Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Side 199

Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Side 199
Mat á umhverfisáhrifum vegaframkvæmda 197 Með því að bera saman síu-skilyrðin hér að framan sést að íslenska skilyrðið er mjög óvanalegt. í Evrópubandalaginu, Bretlandi, Noregi og Danmörku eru metin umhverfisáhrif viðamikilla vegaframkvæmda og smærri vegaframkvæmda aðeins ef þær hafa umtalsverð umhverfisáhrif. Á íslandi er hins vegar lagning nýs vegar ávallt matsskyld framkvæmd. Það sem vekur enn meiri furðu er sú staðreynd að íslenska síu-skilyrðið er skilgeint í lögunum sjálf- um en ekki í reglugerðinni sem fylgdi í kjölfar lagasetningarinnar. í ljósi þess að íslenska skilyrðið er óvanalegt, vaknar sú spurning hvort að það er viðeig- andi. Eins og fram kemur í kafla 2 þá er mikilvægasta ástæðan fyrir síu-skilyrðunum sú að ef þau eru skynsamlega uppbyggð er tryggt að tekið er á helstu umhverfisáhrifum framkvæmda í viðkomandi landi í umhverfismatsferlinu. Það þarf ekki að skoða íslensku lögin/reglugerð- ina lengi til að sjá að síu-skilyrðið varðandi vegaframkvæmdir er of strangt miðað við önnur síu-skilyrði sem þar eru eða eru ekki skilgreind. Þannig eru til dæmis engin síu-skilyrði skil- greind varðandi skógrækt og landgræðslu en sem dæmi má nefna að í Noregi þarf að meta umhverfisáhrif skógræktar ef rækta á meira en 2 km2 af svo til samfelldum skógi á innan við 5 árum. Afleiðing þess að hafa mjög strangt síu-skilyrði varðandi vegaframkvæmdir en engin skilyrði um ýmsar aðrar framkvæmdir veldur því að hlutfallslegur fjöldi mata á umhverfis- áhrifum fyrir vegaframkvæmdir er miklu meiri en sem nemur hlutfallslegum umhverfisáhrif- um þessara framkvæmda. Þetta þarf ekki að þýða að fjöldi mata á umhverfisáhrifum fyrir vega- framkvæmdir sé of mikill. Þetta þýðir einfaldlega það að umhverfisáhrif þeirra framkvæmda sem hafa mest umhverfisáhrif eru ekki metin. Kerfið í heild sinni er því ekki eins hagkvæmt og það gæti orðið. Sú spurning hlýtur því að vakna hvernig viðeigandi síu-skilyrði varðandi vegaframkvæmdir gæti litið út. Ef norska skilyrðið væri notað yrði árlegur fjöldi matsskyldra vegaframkvæmda hér á landi 0-1. Allir ættu að geta verið sammála um slíkur fjöldi væri of lítill og að ef nota ætti síu-skilyrði sem byggðist á kostnaði þá yrði slíkt skilyrði að vera strangara hér á landi en í Noregi. Ef danska skilyrðið væri notað yrðu umhverfisáhrif vegaframkvæmda aðeins metin innan Reykjavíkur og í næsta nágrenni við höfuðborgina. Raunar hentar danska skilyrðið ekki íslenskum aðstæðum því að umhverfisáhrif vegaframkvæmda hér á landi eru aðeins að litlu leyti háð magni umferðar á viðkomandi vegi. Breska skilyrðið virðist vænlegra. Það byggir á lengd vegarins en ekki kostnaði og tekur jafnframt tillit til viðkvæmni umhverfisins og fjölda íbúa sem búa í næsta nágrenni við vegstæðið. Breska skilyrðið byggir á skilyrði Evrópubandalagsins frá 1985 en innifelur jafnframt helstu breytingarnar sem gerð hefur verið tillaga um varðandi það skilyrði. Síu-skilyrði varðandi efnistöku skipta vegagerð einnig miklu máli því umtalsvert magn af fyllingarefni þarf til vegagerðar. Á Islandi þarf að meta umhverfisáhrif efnistökunnar ef efnistökustaðurinn er 50.000 m2 eða stærri að flatarmáli eða þar sem fyrirhuguð efnistaka er meiri en 150.000 m2. í Noregi þarf að meta umhverfisáhrif efnistökunnar ef efnistöku- staðurinn er 50.000 m2 eða stærri að flatarmáli eða þar sem fyrirhuguð efnistaka er meiri en 500.000 m3. Á Bretlandi þarf að meta umhverfisáhrif efnistökunnar ef efnistökustaðurinn er 500.000 m2 eða stærri að flatarmáli. í Danmörku þarf að meta umhverfisáhrif efnistökunnar ef hún er meiri en 200.000 m3/ári eða ef vinnslutíminn er lengri en 10 ár og svæðið er ekki skilgreint sem efnistökustaður á skipulagsuppdrætti. Hér er íslenska síu-skilyrðið strangara en í nágrannalöndunum en engu að síður eru umhverfisáhrif aðeins metin fyrir þær framkvæmdir senr teljast viðamiklar á íslenskan mælikvarða. 4 Umræöa Vegagerðinni á íslandi er skipt í sjö umdæmi. Gera má ráð fyrir að á hverju ári séu tvær til þrjár nýframkvæmdir í hverju umdæmi þar sem um er að ræða einhverjar breytingar á veglínu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220

x

Árbók VFÍ/TFÍ

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók VFÍ/TFÍ
https://timarit.is/publication/899

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.