Freyr - 15.12.2004, Síða 64
ekki alltaf starfið. Og þessi dreif-
ing gagnanna á 15 ættbækur, sem
allar eru byggðar upp og vistaðar
á mismunandi hátt, í samræmi
við reglur viðkomandi sam-
bandslands, gerir það svo að
segja ókleift að flytja gögn á auð-
veldan hátt í WorldFeng. Sam-
ræmt kerfi gagnavörslu er ekki
fyrir hendi.
Við það bætist að ræktun ís-
lenska hestsins í Þýskalandi hófst
fyrir síðari heimsstyrjöldina, með
greinilegri aukningu á innflutn-
ingi hrossa á sjötta áratugnum.
Algengt er við skráningu á hross-
um, sem nú eru notuð í ræktun-
inni, að skrá þurfi ijóra, fimm og
stundum sex ættliði, einkum í
móðurætt hrossins en fyrst þarf
að skrá foreldra áður en hægt er
að skrá hrossið sjálft. Þessu fylg-
ir gríðarleg vinna og að sama
skapi mikill kostnaður sem annað
hvort ræktandinn eða eigandi
hestsins þarf að greiða og þeir
spyrja þá eðlilega sjálfa sig hvað
þeir fá í staðinn?
Athugun á hreinræktun
HROSSA FYRIR SKRÁNINGU
Auðvitað gera þýskir ræktend-
ur sér grein fyrir að með því að
láta skrá hrossið sitt í WorldFeng
eru þeir að fá aukalega kerfis-
bundna athugun og skráningu á
hreinræktun hestsins síns. Sér-
stök vottun á hreinræktun þýsk-
fæddra íslenskra hrossa, sem
flutt voru úr landi og skráningar-
skrifstofur í innflutningslandi
kröfðust, falla nú niður ef við-
komandi hross er skráð í World-
Feng.
Auk þess þarf hrossaræktandinn
að skrá hrossin sín í WorldFeng ef
hann ætlar sér að láta dæma þau
samkvæmt núgildandi FIZO
reglugerð í Evrópu. I þessu tilfelli
er einnig tryggt að gerð hefur ver-
ið athugun á hreinræktun hrossins
íyrir dóm.
Mikið úrval upplýsinga
FYRIR RÆKTENDUR,
TAKMÖRKUÐ NOTKUN
Ræktendur hafa möguleika á að
notfæra sér hið víðtæka úrval af
upplýsingum í WorldFeng án þess
að þurfa að skrá þar hrossin sín.
Til þess þarf ræktandinn að gerast
áskrifandi að WorldFeng, búa yfir
nægjanlegri þekkingu og aðgangi
að netinu ásamt nauðsynlegum
tæknilegum búnaði. Einkum hjá
ræktendum af eldri kynslóðinni
eru þessi frumskilyrði ekki alltaf
fyrir hendi. Dæmi hafa þó sýnt að
einmitt þessi hópur fólks víkur
ekki frá tölvunum þegar búið er
að sigrast á byrjunarörðugleikun-
um. Þannig sjá reyndir ræktendur
mjög fljótt að WorldFengur býður
upp á mjög áhugaverðar upplýs-
ingar sem nýta má á margvíslegan
hátt til að nálgast hagkvæmustu
pörunina í ræktuninni.
Arangur í hrossarækt mun þeg-
ar allt kemur til alls fara eftir til-
fínningu og reynslu hvers og eins,
tilfmningu sem segir til um að
einmitt tiltekin hryssa henti við-
komandi stóðhesti. Akveðin óvis-
sa fylgir þessari ákvörðun sem
hverfur aldrei að fullu. Þrátt fyrir
kynbótamat og kynbótadóma
reyndra dómara, er ýmislegt háð
tilviljunum og það gerir einmitt
hrossaræktina svo spennandi.
Þessu má líkja við það að sömu
spumingar leita á okkur ræktendur
á hverju ári þegar við fömm að
huga að því hvenær best sé að hefja
heyskap. Hin besta veðurspá er
engin trygging fyrir þvi að hægt sé
að ná heyinu þurru í hlöðuna. Þrátt
fyrir það myndi enginn vilja fara á
mis við að líta þó ekki væri nema
einu sinni á veðurspána áður en
heyskapur er hafinn. Einkum á það
við um ákvarðanir sem mikil óvis-
sa ríkir urn. I þeirn tilfellum styrkja
viðbótarupplýsingar ákvörðunina.
Hliðstæðar aðstæður má fínna
hjá kynbótamati WorldFengs. Þar
gefst ræktendum kostur á að fá
þýðingarmiklar viðbótarupplýs-
ingar sem geta gefíð góðar vís-
bendingar um frekari þróun rækt-
unarstarfsins og nýtist við leit á
hagkvæmustu pömninni.
KYNBÓTAMAT FYRIR ÞÝSKFÆDD
HROSS EKKl FYRIR HENDI
Þvi miður hafa þýskir ræktend-
ur aðeins takmarkaðan aðgang að
þessu mikilvæga “ræktunartóli”
sem kynbótamatið er. Islensk
hross, sem fædd eru í Þýskalandi,
em enn sem komið er ekki höfð
með í útreikningum á kynbóta-
mati. Frá mínum bæjardyrum séð
útskýrir það takmarkaðan áhuga
þýskra ræktenda á WorldFeng
sem stendur. Það verður ekki fyrr
en þýskir ræktendur geta fundið
kynbótamat hrossanna sinna í
WorldFeng og sjá að þeir geta haft
jákvæð áhrif á það með því að láta
dæma ræktunarhrossin sín og af-
komendur þeirra sem ræktendur
fara að hagnýta sér möguleika
WorldFengs í auknum mæli.
Þannig munu sífellt fleiri rækt-
endur láta skrá hrossin sín í
WorldFeng og þá fyrst mun
áskrifendum WorldFengs fjölga.
ESB-fæðingarnúmer leitar-
SKILYRÐI í WORLDFENG
I nóvember 2004 var haldinn
sameiginlegur fundur allra rækt-
unarfúlltrúa þýskra hrossaræktar-
sambanda og fulltrúa IPZV (Is-
landpferde Reiter und Ziichterver-
band). IPZV eru félagasamtök
eigenda og ræktenda íslenska
hestsins í Þýskalandi. Félagsmenn
þess eru nú yfír 20.000 og hefúr
það umsjón með hagsmunum
ræktenda gagnvart þýsku hrossa-
ræktarsamböndunum. Fyrir til-
stuðlan IPZV á þessum fundi var
stofnaður starfshópur, sem hefur
það verkefni að skapa skilyrði fyr-
ir því að skrá öll folöld, sem fæð-
ast á einu ári, i WorldFeng.
| 64-Freyr 11-12/2004