Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 6
31. mars 2012 LAUGARDAGUR6
KJÖRKASSINN
Til sölu er vel stað sett hár snyrti stofa í 101 Reykja vík
sem er í senn fal leg og vel búin, með vinnu að stöðu
fyr ir 4–5 fagmenn.
Stofan er í góð um rekstri, skuld laus og með mjög
góða vöru sölu. Auk kjarna fastra við skipta vina stof-
unn ar ligg ur hún mjög vel við gang andi um ferð, m.a.
vaxandi um ferð erlendra ferða manna.
Ef þú/þið hafi ð ver ið að velta fyr ir ykk ur eigin rekstri
þá er þetta tæki fær ið.
Áhuga sam ir vinsam leg ast send ið
upp lýs ing ar á au glys ing1@gma il.com.
Farið verður með allar
fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Hársnyrtistofa
– Nú er tæki fær ið!
HEILBRIGÐISMÁL Persónuvernd
úrskurðaði í gær að lýtalæknum
í einkarekstri beri ekki skylda til
að afhenda landlæknis embættinu
persónuupplýsingar um þær konur
sem fengið hafa sílíkonpúða í
brjóst sín á margra ára tímabili.
Ástæðan sé að það sé ekki ljóst til
hvers landlæknir ætli sér að nota
upplýsingarnar og að rík þagnar-
skylda ríki um störf lýtalækna.
Í úrskurði Persónuverndar segir
að hver lýtalæknir sé ábyrgðar-
aðili þeirra persónuupplýsinga
sem hann skráir og varðveitir
um þær konur sem hann hafi sett
brjóstafyllingar í. Rík þagnar-
skylda hvíli á lækninum og það
sé alfarið á hans ábyrgð að gæta
þess að þeim upplýsingum verði
ekki miðlað til annarra nema skýr
heimild sé til þess.
Hvorki verði ráðið af fyrir-
liggjandi gögnum, þeim sjónar-
miðum sem landlæknir hafi sett
fram, né gildandi lögum, að lýta-
læknar megi miðla til land læknis
persónuupplýsingum um allar þær
konur sem hafi fengið brjósta-
fyllingar hér á landi frá árinu 2000
til dagsins í dag.
Landlæknir fór fram á að fá
afhentar upplýsingar um konurnar
eftir að PIP-málið svonefnda kom
upp í lok síðasta árs. Það var gert
í ljósi þess að embættið þyrfti á
þeim upplýsingum að halda til að
sinna lögbundinni eftirlitsskyldu
sinni. Læknafélag Íslands bað um
álit Persónuverndar í kjölfarið, sér
í lagi vegna þess að hópur kvenna
hafði farið fram á það að nöfn
þeirra og auðkenni færu ekki á
skrá hjá landlækni yfir þær konur
sem höfðu farið í brjóstastækkun-
araðgerð.
sunna@frettabladid.is
Upplýsingar um PIP
verða ekki veittar
Persónuvernd hefur úrskurðað að lýtalæknum beri ekki skylda til að afhenda
landlækni persónuupplýsingar um allar þær konur sem hafa fengið sílíkonpúða
í brjóst sín. Hópur kvenna ætlar að stefna ríkinu fyrir að sinna ekki eftirliti.
SPRUNGINN PIP-PÚÐI ÚR BRJÓSTI ÍSLENSKRAR KONU Fjöldi kvenna hefur nú
þegar gengist undir aðgerð á Landspítalanum til að láta fjarlægja sílíkonpúðana úr
brjóstum sínum. Margir hverjir voru mjög illa farnir eins og sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Geir Gunnlaugsson landlæknir
neitar því að embættið hafi brugðist
eftirlitsskyldu sinni eftir árið 2006
þegar umræður um mögulega
skaðsemi PIP-sílíkonpúða komu
upp erlendis. Þetta segir hann í ljósi
þess að ótilgreindur fjöldi þeirra
íslensku kvenna sem fengu PIP-
púða í brjóstin eftir árið 2006 hafi
í hyggju að höfða skaðabótamál á
hendur ríkinu fyrir að að bregðast
eftirlitsskyldu sinni.
Í tilkynningu frá Geir segir að embættinu hafi aldrei borist neinar upp-
lýsingar frá eftirlitsaðilum í Evrópu um vandamál með PIP-brjóstapúða.
„Aftur á móti liggur fyrir að einstaka læknar erlendis vöktu allt frá árinu
2006 athygli viðkomandi eftirlitsstofnana og fræðasamfélags lýtalækna á
áhyggjum sínum af gæðum púðanna.“
Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður kvennanna, segir álit landlæknis ekki koma
á óvart. „Þetta er allt spurning um hvort eftirlitsaðilar á Íslandi eigi að bera
sig eftir upplýsingum eða hvort þær eigi bara að koma til þeirra,“ segir Saga.
„Það er ekki hægt að skera úr um það hvort þeir hafi brugðist eftirlitsskyldu
nema láta dómstóla skera úr um það svo það verður bara að láta á það
reyna.“ Saga veit ekki hversu margar konur muni höfða mál á hendur ríkinu,
en hún segir þær skipta tugum sem fengu púðana í sig á árunum 2005 til
2007.
Hópur kvenna ætlar í mál við ríkið
SAGA ÝRR
JÓNSDÓTTIR
GEIR
GUNNLAUGSSON
ALÞINGI Drög stjórnlagaráðs að
nýrri stjórnarskrá verða ekki
borin undir þjóðaratkvæði sam-
hliða forsetakosningum í júní.
Slíka kosningu þarf að samþykkja
með þriggja mánaða fyrirvara
og rann sá frestur út á miðnætti
á fimmtudag. Stjórnarliðar saka
sjálfstæðismenn um málþóf, en
þeir brugðust ókvæða við slíkum
ásökunum.
Valgerður H. Bjarnadóttir, for-
maður stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar, segir að ákvörðun
um framhaldið verði tekin eftir
páska. „Á einhvern hátt, hver sem
hann verður, munum við leita sam-
ráðs við fólkið í landinu um gerð
þessarar stjórnarskrár.“
Álfheiður Ingadóttir, varafor-
maður nefndarinnar, segir enga
uppgjöf í stjórnarmeirihlutanum.
„Við lítum á að það sé skýr meiri-
hlutavilji þingsins að leggja þessa
tillögu stjórnlagaráðs í þjóðarat-
kvæði og sérstök álitamál tengd
stjórnarskránni, eins og kom fram
í samþykkt Alþingis á sérstakri
ályktun 22. febrúar.“
Birgir Ármannsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í nefndinni,
segist ekki útiloka þjóðaratkvæða-
greiðslu um stjórnarskrána.
„Við teljum hins vegar að til að
bera málið undir atkvæði þjóðar
þurfi að vera um að ræða full-
mótaðar tillögur sem Alþingi
sé búið að vinna í og koma sér
saman um og fá fræðilega aðstoð
til greiningar. Að því loknu, þegar
málið er farið að nálgast enda-
punkt, er þjóðaratkvæðagreiðsla
vissulega möguleiki í okkar huga.“
Birgir segir hins vegar óboð-
legt að leggja í þjóðaratkvæði til-
lögur sem vitað er að muni taka
breytingum. Hann vill fara eftir
ákvæðum núverandi stjórnar-
skrár; þingið samþykki breytingar
nú, og nýtt þing staðfesti þær eftir
kosningar. Það megi gera með
frestun gildistökuákvæða og bera
fullunnið verk undir þjóðina. - kóp
ANDAKTUGIR Birgir Ármannsson og
Ásmundur Einar Daðason hlýða á
umræður um stjórnarskrá.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nefndarformaður segir ákvörðun tekna um framhaldið eftir páska:
Stjórnarskrá fari í þjóðaratkvæði
EFNAHAGSMÁL Hagstofa Íslands
spáir 2,6 prósenta hagvexti á þessu
ári, 2,5 prósentum á því næsta og
svo um 2,8 prósentum árin eftir
það. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í nýrri Þjóðhagsspá
Hag stofunnar.
Ný hagvaxtarspá er aðeins bjart-
sýnni en spáin sem gefin var út í
nóvember en þá spáði stofnunin 2,4
prósenta hagvexti á árinu. Aukin
einkaneysla og fjárfesting knýr
hagvöxtinn. Þannig spáir Hag-
stofan að einkaneysla aukist um
3,1 prósent og fjárfesting um 10,5
prósent. Hins vegar verður lítils
háttar samdráttur í samneyslu
samkvæmt spánni.
Spáin gerir ráð fyrir því að það
hægist á vexti einkaneyslu eftir
þetta ár, ekki síst þar sem kjara-
samningsbundnar launahækkanir
verða minni en síðustu misseri.
Verðbólguspá Hagstofunnar
hljóðar upp á 4,8 prósenta meðal-
verðbólgu á þessu ári. Til saman-
burðar spáði Seðlabankinn í
febrúar 4,6 prósenta meðalverð-
bólgu á árinu. Þá spáir Hagstofan
3,4 prósenta verðbólgu árið 2013
og 2,5 prósenta verðbólgu eftir það.
Loks spáir Hagstofan að gengi
krónunnar veikist um 2,7% á
þessu ári, en haldist svo tiltölulega
stöðugt. - mþl
Hagstofa Íslands kynnti í gær nýja þjóðhagsspá fyrir árin 2012 til 2017:
Hagstofan spáir 2,6% hagvexti
FRAMKVÆMDIR Seinkanir á stóriðju-
framkvæmdum eru meðal óvissuþátta í
þjóðhagsspá. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FJÖLMIÐLAR Elín Hirst, höfundur
bókarinnar Aldrei líta undan,
er ósátt við að Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á
Suður nesjum, hafi í viðtali í Nýju
lífi efast um frásögn Guðrúnar
Ebbu Ólafsdóttur af kynferðis-
ofbeldi föður hennar. Sigríður er
mágkona Guðrúnar Ebbu.
Elín hefur ritað Ögmundi
Jónas syni innanríkisráðherra
bréf og krefst þess að málið verði
skoðað í ljósi stöðu Sigríðar.
Ögmundur sagðist ekki þekkja
málið nógu vel til að tjá sig. - sv
Ögmundur tjáir sig ekki:
Elín ósátt við
viðtal í Nýju lífi
Telur þú náttúru landsins í
hættu vegna átroðnings ferða-
manna?
JÁ 56,9%
NEI 43,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú hlynnt/ur því að gjald
verði tekið upp á einhverjum
ferðamannastöðum?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.