Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2004, Blaðsíða 211
Ályktanir
Upplýsingatæknin hefur opnað nýja möguleika til skilvirkari samskipta og
upplýsingamiðlunar í verkefnum. Vefkerfi eru kærkomin viðbót við flóru annarra sam-
skiptamiðla, allt frá hefðbundnum miðlum eins og fundum til nýrri miðla eins og
tölvupósts.
Rannsóknin sýnir að viðhorf gagnvart vefkerfum eru mjög jákvæð og virðist vera góð
reynsla af notkun þeirra. Notkun vefkerfa leiðir til rekjanlegra samskipta, auðveldara er
að finna gögn auk þess sem vefkerfin auðvelda samskipti í stórum og flóknum
verkefnum verulega.
Mikla áherslu þarf að leggja á innleiðingu vefkerfis til þess að árangur náist, það þarf að
kenna notendum á kerfið, hvetja þá til notkunar og fylgja innleiðingunni eftir. Þá þarf að
vera virk notkun á vefkerfinu til þess að það nýtist vel í verkefninu.
Mikil framþróun hefur átt sér stað með tilkomu upplýsingatækninnar og samskipta-
mynstur innan verkefna hefur breyst svo um munar. Víst má telja að notkun vefkerfa í
verkefnum færist mjög í vöxt á næstu árum samfara frekari þróun kerfanna og útbreiðslu
upplýsingatækninnar. íslenskir verkefnastjórar ættu því að kynna sér möguleika þessara
kerfa, hagnýta sér þau til að ná bættum árangri og fylgjast vel með þróun þeirra.
Heimildir
[1] Pozner, B.Z. 1987. What it takes to be a good project manager. Project Management Journal. 18(1), 51-55. Project
Management lnstitute,Sylva.Endurprentað með leyfi í Meredith & Mantel (2000), bls.134-138.
[2] Wisbrant, J. 2003. Fyrirlestrarglærur: Presentation och samhalle. Kommunikation i IT-projekt.LundsTekniska Högskola,
Lund. http://www.cs.lth.se/Education/courses/EDA250/doc/Projektkommunikation.pdf Glærur sóttar á vefnum 5.
maí 2004.
[3] Berg Von Linde, R. 2003. Kommunikation och nya arbetsformer. Ritstjóri: Örjan Wikforss: Byggandets
Informationsteknologi, bls.139-165.Svensk byggtjánst, Stockholm.
[4] Meredith, J.R. & Mantel, S.J.Jr. 2000. Project Management. A Managerial Approach, fourth edition. John Wiley & Sons,
Inc., New York.
[5] Gray, C.F. & Larson, E.W. 2000. Project Management.The Managerial Process. McGraw-Hill, Boston.
[6] Helgi Þór Ingason. 2002a. Stjórnun tæknilegra verkefna á öld upplýsingatækni. Ný áskorun - nýir möguleikar. Árbók
VFÍ/TFÍ 2002, nr.14, bls.288-292.Verkfræðingafélag íslands ogTæknifræðingafélag íslands, Reykjavík.
[7] Alshawi, M. & Ingirige, B. 2002. Web-Based Project Management. University of Salford, Salford.
[8] Línuhönnun hf. http://www.lh.is Heimasíða skoðuð 22. mars 2004.
[9] Munnlegar heimildir frá notendum/umsjónarmönnum kerfanna.
[10] Elena verkefnið. http://www.elena-project.org/ Heimasíða skoðuð 22. mars 2004.
[11] Síminn. http://www.siminn.is Heimasíða skoðuð 22. mars 2004 og aftur 5. maí 2004.
[12] Kárahnjúkavirkjun. http://www.karahnjukar.is Heimasíða skoðuð 22. mars 2004.
[13] EURESCOM. 2001. Project Report. Getting Online Communities to Develop. Success Factors of Online Business
Communities. Ritstjórar: Deborah DiDuca & Roberto Marion. Project P1146. European Institute for Research and
Strategic Studies in Telecommunications GmbH, Heidelberg.
Ritrýndar
vísindagreinar
2 0 9