Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 124
31. mars 2012 LAUGARDAGUR84 84
menning@frettabladid.is
MATTHÍAS OG ANNA Flytja franska tónlist fyrir óbó og píanó í Salnum í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR · GISSUR PÁLL GISSURARSON / ÞÓRA EINARSDÓTTIR · GARÐAR THÓR CORTES
ÁGÚST ÓLAFSSON · HRÓLFUR SÆMUNDSSON · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR · BERGÞÓR PÁLSSON
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON · LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES
LEIKMYND: WILL BOWEN · BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR · LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
„Tímamótaviðburður í tónlistarlífinu“
- Jónas Sen, Fréttablaðið
„Frábær skemmtun og frammistaða“
- Ríkharður Örn Pálsson, Morgunblaðið
„Þarna verða til sannir töfrar...
Maður tók andköf í glæsilegustu aríunum“
- Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
„Bravo! Bravi! Bravissimo!“
- Ólafur Arnarson, pressan.is
LAUGARDAGINN 31. MARS KL. 20 - 3. SÝNING - UPPSELT
SUNNUDAGINN 1. APRÍL KL. 20 - 4. SÝNING - UPPSELT
LAUGARDAGINN 14. APRÍL KL. 20 - 5. STÝNING - UPPSELT
SUNNUDAGINN 15. APRÍL KL. 20 - AUKASÝNING
FÖSTUDAGINN 20. APRÍL KL. 20 - LOKASÝNING -UPPSELT
Minnum á kynningar á
La Bohème í boði Vinafélags
Íslensku óperunnar í Kaldalóni
kl. 19 hvert sýningarkvöld
- Hugo Shirley, Daily Telegraph, London
„Rosaleg upplifun... Sjónarspilið var magnað...
Snilldarlega vel sett upp“
- Ingi Þór Jónsson og Kristjana Stefánsdóttir,
Listræninginn á Rás 1
„Stórkostleg sýning í öllu tilliti...
Sennilega besta uppfærsla sem ég hef séð
hjá Íslensku óperunni“
- Helgi Jónsson, Víðsjá á Rás 1
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á WWW.HARPA.IS
AUKASÝNING SUNNUDAGINN 15. APRÍL KL. 20
Matthías Nardeau óbó-
leikari og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari
flytja franska tónlist fyrir
píanó og óbó á tónleikum
í Salnum klukkan fimm í
dag.
„Efnisskráin samanstendur
af frönskum verkum sem eiga
það sammerkt að vera samin á
fyrri hluta 20. aldarinnar,“ segir
Matthías Nardeu óbóleikari. Á
dagskránni eru Le tombeau de
Couperin eftir Maurice Ravel,
Sónata fyrir óbó og píanó op. 166
eftir Camille Saint-Säens, Sónata
fyrir óbó og píanó eftir Francis
Poulenc og Sónata fyrir óbó og
píanó eftir Henri Dutilleux.
Matthías segir ekki jafn mikið
til af einleiksverkum fyrir óbó og
er til fyrir þekktari einleikshljóð-
færi. „Verkið eftir Ravel er til að
mynda umritun á frægu hljóm-
sveitarverki eftir hann.“
Matthías hóf nám í óbóleik tólf
ára gamall, lauk einleikaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
og framhaldsnámi frá Conserva-
toire national de region í París.
Matthías segist ekki endilega hafa
ætlað sér að verða tónlistarmaður.
„Sú ákvörðun var bara tekin er leið
á námið, þegar maður fór að velta
framtíðinni fyrir sér í kringum
stúdentsprófið,“ segir hann. Tón-
listin var þó alltaf mikið í kringum
hann en Matthías er sonur flautu-
leikaranna Marcials Nardeaus og
Guðrúnar Birgisdóttur og þess má
geta að bróðir hans leggur stund
á framhaldsnám í trompetleik í
Frakklandi.
Matthías hefur verið fastráðinn
hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá
árinu 2006. Hann heldur þó ein-
leikstónleika reglulega. Hann er til
að mynda nýkominn frá Finnlandi
þar sem hann flutti óbó konsert
eftir Karólínu Eiríksdóttur með
Borgarkammersveit Seinäjoki
undir stjórn Toumas Rousi. Fyrr
á árinu frumflutti hann sama verk
með Kammersveit Reykjavíkur á
Myrkum músíkdögum.
Anna Guðný Guðmunds dóttir
kemur fram með Matthíasi á tón-
leikunum. Hún hefur starfað
á Íslandi við margvísleg störf
píanistans, í kammertónlist, með-
leik og sem einleikari og hlaut
Íslensku tónlistarverðlaunin 2009
sem flytjandi ársins. Anna Guðný
hefur verið píanóleikari Kammer-
sveitar Reykjavíkur um langt ára-
bil. Hún er fastráðin við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og kennir við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Tónleikar Matthíasar og Önnu
Guðnýjar hefjast klukkan fimm í
dag. sigridur@frettabladid.is
Óbóið í aðalhlut-
verki í Salnum
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur
Stórsveit Reykjavíkur heldur
tónleika í Silfurbergi í Hörpu á
morgun klukkan tvö undir yfir-
skriftinni „Annar í afmæli“. Á
síðustu tónleikum sínum fagnaði
sveitin 20 ára afmæli með því að
leika tónlist sem tengist gesta-
stjórnendum hennar í gegnum
árin, innlendum og erlendum.
Á tónleikunum á morgun
verður haldið áfram með afmælis-
fagnaðinn, en að þessu sinni flutt
ýmis stök verk sem samin hafa
verið fyrir sveitina á liðnum
árum. Á efnisskrá verða verk
eftir Veigar Margeirsson, Eero
Koivistonen, Daniel Nolgård og
Ólaf Gauk Þórhallsson. Þá verða
frumflutt tvö ný verk eftir Stefán
S. Stefánsson og Lars Jansson.
Stjórnandi á þessum tónleikum
verður Sigurður Flosason. Þess
má geta að síðasta plata Stór-
sveitarinnar, HAK, fékk tvenn
verðlaun á Íslensku tónlistar-
verðlaununum nú nýverið.
Tónleikarnir eru hluti af tón-
listarhátíðinni Lyginni líkast sem
Jazzhátíð Reykjavíkur stendur
fyrir í Hörpu 1. apríl.
Annar í afmæli
KONAN SEM HANN ELSKAÐI ÁÐUR er heiti nýútkominnar bókar Dorothy
Koomson sem íslenskir lesendur þekkja vel. Áður hafa verið gefnar út eftir hana bæk-
urnar Góða nótt, yndið mitt, Dóttir hennar, dóttir mín og Mundu mig, ég man þig. Halla
Sverrisdóttir er þýðandi bókarinnar.