Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2004, Blaðsíða 171
Vottun RB
Lett-Tak þakeiningarnar fengu vottun
Rannsóknarstofnunar byggingariðn-
aðarins í mars árið 2000 fyrir tiltekin
notkunarsvið, sjá töflu 1.
í tengslum við vottunina fór fram
sérstök athugun á rakabúskap eining-
anna sem var framkvæmd af Jóni
Viðari Guðjónssyni hjá Línuhönnun.
Einnig var gerð athugun á burðarþoli
þeirra af Þorsteini Magnússyni verk-
fræðingi en verkfræðistofa hans ann-
ast útreikninga fyrir hvert einstakt
þak.
Hallgrímur Axelsson, Jón Viðar Guðjónsson og Þorsteinn
Magnússon undirbjuggu vottun Lett-Tak þakeininganna.
Myndin er tekin framan við hús (staks við Engjateig.
Tafla 1 Val Lett-Tak eininga tneð tilliti til umhverfisaðstæðna
Rakaflokkur Meðaltals hlutfallsraki inni rniðað við 20°C (%) Dæmi um tegund húsnæðis Lett-Tak þakeiningar þakgerð
A <25 Skrifstofur Verslanir Þjónustuhúsnæði „Þurrt" lagerhúsnæði i,ii, m, iv, vi
B 25-35 Ibúðarhús „þurr" iðnaður Skólar íþróttahús I, III, 1V‘, VI
C 35-45 „Votur" iðnaður Böð, búningsklefar V*, VI*
D 45-55 Sundlaugar VI*
* þegar urtnið er við þakgerð IV í rakaflokki B, þakgerð V og VI í rakaflokki C og þakgerð VI
í rakaflokki D skal hafa sérstakt óháð eftirlit með frágangi rakavarnar.
Þakgerðir (uppbygging eininga)
Nr. Þéttilag Rakavamarlag
I PVC-dúkur, Protan SE þakdúkur Þolplast 0,2 mm
II Eitt lag asfaltdúkur, 2kg/m2, undir þakstáli á ásum Þolplast 0,2 mm
III Eitt lag asfaltdúkur, 2kg/m2, undir þakstáli á ásum Aukin rakavörn
IV Tvö lög asfaltdúkur, allt að 8,5 kg/m2 Aukin rakavörn
v PVC-dúkur, Protan SE-þakdúkur Aukin rakavörn
VI Útloftað þak, þéttilag óskilgreint** Aukin rakavörn
** Lett-Tak-eining með krossviðsþekju. Þar á er staðbyggt útloftað þéttilag, t.d. dúkur, pappi
eða málmur.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana
1 6 9