Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 130

Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 130
31. mars 2012 LAUGARDAGUR90 90 popp@frettabladid.is Hungurleikarnir, íslensk þýðing bókarinnar The Hunger Games eftir Suzanne Collins, er uppseld á lager Forlagsins. Fjögur þúsund ein- tök eru farin úr húsi en einhver ein- tök eru þó eftir hjá smásölum. „Unglingarnir streyma í búðirnar, sem er frábært. Hungurleikaæðið er algjörlega byrjað,“ segir Erla Björg Gunnarsdóttir hjá Forlaginu. Sam- nefnd kvikmynd hefur slegið í gegn í Bandaríkjunum og hefur einnig fengið góða aðsókn hér heima. „Inn- bundna bókin kom út fyrir jólin og þá kveiktu krakkarnir ekki eins mikið á þessu. Þetta byrjaði fyrir alvöru tveimur til þremur vikum fyrir frumsýningu myndarinnar.“ Bókin er nýkomin út í kilju og einnig í rafbókarformi. Vegna þessara miklu vinsælda hefur Forlagið ákveðið að flýta þýðingu á næstu bók í þríleiknum en hún átti upphaflega að koma út fyrir næstu jól. Stefnt er á útgáfu hennar í maí í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. - fb Hungurleikarnir að seljast upp VINSÆLIR HUNGURLEIKAR Kvikmyndin The Hunger Games hefur vakið mikla athygli á samnefndri bók Suzanne Collins. Bítlarnir hafa komið í veg fyrir að hollenskt fyrirtæki noti nafn hljómsveitarinnar á hjólastóla sem það framleiðir. Apple Corps, sem Bítlarnir stofnuðu, hafði áður komið í veg fyrir að fyrir- tækið notaði Bítlanafnið á önnur farartæki sem það framleiddi. Núna hefur Evrópudómstóll- inn dæmt Apple Corps í hag og meinað hollenska fyrir tækinu einnig að nota Bítlanafnið á hjólastólana. Dómstóllinn taldi ekki við hæfi að hið góða orð sem færi af Bítlunum og það hversu góð söluvara þeir eru yrði not- fært til að selja hjólastólana. Bítlar ekki á hjólastólum Danska strákahljómsveitin A Friend In London er heldur betur búin að slá í gegn frá því hún mætti til Düsseldorf og söng lagið New Tomorrow fyrir hönd Dana í Eurovision-keppninni í fyrra. Lagið hefur verið eitt það vin- sælasta í spilun eftir keppnina, en það náði fimmta sætinu með 134 stig. Á úrslitakvöldi undan- keppni Eurovision í Danmörku, Dansk Melodi Grand Prix, þann 21. janúar síðastliðinn kom hljómsveit- in fram ásamt Backstreet Boys- meðlimnum Howie D. Það sem fáir vissu þá var að það var aðeins upphafið af samstarfi hljómsveit- anna því nú hefur verið tilkynnt að A Friend In London fari með Backstreet Boys og New Kids On The Block í tónleikaferð um Evr- ópu. Ferðin hefst í Dublin á Írlandi þann 21. apríl og ferðast hljóm- sveitirnar um Bretland og til Hol- lands, Belgíu, Sviss, Danmerkur og Noregs, áður en ferðinni lýkur í Ósló í Noregi þann 14. maí. - trs Túrar með goðsögnum VELGENGNI Tim Schou og félagar í A Friend In London halda í tónleikaferð með Backstreet Boys og New Kid On The Block í apríl. Námskeiðið verður haldið í Kaldalóni og hefst það kl.20.00 Á námskeiðinu verður farið í gegnum helstu hættur sem að hjónabandi og sambúð steðja í dag og bent á leiðir til að varast þær. Markmið kvöldsins er: • AÐ KVEIKJA FERSKAR HUGMYNDIR Í SAMBANDINU • AÐ FINNA NÝJAR LEIÐIR TIL AÐ LEYSA ÚR VANDA • AÐ GERA GOTT SAMBAND BETRA OG TRAUSTARA • AÐ SKOÐA SAMSKIPTI OKKAR TIL AÐ STYRKJA ÞAU • AÐ NJÓTA GÓÐRAR KVÖLDSTUNDAR MEÐ ÁSTINNI SINNI Í lok námskeiðsins fá þátttakenndur sjö vikna heimaverkefni til að styrkja sambandið enn frekar. Leiðbeinandi er sr. Þórhallur Heimisson, en yfir 6000 pör hafa tekið þátt í hjónanámskeiðum hans. Upplýsingar og skráning fer fram í síma 8917562 og á thorhallur33@gmail.com JÁKVÆTT NÁMSKEIÐ UM HJÓNABAND OG SAMBÚÐ Í HÖRPU 28. APRÍL. ÁRA Í DAG Leikkonan Jessica Szohr er hvað best þekkt fyrir leik sinn sjónvarpsþáttaröðinni Gossip Girl.27 Annars árs nemar í fatahönnun við Listaháskóla Íslands blésu til tísku- sýningar í skemmu Brims Seafood. Sýningin var í tengslum við Reykja- vík Fashion Festival og margir lögðu leið sína til að sjá frumlega hönnun fatahönnunarnema. Meðal gesta var forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson ásamt dóttur sinni Tinnu. Sýningargestir voru sammála um að framtíðin í fatahönnun væri björt. LITRÍKT HJÁ FATAHÖNNUÐUM FRAMTÍÐINNAR GAMAN Förðunarmeistarinn Ísak ásamt vinkonu sinni Anítu. ÁHUGASAMIR Gestir sýningarinnar fylgdust spenntir með. FLOTTAR Þær Carolina, Eva, Mai og Halla mættu spenntar á sýninguna. GÓÐIR GESTIR Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar LHÍ, sést hér ásamt Kríu, Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og dóttur hans Tinnu. SPENNT Þau Sigurður Arnarsson, Arnar Hannesson og Anna Ólafsdóttir á tískusýn- ingunni. LITRÍKT Þessi frumlegi kjóll var meðal þess sem mátti sjá á tískupallinum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.