Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 4
31. mars 2012 LAUGARDAGUR4
Rangt var farið með nafn ljósmyndar-
ans sem tók forsíðumynd Lífsins, sem
fylgdi Fréttablaðinu í gær. Rétt er að
Stefán Karlsson tók myndina.
LEIÐRÉTT
GENGIÐ 30.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
230,4448
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,17 126,77
201,97 202,95
168,26 169,20
22,615 22,747
22,133 22,263
19,041 19,153
1,5363 1,5453
195,38 196,54
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
BRUSSEL, FRÉTTABLAÐIÐ Fjórir samn-
ingskaflar voru opnaðir á ríkjaráð-
stefnu Íslands og ESB í Brussel í
gær. Tveimur var lokað sam-
dægurs, um utanríkis-, öryggis-
og varnarmál, og um neytendamál
og heilsuvernd, en samningavið-
ræður halda áfram um hina tvo,
sem fjalla um samkeppnismál og
orkumál. Með því hafa fimmtán
kaflar af 33 verið opnaðir og tíu
þegar lokað.
Í tilkynningu frá ráðherraráði
ESB segir meðal annars að yfir-
lýsing um sérstöðu Íslands sem
herlauss lands verði hluti af samn-
ingum ef til þess kemur. Einnig er
tekið fram að varnarmálastefna
ESB muni ekki hafa áhrif á forræði
Íslands um mótun og framkvæmd
stefnu Íslands í málaflokknum.
Varðandi seinni kaflana tvo
setti sambandið fram ýmis atriði
sem Ísland þarf að framfylgja svo
að hægt verði að loka þeim. Meðal
annars skal Ísland leggja fram
áætlun um hvernig krafa ESB um
lágmarksolíubirgðir verði uppfyllt,
en í samningsafstöðu Íslands var
farið fram á að fá frest til að mæta
kröfunum með því að draga úr olíu-
notkun innanlands í stað þess að
auka birgðir.
Í tilkynningu á vef utanríkis-
ráðuneytisins kemur fram að í
umræðum um orkukaflann hafi
ESB staðfest þann skilning Íslands
að aðild muni ekki koma til með að
hafa áhrif á eignarhald og stjórn
landsins yfir eigin auðlindum,
og var í því sambandi vísað til
ákvæðis þar að lútandi í Lissabon-
sáttmálanum.
Í samkeppnismálum tók ESB
fram að þeim kafla mætti loka sýni
Ísland fram á „að löggjöf um auð-
hringi, samruna fyrirtækja og um
ríkisaðstoð sé rétt framfylgt“.
Stefán Haukur Jóhannesson,
aðalsamningamaður Íslands, sagði
í samtali við Fréttablaðið að hann
væri almennt sáttur við gengið í
viðræðunum þar sem nærri helm-
ingur kaflanna hafi þegar verið
opnaður, en hefði þó gjarna vilja
sjá fleiri samningsköflum lokað.
„Við erum metnaðarfull í okkar
vinnu og höfðum sett okkur það
markmið á fyrri stigum að hafa
fleiri kafla til umfjöllunar á
þessum tíma. Aðalatriðið er hins
vegar að við viljum vanda til verka
en stundum taka hlutirnir lengri
tíma en maður vill eða hefði haldið
fyrirfram.“
Næsta ríkjaráðstefna verður
haldin í lok júní, en Stefán sagð-
ist aðspurður ekki getað svarað
því hvaða kaflar verði opnaðir þá.
„Það á eftir að koma í ljós hvaða
efnisflokkar verða á dagskrá, en
við vinnum að því hörðum höndum
að þeir verði fleiri en færri.“
Inntur eftir viðbrögðum við
ummælum sem Stefan Füle,
stækkunar stjóri ESB, lét falla á
dögunum, þar sem hann sagðist
vonast til þess að allir kaflarnir
yrðu opnaðir fyrir árslok svaraði
Stefán: „Það er alla vega hvetjandi
að heyra slíkt og ég tek undir þessi
orð nafna míns.“ thorgils@frettabladid.is
VIÐRÆÐUR Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands, segist sáttur
við framganginn í aðildarviðræðunum við ESB. Tíu samningsköflum hefur nú verið
lokað en Stefán sést hér ásamt Þóri Ibsen, sendiherra Íslands í Brussel, heilsa fulltrúa
ESB á ríkjaráðstefnunni í gær. MYND/RÁÐHERRARÁÐ ESB
Tveimur samningsköflum
var lokað strax í Brussel
Tveimur af fjórum samningsköflum sem opnaðir voru í Brussel í gær var lokað strax. 15 kaflar hafa
verið opnaðir og tíu lokað. Aðalsamningamaður Íslands er sáttur, en hefði viljað sjá fleiri köflum lokað.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
22°
8°
7°
11°
15°
7°
7°
20°
11°
21°
9°
30°
8°
15°
14°
2°
Á MORGUN
Hægur eða fremur hæg-
ur vindur um allt land.
MÁNUDAGUR
Strekkingur allra syðst
annars hægari.
1
5 0
-1
-3
1 1
0
6 9
6
6
7
7
5
5
5 6
4
1
2
3
5
3
5
15
5
4
56
7
6
5
FREMUR MILT
verður víða um
land í dag, þó ekki
á norðausturlandi
þar sem hiti verður
um frostmark
og má búast við
slyddu. Annars
verður dálítil
rigning norðan til,
þokusúld vestan-
lands en hins
vegar nokkuð bjart
suðaustan til. Á
morgun fer veður
kólnandi í bili.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
Kaflarnir: 15
Lokað:
2. Frjáls för vinnuafls
6. Félagaréttur
7. Hugverkaréttur
20. Fyrirtækja- og iðnstefna
21. Samevrópsk net
23. Réttarvarsla og
grundvallarréttindi
25. Vísindi og rannsóknir
26. Menntun og menning
28. Neytenda- og heilsuvernd
31. Utanríkis-, öryggis-
og varnarmál
Opnir:
5. Opinber innkaup
8. Samkeppnismál
10. Upplýsingasamfélagið
og fjölmiðlar
15. Orkumál
33. Framlagsmál
FRAKKLAND, AP Nítján manns voru
handteknir í gærmorgun í Frakk-
landi vegna gruns um að þeir
tengist öfgahópum íslamista, sem
hugsanlega séu með áform um
hryðjuverk.
Mikil spenna hefur ríkt í Frakk-
landi frá því ungur maður drap sjö
manns í Toulouse og Montauban.
Stjórnvöld leggja mikla áherslu á
öryggismál og hættuna af hryðju-
verkum. Á hinn bóginn fer ótti
vaxandi meðal múslima um að
almenningur stimpli þá alla sem
hryðjuverkamenn.
Nicolas Sarkozy forseti stendur í
ströngu þessar vikurnar í kosninga-
baráttu fyrir forsetakosningar, sem
haldnar verða innan fárra vikna.
Skoðanakannanir hafa ekki
verið honum vilhallar, en í von um
að afla sér meira fylgis hefur hann
meðal annars boðað harðari stefnu
gagnvart útlendingum.
„Það verða fleiri aðgerðir áfram
sem gera okkur kleift að vísa burt
úr landi ákveðnum hópi fólks sem
hefur enga ástæðu til að vera
hérna,“ segir hann. „Það er skylda
okkar að tryggja öryggi frönsku
þjóðarinnar. Um það höfum við
ekkert val.“ - gb
Franska lögreglan handtók 19 manns vegna gruns um öfgamennsku:
Sarkozy boðar fleiri aðgerðir
HANDTEKINN Franska lögreglan að verki.
NORDICPHOTOS/AFP
SKIPULAGSMÁL Byggingarmagn
sem ætlað var fyrir mosku og
safnaðarheimili Félags múslima
í Sogamýri reyndist helmingi
minna en áður var gert ráð fyrir
að félagið fengi. Samkvæmt
lýsingu sem unnin var í fyrra á
byggingin að vera 400 fermetrar.
Guðjón Magnússon arkitekt, sem
unnið hefur þarfagreiningu fyrir
Félag múslima, segir hins vegar
nauðsynlegt að bygggingin verði
á bilinu 800 til 1.000 fer metrar.
Það sé svipað og gerist með
meðalsóknarkirkjur, eins og til
dæmis Guðríðarkirkju í Grafar-
holti. Er málið var í kynningu
barst athugasemd frá einum íbúa
úr Vogahverfinu. Hann vill halda
Sogamýri sem útivistasvæði. - gar
Lagfæra uppdrátt í Sogamýri:
Moska reyndist
helmingi of lítil
SOGAMÝRI Lóð ætluð Félagi múslima
á Íslandi.
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest tveggja og hálfs árs fangelsis-
dóm yfir Kristmundi Sigurðssyni
fyrir fjölmörg brot, meðal annars
ofbeldi og frelsissviptingu.
Kristmundur, með tveimur
öðrum, neyddi mann á sextugs-
aldri til að millifæra rúmlega
hundrað þúsund krónur af banka-
reikningi. Honum eru líka gefin
að sök fíkniefna- og umferðar-
lagabrot. Sakaferill Kristmundar
nær aftur til ársins 1976. Árið
1978 hlaut hann tólf ára fangelsis-
dóm fyrir manndráp. - sh
Refsing staðfest í Hæstarétti:
Tvö og hálft ár
fyrir ofbeldi
Of hlýtt fyrir snjóframleiðslu
Tæki til snjóframleiðslu eru tilbúin í
Ártúnsbrekku en snjóframleiðsla hefur
ekki verið sett af stað vegna hlýinda.
Þetta kom fram á fundi stjórnar
skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Þar kom líka fram að gríðarlegt magn
af snjó hafi verið á Bláfjallasvæðinu
og moksturskostnaður yfir áætlun.
Þá hefur veður ekki verið hagstætt til
opnunar. Þann 12. mars síðastliðinn
hafði verið opið í 45 daga í vetur.
ALMENNINGSÍÞRÓTTIR