Freyr

Årgang

Freyr - 15.12.2004, Side 70

Freyr - 15.12.2004, Side 70
Tveir hestar sem báðir bera erfðavísi fyrir leirljósu. Hesturinn vinstra meginn er móbrúnn (Samúel frá Þjótanda) en sá til hægri glóbrúnn (Kristgeir frá Hólmum). Báðir eru brúnir að upplagi en leirljósi erfðavísirinn hefur svona ótík áhrifá lit þeirra. (Ljósm. Guðni Þorvaldsson). og sum glóbrúnu hrossin. Ekki fundust glóbjört hross eins og þeim er lýst erlendis. Leirljósu hrossin voru flest með dökk augu þó greina mætti ljósari blæ í sum- um þeirra. Eitt leirljóst hross var þó með gulan hring í kringum sjá- aldrið. Ekki fundust heldur hross með ljósa húð eða dröfnótta en mér finnst ég hafa séð þannig hross og gaman væri að fregna af slíkum hrossum. Einu hrossin, með mjög fölan húðlit, voru hvít- ingjar eða tvílit hross. Slóð leirljósa erfðavísisins Slóð leirljósa erfðavísisins í glóbrúnu hrossunum var rakin eins langt aftur og hægt var. Þá kom í ljós að hjá stórum hópi mátti rekja erfðavísinn til tveggja þekktra stóðhesta, Sleipnis (nr. 249) frá Uxahrygg á Rangárvöll- um og Blakks (nr. 169) frá Hofs- stöðum í Skagafirði. Sleipnir var leirljós og fæddur árið 1938 en Blakkur móbrúnn, fæddur 1933. Ástæðan fyrir því að rekja má svo mörg þessara glóbrúnu hrossa til þeirra er líklega sú að þetta voru kynsælir hestar sem skiluðu góð- um afkomendum og eiga því stær- ri hóp afkomenda en ýmsir aðrir hestar sem báru erfðavísi fyrir leirljósu. Einnig gætu þeir hafa dreift öðrum erfðavísum sem þarna hafa áhrif. Það kom t.d. í ljós út frá skráningum í Feng að hlutfall glóbrúnna af brúnum af- kvæmum stóðhesta var mjög breytilegt. Þriðja glóbrúna hóp- inn, sem er þó mun minni en hin- ir tveir, má rekja til tveggja leir- Moldótt hross (glómoldótt). Það sem venjulega er svart á moldóttum hrossum er mórautt á þessum (Harpa frá Borgarnesi til hægri og Galsi frá Herjólfsstöðum til vinstri). á 170 - Freyr 11-12/2004

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.