Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2004, Blaðsíða 62
Rekstur og þjónusta
Lífeyrisgreiðslur sjóðsins námu rúmum 147 milljónum króna á árinu 2003 og hækkuðu
um 17,4%. Alls fengu 159 einstaklingar greiddan lífeyri úr sjóðnum á árinu og voru 16
fleiri en árið áður. Ellilífeyrisþegar voru 108 talsins, örorkulífeyri fengu tíu sjóðfélagar,
makalífeyrisþegar voru 33 og átta fengu barnalífeyri.
Lán til sjóðfélaga námu 378 milljónum króna á síðasta ári sem er um 4,3% hækkun milli
ára en um 3% hækkun milli ára miðað við byggingarvísitölu. Hlutfall sjóðfélagalána af
heildareign sjóðsins lækkaði þó milli ára og er nú 26,2%. Vextir af sjóðfélagalánum voru
óbreyttir, 3,5% verðtryggðir vextir.
Rekstrarkostnaður sjóðsins lækkaði um rúmar 6,3 milljónir króna á milli ára, úr 37,8
milljónum króna í 31,4 milljónir króna, eða um 21%. Lækkunin stafar einkum af lækkun
launakostnaðar vegna fækkunar starfsfólks og minni afskriftum búnaðar, en fyrra árið
höfðu gömul tölvukerfi verið afskrifuð að fullu. Hlutfall rekstrarkostnaðar af heildar-
eignum sjóðsins lækkaði því milli ára eins og búist hafði verið við. Það er nú komið niður
í 0,22% og hefur væntanlega aldrei verið lægra.
Afram var unnið að því að nýta eiginleika nýrra tölvukerfa sjóðsins til að auka sjálfvirka,
rafræna vinnslu, minnka innsláttarvinnu starfsmanna sjóðsins og bæta upplýsingagjöf til
sjóðfélaga og launagreiðenda, m.a. með aðgengi á Internetinu. Hátt í þrjú hundruð
sjóðfélagar hafa sótt um lykilorð til sjóðsins til að skoða iðgjöld og réttindi sín á netinu og
er þess að vænta að slíkur samskiptamáti fái sífellt meira vægi.
Meðalfjöldi starfsmanna hjá sjóðnum á árinu 2003 var fjórir. Heildarfjárhæð launa var kr.
24.005.459, þar af námu laun stjórnar kr. 1.647.335 og framkvæmdastjóra kr. 7.626.508.
í lok ársins 2003 áttu 2.844 sjóðfélagar réttindi
í sjóðnum, en 2.253 sjóðfélagar greiddu
iðgjöld í sjóðinn á árinu. Sjóðfélögum fjölgaði
um 141 á árinu. Að jafnaði greiddu 2.030
sjóðfélagar reglulega mánaðargreiðslur í
sjóðinn.
Stjóm sjóðsins var þannig skipuð á því starfs-
ári sem nú er að ljúka: Jónas Bjarnason for-
maður, Sigurður Áss Grétarsson varafor-
maður og Björn Z. Ásgrímsson, Egill Skúli
Ingibergsson og Guðbrandur Guðmundsson
meðstjórnendur.
Frá síðasta aðalfundi hafa verið haldnir 13
stjórnarfundir, auk þess sem stjómin hefur
átt nokkra fundi um fjárfestingar sjóðsins,
m.a. með fjármálafyrirtækjum og ráðgjöfum.
f \
Sjóðfélaqar í Lífeyrissjóði verkfræðinga 1954-2004.
6 0
Arbók VFÍ/TFÍ 2004