Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 127
LAUGARDAGUR 31. mars 2012 87
Guðný Guðmundsdóttir spila verk eftir
frönsk tónskáld frá fyrri hluta tuttug-
ustu aldarinnar í Salnum, Kópavogi.
Aðgangseyrir er kr. 3.500.
21.00 Hljómsveitin Champions of
Death spilar gleðilegt þungarokk á Bar
11. Að tónleikum loknum mætir DJ í
búrið. Aðgangur ókeypis.
22.00 Ljótu hálfvitarnir standa fyrir
söngskemmtun á Café Rosenberg.
22.00 Hljómsveitirnar Heflarnir og
Trúboðarnir halda tónleika á Græna
Hattinum, Akureyri. Báðar hljómsveitir
innihalda spilafélaga sem hafa leikið í
mörgum af helstu rokk- og poppsveitum
Norðlendinga. Miðaverð er kr. 1.500.
23.00 Iceland Airwaves hitar upp með
fríum tónleikum á NASA. Fram koma
Sóley, Agent Fresco og breska hljóm-
sveitin All The Young.
23.00 Hljómsveitin Sixties heldur
sveitaball á Ob-La-Dí Ob-La-Da, Frakka-
stíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
23.00 Tónleikar með Contalgen
funeral á Þýska barnum, Tryggvagötu 11.
Á miðnætti stígur húsbandið Bundes-
ligan á svið, með Sverri Bergmann á
míkrafóninum. Frítt inn til miðnættis og
eftir það er 1.000 króna aðgangseyrir,
en frír bjór fylgir hverjum miða.
23.30 Hljómsveitin Í Svörtum Fötum
leikur á skemmtistaðnum SPOT í
Kópavogi. Sérstakur gestur verður Greta
Salóme, Eurovisionstjarna, og munu
þau Jónsi flytja saman lagið Never
Forget, ásamt nokkrum vel völdum
Eurovisionslögurum.
23.59 Greifarnir spila á nýjum stað,
600, á Akureyri. Öll bestu Greifalögin,
gömul og ný, munu hljóma.
➜ Leiðsögn
15.00 Einar Falur verður með leiðsögn
um sýningu sína, Skjól, í Listasafni ASÍ.
15.00 Orri Finnbogason, gullsmiður,
tekur þátt í leiðsögn um sýninguna Rætur
- íslensk samtímaskartgripa hönnun sem
stendur nú yfir í Hafnarborg.
➜ Fyrirlestrar
13.00 Listamennirnir Nomeda og
Gediminas Urbonas ræða verkefnið
UTO-PIA á fjórða fyrirlestri fyrirlestra-
raðarinnar Panora-Listir, náttúra og
stjórnmál í Listasafni íslands.
➜ Útivist
10.00 Hjólreiðaferð verður farin frá
Hlemmi á vegum LHM. Hjólað verður
um borgina í rólegri ferð í um tvo tíma.
Allir velkomnir og þátttaka ókeypis.
Sunnudagur 01. apríl 2012
➜ Félagsvist
14.00 Félagsvist verður spiluð í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir.
➜ Uppákomur
11.00 Heimilislegur sunnudagur verður
á KEX Hostel. Meðal annars verður bíl-
skúrssala þar sem verður að finna allt
milli himins og jarðar, auk þess sem
þekktar manneskjur lesa úr uppáhalds-
barnabókunum sínum og söngvarar fara
yfir uppáhaldsbarnalögin sín.
14.00 Sprengjugengið mætir í
Ásmundarsafn og sýnir nokkrar vel
valdar efnafræðibrellur fyrir alla fjöl-
skylduna.
14.00 Í Gerðubergssafni verður boðið
upp á páskaföndur fyrir alla, en þar eru
sunnudagar barnadagar.
19.00 Bridge, Barometer, er spilaður
í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir
velkomnir.
➜ Tónlist
12.15 Kvartett Kammersveitar Reykja-
víkur stendur fyrir tónleikaseríu í Kalda-
lóni, Hörpu. Fluttir verða kvartettir Jóns
Leifs, þrír að tölu, auk þess sem verk
annarra íslenskra tónskálda verður á
öllum tónleikum. Að þessu sinni verður
fluttur Quartetto II op. 36 Vita et mors
eftir Jón Leifs og verk eftir Svein Lúðvík
Björnsson. Miðaverð er kr. 1.500.
14.00 Stórsveit Reykjavíkur heldur
tónleika í Silfurbergi, Hörpu, undir yfir-
skriftinni Annar í afmæli. Miðaverð kr.
2.000. Tónleikarnir eru hluti af tón-
listarhátíðinni Lyginni líkast sem haldin
verður þennan dag. Miðaverð á alla
tónleika dagsins saman er kr. 3.500.
17.00 Barokkóperan Dido og Aenaeas
eftir Henry Purcell verður flutt í menn-
ingarhúsinu Hofi á Akureyri. Flytjendur
eru kammerkórinn Hymnodia og Bar-
okksveit Hólastiftis undir stjórn Eyþórs
Inga Jónssonar.
➜ Leiðsögn
14.00 Rakel Pétursdóttir verður með
leiðsögn um yfirlitssýningu á verkum
Rúrí í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg. Í
tengslum við leiðsögnina gefst börnum
og fullorðnum tækifæri til að vinna út
frá nokkrum verkum sýningarinnar á
sérstakri fjölskyldusmiðju.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
arionbanki.is – 444 7000
Skráning á arionbanki.is
Jón Jónsson
heldur fræðslufund
fyrir ungt fólk á Akureyri
Jón Jónsson hagfræðingur, tónlistarmaður og fótboltakappi, fræðir ungt
fólk um fjármál á skemmtilegan hátt á Hótel KEA, mánudaginn 2. apríl.
Húsið opnar kl. 19:00 og fundurinn hefst kl. 19:30.
Helstu atriði sem Jón fer yfir eru:
Hvað eru peningar?
Hvernig á að spara?
Allir 12-16 ára krakkar eru sérstaklega velkomnir ásamt foreldrum sínum.
Að læra að velja og hafna
Peningar og hamingja
Boðið verður upp á gos og pítsu og í lok fundar tekur Jón nokkur lög.
Hvernig myndir þú bregðast við ef gesturinn
á næsta borði við þig á veitingastað fengi að
borða matinn þinn? Líklega yrðir þú hissa,
síðan reiður og svo myndirðu líklega hringja
á lögregluna.
Það er einmitt þetta sem á sér stað í leik-
ritinu Lamb fyrir tvo, sem leikfélagið Peðið
frumsýnir í dag klukkan 17 á Gallerý Bar 46
á Hverfisgötu 46. Í leikstjórnarstólnum situr
einn stofnenda leikfélagsins, Lísa Pálsdóttir,
sem flestir tengja fyrst við Ríkisútvarpið.
„Ég lærði leiklist á sínum tíma, flutti svo úr
landi og lék svolítið í Danmörku. Hér heima
lék ég svo í Hryllingsbúðinni í Gamla bíói, en
sneri mér svo að því að vinna í útvarpinu,“
rifjar Lísa upp. Þetta er í fjórða sinn sem hún
leikstýrir verki fyrir Peðið.
Leikhópurinn Peðið sérhæfir sig í að leika
á börum. Frá stofnun árið 2005 hefur hann
sett upp 2-3 sýningar á ári. „Þetta er sérstök
blanda af fólki á öllum aldri, afgreiðslufólk,
iðnaðarmenn og háskólafólk í bland. Það er
helst að okkur vanti mjög ungt fólk. En það er
víst bannað fyrir ungt fólk að koma á barinn.“
Verkið tekur um hálftíma í flutningi og
gestir geta sötrað sinn bjór í rólegheitum á
meðan þeir njóta þess. „Þetta er góð lausn
fyrir óþolinmóða leikhúsgesti,“ segir Lísa.
Til stendur að sýna fimm sýningar, í dag,
á morgun, á skírdag, föstudaginn langa og
laugar daginn 7. apríl, allar klukkan 17. - hhs
Góð lausn fyrir óþolinmóða
PEÐIÐ Frumsýnir Borð fyrir tvo á Gallerý
Bar 46 í dag klukkan 17.