Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 49
Það er markmið Hjálparstarfs kirkjunnar að veita
heildræna aðstoð sem hjálpar fólki til sjálfshjálpar.
Að efla hæfileika og getu hvers og eins til að komast
upp úr erfiðum aðstæðum til betra lífs. Þá dugar
mataraðstoð ein og sér skammt. Þess vegna hefur
ráðgjafaþáttur starfsins verið efldur til muna.
Fjármálaráðgjöf er liður í því.
Reyndur sjálfstætt starfandi fjármálaráðgjafi býður
fram vinnu sínu á föstudögum. Í boði er ókeypis
ráðgjöf sem hefur það að markmiði að aðstoða fólk við
að ná varanlegum töku á fjármálum sínum. Eftir viðtal
við félagsráðgjafa okkar er hægt að fá tíma hjá
fjármálaráðgjafanum. Nánast hefur verið uppbókað
í þessa ráðgjöf frá upphafi.
„Ég fékk hreinlega nýja von“
Ráðgjöfin hefur reynst frábærlega vel, dæmi um
umsagnir fólks eru: „Ég fékk alveg nýja sýn á þessi
mál“, „nú þori ég að opna gluggaumslögin og er með
plan um hvernig ég ætla að vinna úr þessu“, „ég fékk
hreinlega nýja von og sé fram úr vandamálunum“.
Gögnin góður grunnur
Með umsókn um mataraðstoð þarf að skila inn gögnum
um tekjur og gjöld, sem er liður í því að meta stöðu
hvers og eins. Þessi gögn verða síðan góður grund-
völlur fyrir áframhaldandi vinnu með fjármálaráð-
gjafa. Það er vissulega fyrirhöfn að safna gögnum
saman en hún er sannarlega þess virði þegar yfirsýn og
skilningur á raunverulegri stöðu verður skyrari og
grunnur skapast fyrir áframhaldandi úrlausn mála.
Ábyrgðin er ekki tekin frá einstaklingnum en honum er
hjálpað til að greina vandann og sjá nýjar lausnir.
Fjármálaráðgjöfin
mikilvæg viðbót
Margt smátt ... – 3
Ráðgjöf í fjármálum er mikilvæg.
Skjólstæðingar hafa orðið:
„Fjármála-
ráðgjöfin opnaði
mér nýja sýn“
Einstæð móðir með 2 börn, er öryrki.
Hver er staða þín?
„Ég er með mikið af skuldum og er komin í vítahring út
af smálánum, tók ný lán til að greiða gömul. Það eru
líka veikindi hjá mér, á við þunglyndi og maníu að
stríða. Þegar ég er í maníu þá hættir mér til að fara að
versla og vera góð við börnin mín og gefa þeim dýrar
gjafir. En þetta kemur jú allt í bakið á manni. Ég fer
ekki út að skemmta mér, reyki ekki og drekk ekki. Ég fæ
aðstoð í gegnum félagsþjónustuna og barnaverndar-
nefnd.“
Hvernig finnst þér kortaleiðin koma út fyrir þig?
„Allt annað, mikið betra, nú get ég valið sjálf vörurnar
sem ég fæ. Það er líka meiri virðing í þessari aðferð.“
Hvernig virkar kortaleiðin með tilliti til barna?
„Kortaleiðin sýnir líka börnum meiri virðingu, það
spyrst fljótt út meðal þeirra ef sum börn fara til
góðgerðasamtaka að fá mat. Nú eru þau eins og öll hin
börnin, fara bara í búðir.“
Sérðu einhvern galla við kortaleiðina?
„Ég þyrfti hreinlega að fá peningaupphæð tvisvar
sinnum í mánuði en þá þyrfti auðvitað meira fjármagn.
Erfiðleikarnir hjá mér eru það miklir að mjög fljótt eftir
mánaðarmót er ekki til neinn peningur, tala nú ekki
um í lok mánaðar.“
Hefurðu nýtt þér aðra aðstoð?
„Já ég hef farið í fjármálaráðgjöf, matreiðslunámskeið
og einnig á námskeiðið Konur eru konum bestar, sem
var frábært. Fjármálaráðgjöfin opnaði mér nýja sýn.
Ég var hætt að opna gluggaumslögin. Fjármála-
ráðgjafinn kom fram við mig af virðingu og sýndi mér
fram á að það væri von, þetta væri hægt og ráðlagði
mér um næstu skref. Ég er rétt að byrja á þessu
ferli. Það er allt annað þegar maður sér leið út úr
vandanum. Ég gefst ekkert upp, veit að það birtir
um síðir.“