Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2004, Blaðsíða 98
cn cn
HAFNARFRAMKVÆMDIR 2 0 0 3
Árið 2003 var eftirtöldum fjárhæðum varið til ríkisstyrktra framkvæmda við hafnir. Til
samanburðar eru tölur fyrra árs en sú breyting varð í samræmi við ákvæði nýrra hafna-
laga að eftir 1. júlí 2003 fékkst virðisaukaskattur af hafnarframkvæmdum endurgreiddur
og er hann ekki meðtalinn í uppgjöri frá þeim tíma.
2003 millj. kr. 2002 millj. kr.
Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir 1.266,4 1.870,0
Ferjubryggjur 0,4 15,5
Lendingarbætur 7,0
Samtals 1273,8 1.885,5
Að vanda skiptust framkvæmdir í höfnum landsins í viðhaldsverk og nýbyggingar.
Viðhaldsverk fólust einkum í dýpkun hafna og aðsiglinga og ýmiss konar endurnýjun á
hafnarmannvirkjum. Veigamesta nýbyggingin var bygging ferjuhafnar á Seyðisfirði, en
lokið var við hana á árinu og voru mannvirkin vígð þann 31. júlí 2003.
Framkvæmdir 35 hafnarsjóða nutu styrkja úr ríkissjóði árið 2003. Heildarkostnaður við
þær nam kr. 1.266,4 millj. og þar af var hlutur ríkissjóðs 857,4 millj. kr. Þá varði ríkið alls
kr. 7,4 millj. til lendingarbóta og ferjubryggja.
Heildarkostnaður vegna sjóvarna var á árinu 2003 kr. 104,4 millj. og þar af var hlutur
ríkissjóðs kr. 90,9 millj.
Stærstu hafnarframkvæmdir ársins 2003 voru eftirtaldar:
Akranes: Á Akranesi var dýpkað við aðalhafnargarð og garðurinn endurbyggður með
nýju stálþili auk þess sem ferjubryggjan var klædd með harðviði. Heildarkostnaður við
framkvæmdir í Akraneshöfn var 124,7 millj. kr.
Þorlákshöfn: Miklar hafnarframkvæmdir voru á Þórshöfn sem m.a. fólust í því að byggja
stálþil austan Nýjubryggju, lengja Nýjubryggju sjálfa og dýpka innsiglingu og hafnarkví.
Kostnaður við framkvæmdir á Þórshöfn nam 163,7 millj. kr.
Vopnafjörður: Á Vopnafirði var unnið að byggingu brimvarnargarðs milli Miðhólma og
Skiphólma sem er um 350 m að lengd. Framkvæmdakostnaður var 101,9 millj. kr.
Seyðisfjörður: Lokið var byggingu ferjuhafnar á Seyðisfirði og mannvirkja sem henni
tengjast. Framkvæmdakostnaður ársins 2003 nam 184,3 millj. kr.
Vestmannaeyjar: Ýmiss konar viðhaldsverk voru unnin í Vestmannaeyjahöfn, sem m.a.
fólust í rekstri stálþils í nyrðri hluta Friðarhafnar, raflögn á Nausthamarsbryggju, frá-
gangi á smábátaaðstöðu og dýpkun í höfn og innsiglingu. Heildarkostnaður við þessar
framkvæmdir varð 122,8 millj. kr.
Arbók VFl/TFi 2004