Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 79
LAUGARDAGUR 31. mars 2012 17
Bæjarsjóður Seltjarnarness óskar eftir tilboðum
í sorphreinsun á Seltjarnarnesi 2012-2017.
Í verkinu felst tæming á sorp- og endurvinnsluílátum á Seltjar-
narnesi, ásamt fl utningi á sorpi í sorpmóttökustöðvar.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar
www.vso.is/utbod þriðjudaginn 3.apríl 2012.
Tilboðum skal skila fyrir kl: 14:00, mánudaginn 21.maí 2012 á
skrifstofu VSÓ Ráðgjafar Borgartúni 20, 105 Reykjavík.
Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar
Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr.
ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður
haldið í maí 2012, ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið mun
hefjast mánudaginn 21.maí 2012. kl. 08:00 – 16.00 og standa
dagana 21.,- 22., 23.,- 24. maí 2012 og lýkur með prófi laugar-
daginn 2. júní 2012.
Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 57.000.- kr. fyrir þá sem
sækja námskeiðið til upprifjunar.
Upplýsingar og umsóknareyðublað fást hjá IÐUNNI- fræðslu-
setri, Skúlatúni 2, Reykjavík eða vefsetrinu www.idan.is.
Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR útfylltum ásamt 1) afriti
af prófskírteini umsækjanda, 2) vottorði frá iðnaðarráðuneyti
um réttindi til starfsheitis, 3) vottorði faglegs yfirmanns um
starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki, eigi síðar
en mánudaginn 7. maí 2012.
Nánari upplýsingar í síma 590 6434.
Mannvirkjastofnun.
Skúlagötu 21,
101 Reykjavík.
Frá Alþingi
Styrkir til að stuðla að
umræðu og fræðslu um Evrópusambandið.
Samkvæmt ákvörðun á fjárlögum Alþingis er auglýst
eftir styrkumsóknum til að stuðla að opinberri og
upplýstri umræðu og fræðslu um Evrópusambandið,
stefnu þess og áhrif hugsanlegrar aðildar Íslands
að sambandinu. Að þessu sinni er úthlutunarfé til
ráðstöfunar allt að 19 milljónir króna.
Styrkir eru veittir til íslenskra félaga og félagasamtaka
sem, samkvæmt tilgangi sínum, fjalla um málefni
Evrópusambandsins og lýsa sjónarmiðum sínum
með eða móti hugsanlegri aðild að sambandinu.
Hlutlausri upplýsingamiðlun er sinnt með samstarfs-
verkefni Alþingis og Vísindavefs Háskóla Íslands um
Evrópuvefinn.
Styrkir eru eingöngu veittir til skýrt afmarkaðra
verkefna, svo sem til þess að:
a. útbúa efni og birta það í blöðum, ritum eða
með öðrum hætti,
b. halda opna fundi og ráðstefnur,
c. standa fyrir fyrirlestrum sérfræðinga,
d. standa fyrir ýmiss konar fræðslustarfsemi.
Ekki er heimilt að veita styrki til eiginlegs reksturs,
m.a. rekstur skrifstofu, þ.m.t. húsaleigugreiðslur og
launagreiðslur til starfsfólks. Ekki eru veittir styrkir til
einstaklinga. Hægt er að sækja um styrki til fleiri en
eins verkefnis í sömu umsókn.
Vakin er athygli á reglum úthlutunarnefndar, sem
nálgast má á vefslóðinni: www.althingi.is/s1
Styrkhafar skulu fyrir lok árs og við lok styrkts verk-
efnis skila skýrslu til úthlutunarnefndar um ráðstöfun
styrkjanna.
Umsóknarfrestur um styrki er til þriðjudagsins
1. maí 2012.
Umsóknir skulu berast skrifstofu Alþingis, merktar:
ESB fræðslu- og umræðustyrkir
Jörundur Kristjánsson, ritari úthlutunarnefndar
Skrifstofa Alþingis
150 Reykjavík
Umsóknareyðublöð er að finna á vefslóð Alþingis
(www.althingi.is) og allar frekari upplýsingar veitir
Jörundur Kristjánsson, ritari úthlutunarnefndar,
netfang: jorundurk@althingi.is
Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun liggi fyrir
í maímánuði.
ÚTBOÐ
Raforkukaup Hafnarfjarðarbæjar
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í raforku fyrir
sveitarfélagið til næstu 4 ára. Um er að ræða alla
raforkunotkun sveitarfélagsins og stofnanna þess auk
götulýsingar. Útboðið er auglýst á EES svæðinu.
Útboðsgögn verða afhent á tölvutæku formi hjá Helgu
Stefánsdóttur á Umhverfis- og framkvæmdasvið
Hafnarfjarðarbæjar frá og með mánudeginum 2. apríl
2012 í gegnum netfangið Helgas@hafnarfjordur.is
Tilboðum skal skilað í móttöku Umhverfis- og fram-
kvæmdasviðs Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 2, fyrir
klukkan 13:00 mánudaginn 21. maí 2012 þar sem
þau verða í kjölfarið opnuð og lesin upp að viðstödd-
um þeim bjóðendum sem þess óska.
ÚTBOÐ
FRAMHALDSSKÓLINN Í MOSFELLSBÆ
ÚTBOÐ NR. 15293
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. mennta- og mennin-
garmálaráðuneytis og Mosfellsbæjar, óskar eftir tilboðum í
framkvæmdir við nýbyggingu framhaldsskóla í Mosfellsbæ á
lóð við Háholt ( Bjarkarholt ) í Mosfellsbæ.
Haldin var arkitektasamkeppni um hönnun skólans og er það
vinningstillagan sem á að byggja. Skólinn er ætlaður fyrir 400
til 500 nemendur og heildarstærð hússins 4.100 m². Húsið er
byggt úr staðsteyptri steinsteypu og klætt að utan með lerki
annars vegar og sjónsteypu hins vegar. Á þaki verður gróður-
þekja. Húsið er byggt í tveimur 3. hæða álmum, sem ýmist eru
með sjónsteypu eða klæddar með lerkiviði. Tengibygging milli
álmanna er úr gleri.
Frágangur lóðar er hluti verksins. Byggingin er hönnuð skv. BIM
aðferðarfræðinni og með það að markmiði að fá alþjóðlega
umhverfisvottun samkvæmt BREEAM.
Vettvangsskoðun verður haldin á verkstað þann 12. apríl 2012,
kl. 13:00 - 14:00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Helstu magntölur eru áætlaðar:
Vegg og bitamót 8.400 m²
Plötumót 4.100 m²
Bendistál 244.000 kg
Steinsteypa 2,500 m³
Stálvirki 29.000 kg
Málun innanhúss 9.200 m²
Dúkalögn 2.500 m²
Álundirkerfi og einangrun 1.700 m²
Timburklæðning á álkerfi 1.650 m²
Viðsnúið þak 1.700 m²
Þökulagning og sáningar 9.000 m²
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 16. nóvember
2013.
Nánari upplýsingar er að finna finna í útboðsgögnum sem eru
rafræn og verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum, 10. maí 2012 kl.11.00
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
ÚTBOÐ
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verkþætti.
1. Vélsópun gatna í Hafnarfirði 2012
Opnun tilboða þriðjudaginn 17. apríl kl. 11:20
Óskað eftir tilboði til 1, 3 eða 5 ára
2. Viðgerðir á steyptum gangstéttum í Hafnarfirði 2012
Opnun tilboða þriðjudaginn 17. apríl kl. 11:00
Áætlað magn ca 350 m²
Útboðsgögn verða seld hjá Framkvæmdasviði Hafnarfjarðar,
Norðurhellu 2 frá og með mánudeginum 2.april á kr. 2.000.-
fyrir hver tilboðsgögn. Tilboð verða opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Réttur áskilinn til
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Framkvæmdasvið Hafnarfjarðar.
The Clone Wars
Stjörnustríð á Cartoon Network
CARTOON NETWORK ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS