Freyr

Volume

Freyr - 15.12.2004, Page 37

Freyr - 15.12.2004, Page 37
Mynd 4. Bac-to-Bac baculoveiru prótintjáningarkerfi. Staðfærð mynd af heimasíðu Invitrogen. mönnum eru þekkt. Við höfum framleitt rCuI n 1 í E. coli en get- um ekki sýnt fram á tengsl E.coli afurðarinnar við sumarexem (23). Til þess að athuga hvort rCul n I sé mögulega ofnæmisvaki, ef það er tjáð i heilkjamafrumum, höf- um við sett rCul n 1 genið inn í baculoveirukerfið og tjáð það í skordýrafrumum. Hitt genið, sem hefur verið klónað úr Culicoide.s er pQEPP2C. Það er 675 basapör að stærð og hefur samsvömn við þekkta ofnæmisvalda úr skordýr- um. Genið hefur verið tjáð í E. coli og frumniðurstöður benda til að prótínið sé allavega minni háttar (minor) ofnæmisvaki í hestum með sumarexem. Okkur hefur nú einnig tekist að tjá þetta prótín í skordýrafrumum og munu niðurstöður um hvort og þá hversu mikilvægir ofnæmisvakar prótínin em liggja fyrir von bráð- ar. Leit að fleiri ofnæmisprótínum heldur áfram og munu þau sem fmnast verða tjáð i baculoveiru- kerfínu, hreinsuð og prófuð fyrir ofnæmisvirkni. Þegar meiriháttar ofnæmisvak- amir i sumarexeminu hafa verið skilgreindir og hægt er að fram- leiða þá í einhverju mæli þá má hugsa sér tvær megin leiðir til að koma í veg fyrir eða meðhöndla ofnæmið. 1) Stýra ónœmissvarinu inn á Thl braut. Breyta má ónæmissvar- inu gegn ofnæmisvökunum með því að beina því á aðra braut þar sem ekki er framleitt IgE, þ.e. að framkalla svonefnt Thl svar. Þetta má gera með DNA bóluefnum, þá er bólusett með genunum sem skrá fyrir ofnæmisvökum á sérstökum tjáningarferjum sem tjá prótín í spendýrafrumum og hafa inn- byggða Thl ónæmisglæða. Einnig má bólusetja með prót- ínbóluefnum sem eru þá hrein ofnæmisprótín blönduð við Thl sértæka ónæmisglæða. Ef ofnæmi er þegar íyrir hendi þarf að nota umbreytt prótín eða prótínbúta (peptíð) til að koma í veg fyrir bráðaviðbrögð við bólusetningunni (24). 2) Bœla/eyða ónœmissvarinu gegn ofnœmisvökunum, mynda þol. Eins og áður segir svarar ónæmiskerfið ekki vissum vökum eða prótinum, þ.e. er þolið gegn þeim. Þoli er komið á með því að útsetja kerfið gegn vökunum. Mynda má þol með því að gefa hreinan of- næmisvaka í smáum skömmt- um yfír mjög langan tíma eins og gert er við fólk með bráða- ofnæmi gegn vespum eða bý- flugum. Mun betri og öruggari aðferðir til að mynda þol um slímhúð með breyttum prótín- um eða prótínbútum eru nú í hraðri þróun (25,26). Heimildir 1) Þorsteinsdóttir, S. Svansson, V. (2002) Sumarexem í íslenskum og erlendum hestakynjum. Freyr 10, 29-33. 2) Marti, E., Urwyler, A., Neuensch- wander, M., Eicher, R., Meier, D., de Weck, A.L., Gerber, H., Lazary, S., and Dahinden, C.A. (1999) Sulfidoleukotriene genera- tion from peripheral blood leuko- cytes of horses affected with insect bite dermal hypersensitivi- ty. Vet. Immunol. Immunopathol. 71:307-320. 3) Bjömsdóttir S., Sigurðardóttir, J. and Sigurðsson, Á. (2001) Áhrif erfða og umhverfis á tíðni sumarexems. Eiðfaxi Ræktun 1:34-37. 4) Reiher L.J., Tíðni sumarexems í íslenskum hrossum fæddum í Þýskalandi. B.Sc. 90 lokaverkefni á Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri 2004. 5) Arlian L.G., (2002). Arthropod allergens and human health. Annu. Rev. Entomol. 47:395-433 6) Halldorsdottir, S., Larsen, H.J., (1989) Intradermal challenge of Icelandic horses with extracts of four species of the genus Freyr 11-12/2004 - 37]

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.