Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.1947, Side 53

Freyr - 01.07.1947, Side 53
FREYR 235 sig að leggja, meira erfiði en borgarbúann hafði dreymt um, og svo er það skortur hinna ýmissu þæginda, sem í borginni eru sjálfsögð, en ennþá eru ekki komin í sveit- inni. Sjónarmiðin eru ólík, störfin eru ólík og umhverfið er ólíkt. Þrátt fyrir mismuninn er þó hægt að öðlast skilning á annarra kjörum, en réttur skilningur verður því aðeins fenginn, að litið sé með eigin aug- um og helzt prófað. Hitt atriðið, sem á var minnzt, dvöl bæjarbarna í sveitum á sumrum, og heim- sóknir sveitabarnanna á heimilin í kaup- stöðum, er algengara nú en áður var. Sumardvalir barna, fjarri heimilum, úti um sveitir, hefir, af bæði eldri og yngri, víða um lönd, verið viðurkennt um langt skeið, eitt hið bezta þroskameðal, sem völ er á. Menn og konur, sem í borgum hafa alið allan aldur sinn og nú eru í hárri elli, minnast sumardvala sinna í sveit, sem eins hins bjartasta skeiðs á löngum ævi- vegi. Hafa ýmsir í ræðu og riti líkt þeirri tilveru við fuglinn, sem losnar úr búri og fagnar frjálsræðinu. Skólinn og gatan i borginni var búrið, en sveitin og guðsgræn náttúran, með hátt og vítt himinhvolf yfir, það var blað frelsis og unaðssemda í bók bernskuminninganna. Þátttakan í starfinu í sveitinni, var eins konar landvinningur, konungsríki bernskudraumsins er skóp skilning og útsýn yfir lönd, sem ella mundu lokuð um alla ævidaga. Börnin vaxa og verða þegnar sama þjóð- félags. Á þau skín sól og skúrir falla eða hregg. Lífshamingjan ber ekki að dyrum hjá þeim öllum og misjafnlega er viðdvöl hennar löng hjá þessum og hinum. Þegar á móti blæs er gott að eiga góða vini, og ekki sakar þótt vinmargt sé þegar andúð er á ferðum. Gildir hið sama í þessu FRE YR — búnaðarblað — gefið út af Búnaðarfélagi íslands og Stéttarsambandi bænda. Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Lækjargötu 14, Reykjavík. Pósthólf 1023 Sími 3110. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gisli Kristjánsson. Ritnefnd: Einar Ólafsson, Pálmi Einarsson, Steingrímur Steinþórsson. P R E Y R er blað landbúnaðarins. Verð kr. 25.00 á ári. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Prentsmiðjan Edda h.f. efni, hvort um er að ræða einstaklinga eða heilar stéttir. í sama þjóðfélagi eru einstaklingar að nokkru hvorir öðrum háðir og þá fer illa, ef merkislækurinn verður að straumþungu og ófæru fljóti, er skilur stéttirnar eða hópana, sem búa í sveit og við sjó. Þá er vel, ef á bernskuskeiði vaknar skilningur fyrir því, að allar stéttir þjóð- félagsins eiga tilverurétt, þegar þær leggja sitt af mörkum til uppbyggingar þjóðfé- lagsins, og aldrei stýrir það góðri lukku, ef til stéttahaturs er stofnað. Viðleitni til þess að öðlast skilning á bæði eigin og annarra kjörum, er vís leið til þess að skapa frið og félagslyndi, en það er það sem þarf, því að efnaleg, félagsleg og and- leg velferð einstaklinganna og stéttanna, er frumskilyrði þess, að frjáls þjóð í frjálsu landi geti á öllum tímum eygt bjarta framtíð, hvort sem heimili þegn- anna eru í sveit eða á sjávarströnd. Glsli Kristjánsson.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.