem er
vel og illa gert — að geta prýtt heimilið
með fallegum munum, sem húsmóðirin
sjálf hefir unnið. Ekki er ég I nokkrum
vafa um það, að slíkt er mikill ávinningur.
Margir vitna í erlenda húsmæðraskóla,
þeir hafa ekki eins mikla handavinnu
eins og okkar skólar. — Ég spyr: Er sjálf-
sagt að við byggjum okkar skóla eftir er-
lendum fyrirmvndum? Erum við ekki að
bygg'ja skóla fyrir íslenzkar húsmæður, en