Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.12.2004, Qupperneq 67

Freyr - 15.12.2004, Qupperneq 67
lenski hesturinn”, sem áður var minnst á, og síðast en ekki síst um- fangsmikið vefsetur (www.sogu- setur.is), þar sem áhugafólk um sögu íslenska hestsins ætti að geta fundið ýmislegt við sitt hæfi. Að lokum vil ég þakka sérstak- lega stjóm Sögusetursins, þeim Víkingi Gunnarssyni, Sigríði Sig- urðardóttur og Skapta Stein- bjömssyni, fyrir gott og ánægju- legt samstarf á þessum tíma. Ég lýk þessari samantekt með þeirri frómu ósk að það takist að endur- vekja og endurreisa Sögusetrið sem allra íyrst og að það megi í fyllingu tímans verða sú miðstöð þekkingar, fræðslu og rannsókna um sögu íslenska hestsins og menningarlegt hlutverk hans sem að var stefnt í upphafí. Beislisstengur úr kopar frá 17. öld, varðveittar i Byggðasafninu i Skógum. (Ljósm. Björn Kristjánsson). Moli Matvælaöryggi VARÐAR ALÞJÓÐA SAMFÉLAGIÐ Matvælaöryggi og kúariðu bar hæst á heimsráðstefnu kjötfram- leiðenda, World Meat Congress, sem haldin var í Winnipeg í Kan- ada sumarið 2004. í ávarpi sínu við setningu ráð- stefnunnar sagði landbúnaðar- ráðherra Kanada, Bob Speller, að kúariðan væri ógn sem öll lönd heims þyrftu að sameinast gegn. Hann kallaði eftir kerfi sem næði um allan heim og ynni að matvælaöryggi til að byggja aftur upp traust neytenda gagnvart kjötmarkaðnum. Uppkoma kúar- iðunnar breytti viðhorfum til markaðarins. Eftir því sem al- þjóðlegir markaðir tengjast meira saman verða kröfur, sem gerðar eru og eftirlit með að þeim sé framfylgt, að verða alþjóðlegri. Sérfræðingur og fulltrúar kjöt- iðnaðarins, sem sóttu ráðstefn- una, bentu á að hröð þróun ætti sér nú stað innan greinarinnar. Áður voru það viðhorf framleið- enda sem hæst bar en nú eru það viðhorf neytenda sem hafa mest að segja. Neytendur láta sér ekki lengur nægja að fá upp- lýsingar um uppruna kjötsins, heldur vilja einnig upplýsingar um framleiðsluaðferðir. Landbúnaðarstjóri ESB, Franz Fischler, gerði grein fyrir hvernig sambandið hefði tekið á þessum málum síðustu ár. ESB hafði varla jafnað sig eftir uppkomu kúariðunnar þegar gin- og klaufaveikin gaus upp. Eftir hana kom upp fuglainflúensan og að lokum bráðalungnabólgan, skammstöfuð HABL á íslensku, en SARS á ensku. Franz vitnaði í upplýsingar frá FAO, sem sýna að þessir sjúkdómar hafa haft áhrif á þriðjung allra milliríkjavið- skipta með kjöt. Hann upplýsti jafnframt að kúariðan hafi verið þörf áminning fyrir þá sem stjórna málefnum landbúnaðarins í Evrópu. Sú kreppa, sem kjötframleiðsla í Evrópu gekk í gegnum, sýndi fram á að full þörf væri að koma á kerfi til að finna uppruna og rekja feril kjötsins alla leið I hendur neytandans, en Franz Fischler benti á að hræddir neyt- endur gætu stórskaðað kjötmark- aðinn. Neysla nautakjöts hefur nú jafnað sig eftir að kúariðan kom upp. Árið 2003 var eftirspurn í ESB eftir nautakjöti meira en framboð I fyrsta sinn í 20 ár og það stefnir I það sama í ár, sagði Franz Fischler. Þetta þakkar hann þeim reglum sem teknar hafa verið upp í ESB um rekjan- leika kjötsins. Þátttakendur á þessari heims- ráðstefnu kjötframleiðenda í Winnipeg voru frá 56 löndum. Næsta ráðstefna verður haldin í Brisbane í Ástralíu árið 2006. (Landsbygdens Folk nr. 26/2004). Freyr 11-12/2004-67 |
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.