Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.2004, Blaðsíða 71

Freyr - 15.12.2004, Blaðsíða 71
ljósra hesta í Borgarfírði og mold- óttrar hryssu. Þessi hross eru Ljósaskjóni frá Lundum II í Staf- holtstungum, (forfaðir margra hrossa frá Sveinatungu og víðar), Lýsingur frá Hamraendum (for- faðir Blöndals frá Stafholti) og Molda frá Kletti í Reykholtsdal en meðal afkomanda hennar er gló- brúnn stóðhestur, Loftfari frá Vil- mundarstöðum. Ættir margra gló- brúnna hrossa í Feng má rekja til annarra hrossa en þeirra sem að ofan er getið en það er þá yfirleitt mjög fá á hvem einstakling. Lýsingur frá Voðmúlastöðum er sá afkomandi Sleipnis sem flest glóbrún hross eru út af. Hann var notaður í Mosfellssveit, Borgar- firði, Skagafirði og Fljótsdalshér- aði auk fæðingarsveitar sinnar. Skýfaxi frá Selfossi, sonur Sleipn- is, hafði einnig töluverð áhrif og annar sonur hans Bráinn frá Vorsabæ hafði nokkur áhrif einn- ig. Fylkir frá Flögu var afkomandi Skýfaxa og töluvert af glóbrúnu hefur komið út af honum. Af yngri afkomendum Sleipnis er mest til af glóbrúnu út af Oddi frá Selfossi en hann er dóttursonur Fylkis. Einnig em til glóbrún hross undan sonum Odds, Þyrli frá Kjamholt- um og Skinfaxa frá Þóreyjamúpi. Enn fremur bræðrum Odds, Samúel frá Þjótanda og Mími frá Selfossi. Undan Blakki var Ljósblesa frá Kirkjubæ en frá henni barst erfða- vísirinn fyrir ljósa litnum m.a. að Garðsauka í Hvolhreppi, en stóð- hesturinn Hjarrandi frá Garðsauka var sonarsonur hennar. Sonur Blakks, Reykur frá Hofsstöðum (Félags-Brúnn) á marga glóbrúna afkomendur í Feng. Undan honum var Venus frá Gufunesi en meðal afkvæma hennar vom Júpiter frá Reykjum og Litla-Venus frá Reykjum. Ljósvaki ffá Akureyri hefur sinn erfðavísi fyrir leirljósu frá Júpiter. Blakkur frá Reykjum var sonur Litlu-Venusar og fékk í arf erfðavísinn fyrir leirljósa litnum. Frá honum eru mörg glóbrún hross komin og einnig syni hans Degi frá Mosfellsbæ. Léttir (fæddur 1946) frá Kolkuósi var sonarsonur Blakks frá Hofsstöðum og bar erfðavísi fyrir leirljósu eins og afi hans. Undan hon- um var t.d. Dagur frá Kolku- ósi, eftirminnilegur reiðhest- ur Sigurðar Haraldssonar í Kirkjubæ. Þó nokkur gló- brún hross em til þar sem rekja má erfðavísinn fyrir ljósa litnum til Léttis, flest út af Stíganda frá Hvolsvelli en einnig Asa frá Brimnesi, Stjama frá Vatnsleysu, Vafa frá Kýrholti, Háfeta frá Hvolsvelli o.fl. Litaskráningar Leirljós hestur með gulbrún augu (Jökull frá Brautartungu). (Ljósm. Ólafur Guðmundsson). Við þessa rannsókn kom í ljós að litaskráningar í Feng eru ekki nógu ná- kvæmar, sérstaklega á þetta við blæ litanna. Þar kemur tvennt til, liturinn er jafnan metinn af eigendum sem geta haft ólíkar hugmyndir um hvað sé dökkt, Ijóst eða millilitur. Enn fremur er liturinn oft metinn á folöldum að hausti eða vetri og þá er ekki gott að sjá hvemig litblærinn verður síðar meir. Við frekari skoðun á glólitunum þarf því að skoða stór- an hóp afkvæma ákveðinna stóð- hesta sem gefa glóbrúnt, upplýs- ingar í Feng nægja ekki. Lokaorð Þessi rannsókn bendir eindregið til þess að glóbrúnt tengist hefð- bundnum erfðavísi fyrir leirljósu en ekki kampavínslitarerfðavísin- um eins og honum er lýst erlend- is. Það virðist ekki nóg að brúnt hross beri erfðavísi fyrir leirljósu til að það verði glóbrúnt. Það þarf hjálp frá öðmm erfðavísum til að svo verði. Sú spuming vaknar þá einnig hvort skýra megi þennan kampavínslit í erlendum kynjum með svipuðum hætti. Að hann komi fram við samspil erfðavísis fyrir leirljósu við aðra erfðavísa. Heimildir Guðni Þorvaldsson, 2005. Eru til kampavínslitir í íslenska hrossastofn- inum? RALA 027/BU-004. 17 bls. Sponenberg, D.P. & Bowling, A.T., 1996. Champagne, a dominant colour dilution of horses. Genetics, Selection and Evolution 28, 457-462. Stefán Aðalsteinsson, 1974. Inher- itance of palomino colour in Iceland- ic horses. Joumal of Heredity 65, 15- 20. Stefán Aðalsteinsson, 2001. Is- lenski hesturinn - litir og erfðir. Orm- stunga, Reykjavík. 155 bls. Freyr 11-12/2004-71 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.