Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 94
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is
REYNSLA UMHYGGJA TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
VIÐ ERUM NÚNA
Á 4 STÖÐUM!
STÆRRI PIZZA AF MATSEÐLI 1.990 KR.
MINNI PIZZA AF MATSEÐLI 1.490 KR.
8 – Margt smátt ...
Þegar herðir að hjá fjölskyldum leiðir það stundum til
þess að það sem áður var eðlilegt og auðvelt verður
nær ómögulegt. Þetta getur t.d. átt við skólagöngu
ungmenna í framhaldsskóla. Þröngur fjárhagur
fjölskyldu getur leitt til þess að ekki er til peningur til
að greiða skólagjöld, námsgögn og annað sem fylgir
námi í framhaldsskóla.
Framtíðarsjóður Hjálparstarfs kirkjunnar styður
ungmenni 16-2O ára til stúdentsprófs, sveinsprófs eða
annars sem leiðir til starfsréttinda eða opnar leið til
háskólanáms. Nemendur fá aðstoð við að greiða
námsgögn, skólagjöld, kaupa tölvu eða greiða annað
sem gæti orðið efnaminni nemendum hindrun í að ljúka
námi. Menntun eykur líkur á öruggri framfærslu og
farsælu lífshlaupi.
Stuðningur sem ræður úrslitum
Þau eru orðin mörg ungmennin sem haf tjáð þakklæti
fyrir stuðninginn, sem gerði gæfumuninn. Komið stolt
á skrifstofu Hjálparstarfsins með útskriftarskírteinin
með bros á vör og von í brjósti um góða framtíð í starfi
eða áframhaldandi námi. Þetta á við um strákinn sem
lauk námi í bifvélavirkjun og fékk vinnu á verkstæði og
stúlkuna sem hóf nám í háskólanum í læknisfræði sem
hafði verið hennar draumur frá barnæsku. Það eru líka
ófá dæmi um einstaklinga sem hafa komið og viljað
leggja sitt af mörkum í Framtíðarsjóðinn sem þeir nutu
stuðnings úr þegar á þurfti að halda.
Virkjum unga fólkið
Aðstæður eru ólíkar og lausnir Hjálparstarfsins því
mjög einstaklingsbundnar. Enn allar miða að því að
hjálpa ungu fólki að ljúka námi. Þannig virkjum við
hæfileika og vilja ungs fólks til að vera nýtir samfélags-
þegnar sem skapa sér eigin framtíð. Þú getur styrkt
þennan þátt í starfi okkar til dæmis með gjafabréfi
í Framtíðarsjóðinn á gjofsemgefur.is. Þú getur stutt
innanlandsaðstoð okkar með því að greiða valkröfu
í heimabankanum þínum eða leggja inn á reikning
O334-26-886, kt. 45O67O-O499.
Hjálparstarf kirkjunnar veitir ungmennum um
allt land stuðning til að ljúka framhaldsnámi
til starfsréttinda eða lánshæfs náms.
Það er ein leið til að rjúfa vítahring lítillar
menntunar, lágra launa og fátæktar.
Ekki sjálfsagt fyrir alla að ljúka námi í framhaldsskóla
Framtíðarsjóður styður ungmenni til náms sem leiðir
til starfsréttinda. Mynd: Þorkell Þorkelsson.
Að eiga ekki fyrir lyfjum
Ein afleiðing efnahagslegra þrenginga og niðurskurðar
á Íslandi er að sumir þeirra sem eru svo ólánsamir að
þurfa lyf eiga í erfileikum með að standa undir
kostnaði. Bæði er að tekjuafgangur hefur minnkað og
gjöld og verð hafa hækkað. Mikil aukning hefur orðið á
beiðnum um stuðning vegna lyfjakostnaðar. Lyf & heilsa
hefur stutt myndarlega við Hjálparstarf kirkjunnar og
stofnað sjóð sem veitt er úr til lyfjakaupa. Önnur
lyfjafyrirtæki hafa einnig veitt stuðning.
Ekki hvaða lyf sem er
Strangar reglur gilda um hvaða lyf er hægt að greiða.
Til dæmis er ekki veittur stuðningur vegna lyfja sem er
hægt að selja á götunni, lyfja sem fólk er með lyfjakort
fyrir og lyf sem fólk notar að staðaldri. Hjálparstarfið
getur, fjárhagsins vegna, aðeins greitt lyf sem fólk
þarf óvænt á að halda vegna skyndilegrar uppákomu.
Að vera sendur heim af spítala og geta svo ekki keypt
þau lyf sem þarf er staða sem margir þekkja, því miður.
Í slíkri neyð er gott að geta fengið stuðning ekki síst
á þetta við þegar börn eiga í hlut og aldraðir.
Fyrstu merki um efnahagsbata hljóta að vera að
allir eigi fyrir lyfjum
Fyrstu merki þess að úr sé að rætast í efnahagsmálum
Íslands hljóta að vera að enginn þurfi að upplifa að eiga
ekki fyrir lyfjum. Það hlýtur að vera eitt af forgangs-
verkefnum yfirvalda að koma þessum málum í lag. Að
segja að ástandið sé að batna, að tökum hafi verið náð
á vandanum, en leysa ekki úr þessum málum er ótrúverðugt.